Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.05.1993, Síða 3

Bæjarins besta - 19.05.1993, Síða 3
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 19. maí 1993 3 Miðstöð bílaviðskipta á Vestfjörðum • Skeiði 5 • ísafirði • & 4300 & 4448 • fax 4300 Ernir tekur umboð fyrir Bílheima I síðustu viku var gengið frá samningum þess efnis að bílaleigan Ernir tæki við sölu- og þjónustuumboði Bíl- heima hf. á Vestfjörðum. I framhaldi af undirskrift þess samnings getum við nú boðið Isuzu, Opel og General Motors bifreiðar. Fyrir- huguð er sýning á bifreiðum þessum í byijun næsta mánaðar. Emir hefur sölu á heyvinnuvélum og dráttarvélum I síðustu viku var einnig gengið frá samningum þess efnis að bíla- leigan Ernir tæki við sölu- og þjónustuumboði á vélum og tækjum frá véladeild Ingvars Helgasonar hf. Meðal þess sem boðið verður til sölu, eru Massey Ferguson dráttar- vélar, Kverneland og Claas hey- vinnuvélar, Linde lyftarar, Dresser og Furukawa þungavinnuvélar og fleira o.fl. Aætlaö er að halda bú- véla-, vinnuvéla- og vinnubílasýningu í næsta mánuði. Sérstök áhersla verður lögð á góða þjónustu við bændur og hefur verið ráðinn sérstakur starfsmaður í því skyni. Hann mun heimsækj a bændur og aðstoða þá eftir þörfum. Nissan og Subaru bílasýning Auk ofangreindra umboða hefur bílaleigan Ernir sölu- og þjónustuumboð fyrir Nissan og Subarubifreiðar frá Ingvari Helgasyni hf. Til stóð að halda sýningu á þessum bifreiðategundum á svæðinu frá Patreksfirði til Isa- fjarðar um næstu helgi en vegna óviðráðanlegra orsaka hefur þeirri sýningu verið frestað til 3. júní næstkomandi. Sýningin verður auglýst nánar síðar. Góð sala á vélsleðum Bílaleigan Ernir hefur undanfarin ár haft sölu- og þjónustuumboö fyrir hina vinsælu Arctic Cat vélsleða frá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum hf. Síðastliðinn vetur var salan eins og best verður á kosið, yfir 30 sleðar seldust, sem segir sína sögu um ágæti og vinsældir þessara farkosta. Mjög góð vara- og aukahlutaþjónusta er á staðnum. Fullkomin mótorstillitölva Ábílaverkstæði bílaleigunnar Ernis er m.a. boðið upp á mótorstillitölvu sem er ein sú frdlkomnasta sem völ er á í dag. Tölvan býður upp á Qögurra efna afgasmælingu, möguleika á aö prófa hvern cylinder fyrir sig og fylgd neista frá upphafi upphafi til enda. Tölvan er sú eina sinnar tegundar á Vestfjörðum sem gefur kost á að sjá ástand spíssa í dísilvélum á grafískum tðlvuskjá auk þess sem hún býður upp á tímastillingu fyrir olíuverk og er þaö verk framkvæmt með geislabyssu. Ábílaverkstæðinu er einnig boðið upp á almenna smurþjónustu og hjólbarðaskipti auk almennra bílavið- gerða. Þá höfum við á verkstæðinu bilanaleitartölvu fyrir Subaru bifreiðar. Á verkstæðinu er einnig starfandi járnsmið sem aðstoðar fólk viö rennslu í bekk og suður. Nýir og notaðir bílar í björtum og rúmgóðum sýningarsal Eins og komið hefur fram er Bílaleigan Emir með sölu" og þjónusuumboð frá hinum ýmsu bíla- umboðum. Bifreiðarnar eru til sýxús og sölu í björtum og rúmgóðum sýningarsal okkar að Skeiði 5, Isafirði. Þá seljum við einiúg notaðar bifreiðar og eru þeir ófáir sem koma með bifreiðar sínar í sölu hjá okkur, enda er okkar aðalsmerki þjónusta, lipurð og sveigjanleiki. Láttu sjá þig, þaó er aldrei að vita hvað við getum gert fyrir þig. Ernir fær viðurkenningu Nýlega var bílaleigunni Erni veitt viðurkenning frá Ingvari Helgasyni hf. fyrir mestu aukningu í sölu vara- og aukahluta á veg- um umboðsins. Viðurkenn- ingin er mikil hvatning fyrir starfsmenn Ernis, sem eru staðráðnir í að gera enn betur á þessu ári. Þetta er ekki eina viðurkenn- ingin sem fyrirtækið hefur fengið á sínum stutta ferli. Á síðasta ári fékk Ernir bikar fyrir mesta sölu- aukningu á bifreiðum frá Ingvari Helgasyni hf. Hyundai og Ladaá leið vestur Þá er enn ótalið sölu- og þjónustuumboð á bifreið- um frá Bifreiðum og land- búnaðarvélumhf. Frá þeim koma meðal annars bif- reiðategundirnar Hyundai og Lada. Fyrirhugað er að halda sýningu á þessum bifreiðum dagana 12. og 13. júní og í framhaldi af henni veróur farið í sýn- ingarferð um Vestfírði. Alpen Kreuzer tjaldvagnar Bílaleigan Ernir hefur einnig til sölu hina vinsælu Alpen Kreuzer tjaldvagna. V agnarnir hafa farið sigur- fór um heiminn enda er hér um sérstaklega vand- aða smíði að ræóa. Hægt er að fá þá í tveimur út- færslum og eru nýja ár- gerðin talsvert breytt frá fýrra ári ogýmsar nýjungar kynntar. Líttu inn og kann- aðu málið áður en þú heldur í fríið. Hvar viltu skila bílnum? Eins og nafn fyrirtækis- ins gefur til kynna er bíla- leiga einn aðalþátturinn í starfsemi fyrirtækisins. Bílaleigan er sú stærsta á Vestfjörðum oghefur sann- að gildi sitt svo aö um munar á liðnum árum. I sumar verða á boð- stólum níu bifreiðar sem standa til þjónustu reiðu- búnar hverjum þeim sem til þess hefur réttindi og þarf á þeim að halda. Hægt er aö taka bifréiðarnar á Isafiröi eða í Reykjavík og skila þeim nánast hvar sem er á landinu. I sumar verða í boði sérstök leigukjör, sem nánar veröa kynnt síðar.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.