Bæjarins besta - 24.03.1993, Blaðsíða 12
Fljúgið með elsta starfandi
áætlunarflugfélagi
á íslandi. írnTrp
ÍSAFJARÐARFLUGVELU
&4200 m 4688
TBYCCiliC HF |
Umboð: <^9*
Björn Hermannsson
Hafnarstræti 6, sími 3777
Frá slysstað. Lögregla og hjónin úr Bolungarvik aðstoða
manninn við að komast á sjúkrabörur.
Óshlíð:
Bifreiðin stöðvað-
ist í fjöruborðinu
UM MIÐJAN dag á
fimmtudag í síðustu viku
varð það óhapp á Óshlíðar-
vegi að fólksbifrcið fór út af
veginum og stöðvaðist ekki
fyrr en 10-15 metrum neðan
vegar, í fjöruborðinu.
Einn maður var í bílnum og
mun hann hafa misst vald á bíl
sínum í hálku. Er bíllinn rann
til, tók hann fyrst stefnu upp
fyrir veginn en snerist síðan
og út af neðri hluta hans þar
sem hann valt og stöðvaðist
ekki fyrr en á stórum steini í
flæðarmálinu. Hjón úr Bolung-
arvík sem voru að aka veginn
komu að slysstaö og að-
stoðuðu manninn sem er 74
ára gamall, þar til lögregla og
sjúkralið komu á vettvang.
Óhætt er að segja að mað-
urinn hafi sloppið vel frá
slysinu. Hann er þó marinn og
viðbeinsbrotinn og liggur nú á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Isa-
firði.
-s.
Óshlíð:
JFE með lægsta tilboð í byggingu
vegskála um Hvanngjá innri
Á MÁNUDAG voru opnuð
tilboð í byggingu vegskála
um Hvanngjá innri á Óshlíð
sem ráðgert er að reisa í
sumar. Níu tilboð bárust í
verkiðog var það hæsta rúm-
lcga 106% af kostnaðará-
ætlun og það lægsta 75,8%
af kostnaðaráætlun.
Lægsta tilboðið kom frá JFE
Byggingaþjónustunni hf. í
Bolungarvík og hljóðaði það
upp á kr. 42.876.550., sem gerir
75,8% af kostnaðaráætlun sem
hljóðaði upp á kr. 56.545.038.
Næst lægsta tilboðið kom frá
Naglanum hf. á Isafirði, kr.
45.454.000, Byggingafélagið
Virkir hf. í Mosfellsbæ bauð
kr. 46.225.400 og Tak hf. í
Búðardal bauð kr. 47.800.000
í verkið.
Eiríkur og Einar Valur hf. á
ísafirði buðu 47.970.000.,
Nesverk hf. í Reykjavík kr.
56.647.643., Lárus Einarsson
Mosfellsbæ kr. 59.507.090.,
Gunnar og Guðmundur hf. -
Klæðning, kr. 59.547.000., og
Istak hf. í Reykjavík kr.
59.974.623 sem var rúmlega
106% af kostnaðaráætlun.
-s.
Súðavík:
Ragnar hætt-
ir sem spari-
sjóðsstjóri
RAGNAR Jörundsson sem
gegnt hefur starfi sparisjóðs-
stjóra Sparisjóðs Súðavíkur
um þriggja ára skeið lætur
af því starfi um mitt þetta ár.
Ragnar hefur verið ráðinn
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs
Ólafsvíkur og mun væntan-
lega taka við því starfi í júlí.
Ragnar hefur eins og áður
sagði verið sparisjóðsstjóri í
Súðavík um þriggja ára skeið
en þar áður starfaði hann sem
sveitarstjóri á Suðureyri til
fjögurra ára. Ragnar sagði í
samtali við blaðið að ákvörð-
un þessa efnis hefði verið
tekin í síðustu viku og að hann
hlakkaði til að takast á við
nýja starfið sem væri þrefallt
umfangsmeira en starf hans í
Súðavík. „Þegar við banka-
menn tölum um stærð banka
og sparisjóða þá tölum við
um innlán, því það er þaö
verkfæri sem við notum til að
vinna með, og sparisjóðurinn
í Ólafsvík hefur þrefallt meiri
innlán en Sparisjóóur Súða-
víkur auk þess sem stööug-
ildin eru 5,5 á móti tveimur í
Súðavík.
Mér hefur líkað mjög vel
hér í Súðavík. Mér hefur
fundist mjög gott að vera
hérna. Eg fékk mjög góðar
viðtökur af íbúunum þegar ég
kom og það er ekki síst þeim
að þakka hvernig sparisjóð-
urinn hefur náð sér upp úr þeirri
Ragnar Jörundsson.
lægð sem hann var í. Ég kem
því til með að sakna margs
héma en eins og ævi manns er,
þá veit maður aldrei hvar
maður lendir. Þegar manni
býðst betra þá er ekkert nema
eðlilegt að maður taki því en
ég kem til með að sakna margs
hérna”.
Eftirmaður hans hjá Spari-
sjóði Súðavíkur hefur ekki
veriðráðinn. „Sparisjóðurinn
í Súóavík er kominn í góðan
rekstur og það gengur vel og
miðað við óbreytt ástand er
bjart framundan” sagði
Ragnar.
ÓHÁÐ
FRÉTTABLAÐ
/
A
VESTFJÖRÐUM
ísafjörður:
Erilsöm
helgi
SÍ ÐASTA helgi var frem-
ur erilsöm hjá lögreglunni
á ísafirði cn mikið var um
ölvun og óspektir á föstu-
dags- og laugardagskvöld
og þá sérstaklega fyrra
kvöldið.
Rétt eftir miðnætti að-
fararnótt laugardagsins var
lögreglan kvödd að veitinga-
húsinu Sjallanum en þar voru
tveir ölvaóir menn í slags-
málum. Er lögreglan kom á
vettvang sljákkaói í mönn-
unum og var þeim ekið til
síns heima. Sömu nótt var
lögreglan í tvígang kölluð
að Mánagötu 4 (Hernum)
vegna ölvunar og óláta og
voru þeir sem þar voru að
verki reknir út úr húsinu.
Rétt fyrir klukkan 20 á
laugardagskvöid var lög-
reglan kvödd aó veitinga-
staðnum Frábæ þar sem
öl váður maður hafði brotið
rúóu eftir aó honum haföi
veriö vikið út af staðnum
vegna óláta. Sömu nótt var
lögreglan kvödd að Krúsinni
þar sem ölvaður maður gekk
berserksgang. Hann var
vistaður :í fangaklefa. Um
hádegisbil á sunnudag var
síðan ökumaður ei nn tekinn
grunaður um ölvun við
akstur.
Hornvík:
Heimkomunni seinkaði
Björgunarsveitarmenn á ísafirði undirbúa sig til að hefja
eftirgrennslan að húsfrúnni í Hornbjargsvita.
SÍÐDEGIS á mánudag
stóö til að hefja eftir-
grcnnslan eftir húsfrúnni á
Hornbjargsvita er hún hafði
ekki skilað sér í vitann eftir
rúmlega tveggja og hálfs
sóIarhringsfjarveru.Til þess
kom þó ekki, því hún kom
fram um það leyti er björg-
unarsveitarmenn á ísafirði
voru að leggja úr höfn.
Húsfreyjan sem er af er-
lendu bcrgi brotin fór á há-
degi á laugardag á skíðum og
ætlaði yfir í Homvík þar sem
húnhugðistdveljaumnóttina.
Er hún hafði ekki skilaó sér
til baka um miðjan dag á
mánudag óskaði vitavörð-
urinn, Olafur Þ. Jónsson eftir
því við SÍglufjaróarradíó, að
feróir konunnar yrðu kann-
aðar. Fóru lögreglumenn
ásamt björgunarsveitarmönn-
um frá Isafirði af stað um
klukkan 18.30 en voru rétt
komnir út úr hafnarkjaftinum
á Isafirói er tilkynning barst
um að konan væri komin fram
heil á húfi.
Konan sem mun vera vön
slíkum ferðum mun hafa
hreppt slæmt veður á leið-
inni, sem aftur leiddi til
seinkunar á heimkomu
hennar. -s.
ísafjörður:
Stökk í sjóinn
RÉTT fyrir klukkan
fjögur aðfararnótt síðast-
liðins iaugardags fékk lög-
reglan á ísafirði tilkynn-
ingu um að ung stúlka
hefði fallið í sjóinn við
hafnarvogina í ísafjarðar-
höfn.
Lögreglan fór þegar á
staðinn og hafói þá piltum
sem voru nærstaddir tekist
að ná stúlkunni, scm er rétt
innan við tvítugt, á þurrt.
Sérstaklega sýndi einn pilt-
anna þrekvirki en hann henti
sér í sjóinn á eftir stúlkunni
og hélt henni þar til björgun
barst. Stúlkan var flutt á
Fjórðungssjúkrahúsið á Isa-
firði þar sem hún var um
nóttina. Henni varekki meint
af volkinu. Olvun var í
spilinu.
-s.