Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.01.2016, Page 4

Bæjarins besta - 28.01.2016, Page 4
4 Fimmtudagur 28. JANÚAR 2016 Hið árlega og víðfræga Sunnu­ kórsball var haldið sama kvöld á Hótel Ísafirði og við inngang í veislusalinn spilaði lúðraveitinn við mikinn fögnuð viðstaddra. Gestir voru prúðbúnir að venju og veitingar voru ekki af verri endanum, dýrindis rjómapönnu­ kökur og snittur af fínustu sort. Sunnukórinn er einn elsti bland­ aði kór landsins en hann var stofnaður árið 1934. Sunnukórsball Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740 Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir. Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670-021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Ritstjórnargrein Þorrinn genginn í garð Spurning vikunnar Hvaða skoðun hefur þú á klæðaburði fólks í sauna? Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Alls svöruðu 297. Það á að vera bannað að vera nakin(n) í sauna, sögðu 79 eða 27% Það á að banna sundföt í sauna, sögðu 66 eða 22% Þetta á að vera val hvers og eins, sögðu 152 eða 51% Nú í Þorrabyrjun ber það helst til tíðinda að Kári nokkur Stefáns­ son fer nú hamförum á alheimsnetinu og safnar liði fyrir hönd heil brigðis kerfisins. Ekki eru allir á eitt sáttir með þetta framtak kappans enda gætir ónákvæmni í framsetningu kröfunnar um endurreisn heilbrigðiskerfisins. Eðlilega þykir mörgum það rýra gildi átaksins en engu að síður kvitta tugþúsundir manna undir á vefnum endurreisn.is. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er þjóð­ in á því að heilbrigðiskerfið skipti miklu máli, þegar við veikjumst ætl umst við til þess að fá bestu mögulegu þjónustu og flestir vilja greiða jafnóðum í púkkið, ekki bara þegar veikindin herja á enda veikist buddan um leið og skrokkurinn. Framundan er enn ein baráttan um hagsmuni almennings, þjón­ ar það hagsmunum almennings að selja bankana, sama hvað! Á að selja þá af því að „ríkið á ekki að standa í bankarekstri“ eða er það einfaldlega hagkvæmt fyrir þjóðarhag að selja þá. Og hvernig verða þeir seldir, horfum við fram á sama óskapnaðinn og þegar síðasta einkavæðing banka fór fram og verða hagsmunir almennings aftur fótum troðnir. Síðustu uppákomur bankanna sýna svo ekki verði um villst að þeir hafa ekkert lært, Arion banki splæsir rausnarlega á bestu vini aðals við sölu á hlutum í Símanum og Landsbankinn hafði bara ekki hugmynd að hann hefði selt sínum bestu vinum gullgæs. Regluverkið um fjármálafyrirtæki hefur ekki verið styrkt nægjanlega til að hægt sé að hleypa þessum fyrirtækjum aftur laus­ um og almenningur þarf aðeins lengri tíma til að undirbúa sig fyr­ ir annað hrun. Það er nefnilega þannig að hvort sem bankar eru einkafyrirtæki eða í eigu almennings, það verður alltaf dýrara fyrir þjóðarbúið að láta þá fara á hausinn en að bjarga þeim. Það er því alltaf sama sagan, einkavæðing á þeim þýðir að hagnaðurinn er einkavæddur en tapið fellur á almenning. Við eigum rétt á því að stjórnmálamenn vinni með almannahag að leiðarljósi og við eigum rétt á því að geta treyst því að það sé gert. Þegar fyrir liggur að hagsmunir stjórnmálamanns og almennings geta stangast á, verður hann að víkja, skilyrðislaust. BS Heimavellir leigufélag auglýsir til leigu 3 og 4 herbergja íbúðir í fjölbýlishúsinu við Múlaland 14. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins heimavellir.is eða á facecook síðu félagsins. Sími: 517-3440. Til leigu á Ísafirði

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.