Bæjarins besta - 24.03.1993, Blaðsíða 2
2
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 24. mars 1993
FSÍ-deilan:
Ekkert komið fram
um að peninga vanti
* /
-segir Fylkir Agústsson, formaður stjórnar FSI
FYLKIR Ágústsson for-
maður stjórnar Fjórðungs-
sjúkrahússins á ísafirði (FSI)
sagði í samtali við BB að
málið væri sprottið af mis-
skilningi milli Guðmundar
og Guðna og ekki liggi neitt
fyrir um það að einhverjar
fjárhæðir vanti inn á ávísana-
reikning sjúkrahússins.
En af hverju var þeim vikið
frá störfum vegna málsins?
„Það kom um það erindi
frá Guðna að við könnuðum
þetta með formlegum hætti og
þegar slík erindi berast með
formlegum hætti þá afgreiðir
stjórnin þau með formlegum
hætti. Svo einfalt er það.”
Er útlit fyrir að annar þeirra
verði að víkja?
„Það er ekki okkar að
ákveða það. Það er þeirra.”
Það hafa þá ekki verið
ræddar uppsagnir vegna þessa
máls?
„Nei nei, engar uppsagnir
verið ræddar.”
Nú veit ég að það er vilji til
þess hjá sumum stjórnar-
mönnum aö gefa Guðmundi
kost á að segja upp, engin
önnur lausn sé til.
„Það hefur ekkert verið rætt
í stjórninni, ekki neitt slíkt.
Fyrst og fremst er þarna verið
að bregðast vió erindi Guðna
og ummælum Guðmundar og
taka á þeim með eðlilegum
hætti.”
Nú hefur komið fram að
Guðnihefurýmislegtvið störf
Guðmundar að athuga. Hvað
er það sem hann er ósáttur
við?
„Hafa ekki allir eitthvað að
athuga við störf annarra?
Ef undirmaður hefur eitthvað
við störf yfirmanns að athuga
þá verður hann bara að eiga
það við sig. Það er einn
ráðinn þarna sem fram-
kvæmdastjóri og hann á að
stjórna fyrirtækinu og hafi
undirmenn aðra skoðanir
verða þeir bara að hafa aðrar
skoðanir. En það er yfir-
maðurinn sem segirþeim fyrir
verkum að sjálfsögðu.”
Hefursjúkrahússtjórnin ver-
ið ánægð með störf Guð-
mundar fram að þessu?
„Eg sé enga ástæðu til lýsa
yfir öðru en því að meðan
hann er þarna framkvæmda-
stjóri þáerhann framkvæmda-
stjóri með fullu trausti stjórn-
arinnar,” sagði Fylkir.
Fylkir segir málið sprottið
af misskilningi og hann segir
ekki rétt að borið hafi verið á
Guðna að hann hafi tekið sér
fjórar milljónir.
„Það er rangt. Algjörlega
rangt. Það hafa þeir báðir út-
skýrtcnþeirvirðastekki skilja
að þarna er um misskilning
þeirra á milli að ræða. Það
eina sem er þarna er að menn
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði.
virðast ekki hafa haft stjórn á
því hvað væri inni á heftinu.”
Það liggur þá ekki fyrir að
neitt vanti inn á það?
„Nei.”
Er kannski ljóst að ekkert
vantar?
„Eg veit það ekki, það er
það sem verið er að ganga
eftir. En að okkar skilningi er
þaó ekki.”
Eftir því sem séð verður
núna vantar semsagt ekkert?
„Já, það hefur ekki komið
neitt fram um það og þess
vegna var ákveðið að fá mann
til að skoða það án þeirra
afskipta,” sagði Fylkir for-
maður stjórnar FSI.
-hj.
FSÍ-deilan:
BÆJARINS BESIA
ekkert segja
GUÐMUNDUR Mar-
inósson framkvæmdastjóri
Fjórðungssjúkrahússins á
ísafirði vildi ekkert segja
um deilur hans og Guðna
Guonasonar er BB hafði
samband við hann.
Guómundur færðist und-
an því að svara spumingum
blaðamanns og vildi ekki tjá
sig um málið á neinn hátt.
Hann vísaði á formann
sjúkrahússtjórnar og sagði
málið í höndum stjórnar-
innar.
„Eg vil ekkert segja um
þetta á þessu stigi,” sagði
Guðmundur. u,
Guðmundur Marinósson.
FSÍ-deilan:
/
Eg íhuga meiðyrðamál
-segir Guðni Guðnason, fulltrúi framkvæmdastjóra
GUÐNI Guðnason fuli-
trúiiramkvæmdastjóraFSÍ
segist íhuga meiðyrðamál
á hendur framkvæmda-
stjóranum. Hann scgir að
stjórn FSÍ eigi í raun ekki
um annað að veija en að
Iáta annaðhvort fram-
kvæmdastjórann eða hann
fara.
„Eg hef unnið mikla yfir-
vinnu og þaó hefur gengiö
illa að fá hana greidda. Um
daginn sagði Guðmundur
þvert nei við því að ég fengi
hana borgaða. Hann sagði
að ég hefói verió hífður upp
í launum með því að vera
titlaður fulltrúi framkvæmd-
astjóra og neitaói að greiða
yfirvinnuna. Samt sem áður
fór hann fram á að ég ynni
yfirvinnu. Eg vildi einnig að
við mig yrði gerður samn-
ingur og gengið yrði frá
starfslýsingu vcgna míns
starfs.
Ég sá enga aðra leið en að
skrifa stjórninni og spyrjast
fyrir um þetta og skýra mitt
mál. Þetta fór afskapleg fyrir
brjóstið á Guðmundi. Ég
hafói einnig grun um að ef
Guðmundur fengi einn aí'rit
af þessu bréfi þá færi það
ekkifyrirstjómina.Ég létþví
hvem og einn stjórnarmanna
fá bréf. Síðan hefur þetta allt
farið á verri veginn því hann
lét í bræði sinni þessu orð
falla,” sagði Guðni í samtali
við BB.
Hvað var það scm Guö-
mundur sagði nákvæmlega?
„Égfékk ekki að vera á
fundinum þó svo tillaga um
það hefði verið borin upp
þrisvar sinnum. En mér eru
færð þau orð, og hann er
búinn að viðurkenna aö hafa
sagt þau, að hann hafi sagt
—- í þeim orðum er hann var
að reyna að útskýra fyrir
þeim hvað ég væri lélegur
starfskraftur: „Og ég get upp-
lýst ykkur um það að hann
er búinn að týna fjórum
milljónum sem hann ekki
getur gert grein fyrir.*‘“
Þú fórst þá fram á að þessi
orð háns yrðu könnuó?
„Ég ætlaði að reyna að
leysa þetta innan veggja
hússins. Eg fór daginn eftir í
vinnu (föstudag) og ætlaði
að byrja á því að kalla í Guð^
mund Kjartansson (endur-
skoðenda) og biðja hann að
skoða þetta með mér. Guó-
mundur (Marinósson) neítaði
því og sagði aó ég mætti
það ekki.
Það var kallaður saman
stjómarfundurþennan dag þar
sem kom fram það álit manna
að þarna hefði Guðmundur
hlaupið á sig og komist
klaufalega að orði. Útkomán
úr þessum fundi var að ég og
Fyikir (Ágústsson) og einn
stjórnarmaður færum til
Guðmundar og þar myndi
hann biðjast afsökunar og
dragaummælin til baka. Guð-
mundur virtist á engan hátt
gera sér grein fyrir því að
hann hefði sagt eitthvað
alvarlegt og þetta leystist allt
upp — eins og Guómundi
einum ér lagið —- í hávaða
og læti.
Á laugardeginum þá af-
hendi ég Fylki bréf þar sem
ég óskaði eftir því, þar sem
ég teldi ýjað að því að um
fjárdrátt gæti verið aó ræða,
að málið yrði rannsakað,”
segir Guðnk
Stjórn FSI kom saman á
sunnudeginum á ný og nióur-
staóa þess fundar var sú að
Guðmundur og Guðni voru
sendir í frí í vikutíma meðan
málið væri skoðað af Guð-
mundi Kjartanssyni endur-
skoðenda stofnunarinnar.
Er einhver skekkja í heft-
inu?
„Það er kannski einhver
samlagningarskekkja ein-
hvers staðar. En að ég hafi
týnt fjórum milljónum, unt
það erekki að ræða. Stjómin
er enda fullviss um að þessi
rannsókn leíðir það í Ijós að
það vanti enga peninga. Þess
vegnagct ég ekki skilió eftir
hverju stjórnin er að bíða.
Eftir að Guðmundur Kjart-
ansson er búinn með sitt þá
situr hún uppi með það að
framkvæmdastjórinn hefur, í
þeim tilgangi að ég tel að
rægja mig, kastað fram stór-
um Órðum.”
Ertu að segja að Guó-
mundur hafi viljaó bola þér t
burtu?
„Hann var mjög reiður y fir
þessu bréfi mínu til stjóm-
arinnar og hann segir þetta í
þeim sömu orðum og hann
útlistar fyrir stjórninni hvaó
ég sé lélegur starfskraftur. Ég
held því að fólk geti alveg
lagt saman tvo og tvo.
Verður stjórnin að velja á
milli ykkar?
„Já, ég held að það sé
engin önnur leið. Ég spyr,
hvað ætlar stjórnin að gera
þegar hún situr uppi með
framkvæmdastjóra sem hefur
þjófkennt undirmann sinn og
undirmann sem hefur l'engið
sighreinsaðan af því?Undir-
mann sem íhugar að fara í
meiðyrðamál við yfirmann-
inn, geta þeir unnið saman?”
Ætlarðu í mál við Guð-
mund?
„Ég hef ekki tekið ákvörð-
un um það en ég er að íhuga
það. En ég vil mcina að þetta
séu ærumeiðandi ummæli.
Ég get ekki séð aó það sé
nein lausn finnanleg í dag sem
gerir það að verkum að við
getum unnið saman á föstu-
daginn. Mér finnst að stjómin
sé aó velta þessum vanda á
undan sér. Því miður þá held
ég að hún sé í þeim vanda að
þurfa að láta annan hvom
okkar fara.’’Verði það ég, þá
það. Eg sætti mig við það,
en hef ekki gert neitt af mér,”
sagói Guðni Guónason._/y
Silungar draga dilk á eftir sér:
Bæjarstarfsmenn skammaðir
EINS og greint hefur verið
frá í BB, í máli og myndum,
þá voru silungar í vatnsíu-
húsinu í Stórurð og þrifust
bara vel. Fréttin um sil-
ungana vakti mikia athygli
og var greint frá þeim í öllum
hclstu fjölmiðlum landsins.
En það voru ekki allir jafn
ánægðir með fréttaflutning-
inn. Þannig heyrum við að á
fundi bæjarstjórnar Isafjaróar
í síðustu viku hafi orðið
miklar umræður um málið og
menn verið misánægðir með
að fjölmiðlum skyldi hleypt í
húsið. Bæjarstarfsmennirnir
sem hleyptu ljósmyndurunum
að silungunum munu meðal
annars hafa verið skammaðir
fyrir tiltækió.
Ástæða þessara viðbragða
sumrabæjarstjórnarfulltrúaer,
eftir því sem BB hefur hlerað,
hræðsla við að sú umræða
komist á kreik að matvæla-
iðnaðurinn á Isafirði sé
gæóalega séð ófullkominn
vegna mengaðs vatns.
En eins og við höfum áður
greintfrástandanú fyrirdyrum
gagngerar endurbætur á vatns-
málum Isfiröinga og ættu þau
að lagast verulega strax í
endaðan apríl gangi áætlanir
eftir.
-hj.