Bæjarins besta - 19.05.1993, Qupperneq 5
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 19. maí 1993
5
ísafjarðarhöfn:
Breyttar reglur um
hafasöguskyldu
Á FUNDI hafnarstjórnar
ísafjarðar sem haldinn var
4. maí síöastliðinn var lögð
fram tillaga um breytingu á
hafnsöguskyldu í IsaQarðar-
höfn og var tillagan sam-
þykkt með þremur sam-
hljóða atkvæðum.
Tillagan er þess efnis að
hafnarstjórn getur veitt undan-
þágu frá ákvæðum greinar 8.2
fyrir Isafjarðarhöfn og veitt
skipstjórum takmörkuð hafn-
söguréttindi í ísafjarðarhöfn.
Skilyrði fyrir undanþágunni
eru að skipstjóri hafi siglt
skipi, yfir 500 brl. að stærð
eða meira en 60 m heildar-
iengd, til hafnarinnar reglulega
a.m.k. átta sinnum á síðast-
liðnu tólf mánaða tímabili og
ekkert athugavert verið við
þá siglingu. Undanþága þessi
er háð því skilyrði að stjórn-
búnaður skips sé fullnægjandi
að mati hafnarstjómar. Undan-
þágan skuldbindur viðkomandi
skipstjóra til að hafa náið sam-
band við Isafjarðarhöfn og
hlíta í einu og öllu fyrirmælum
vakthafandi hafnarvarðar, ella
má svipta þá réttindum fyrir-
vararlaust.
Þá segir í tillögunni að hafi
skipstjóri ekki gegnt skip-
stjórnarstörfum í tvö ár falli
réttindi samkvæmt samþykkt-
inni niður. Hafnarstjórn Isa-
fjarðarhefur lagt til að tillagan
verði samþykkt í bæjarstjórn.
-,v.
ísafjarðarhöfn. Hafnarstjóm ísafjarðar hefur lagt til við bæjarstjóm að hún samþykki
tillögu þess efnis að skipstjómm verði veitt takmörkuð hafnsöguréttindi í Isafjarðar-
höfn. Skipstjóri með slík réttindi getur siglt skipi sínu til og frá ísafjarðarhöfn án þess að
hafnsögumaður sé um borð.
Skipstjóri með slík réttindi
getur siglt skipi sínu út úr Isa-
fjarðarhöfn án þess að hafn-
sögumaður sé um borð og falla
þá niður greiðslur fyrir hafn-
sögubát.
■ ■...............................
■ ■ .
N A N L A N D S
77/ Reykjavíkur frá:
ísafirði 5.830
Patreksfirði 5.660
Þlngeyri 5.600
/ /
Miðað er við að greitt sé fyrir báðar leiðir, fram
Fokker 50flyturpig og til baka, með a.m.k. tveggja daga fyrirvara og að
áfljúgandiferð milli Reykjavíkur dvalið sé lengur en þrjár nætur. Bókunum er ekki hægt
og níu dfangastaða að breyta. Flugvallarskattur, 330 krónur, er inni-
á íslandi á ótrúlegu APEX verði falinn og sætaframboð er takmarkað.
Það hefur aldrei verið jafnhagstætt að fljúga innanlands.
FLUGLEIDIR
þjóðbraut innanlands