Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.05.1993, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 19.05.1993, Blaðsíða 6
6 MJARINS BESTA • Miðvikudagur 19. maí 1993 Lesendur hafa orðið: LESANDI einn hafði samband við biaðið í gær- dag og kvaðst óánægð með þjónustu leigubif- reiðastjóra á ísafirði. Sem dæmi nefndi hún að sölu- maður sem staddur hefði verið á ísafirði á mánudag hefði reynt árangursiaust að fá ieigubíl í um hálfa klukkustund tii þess að komast í flug til Reykja- víkur. Þá nefndi hún annað dæmi af konu sem reyndi í lengri tíma að fá leigubíl frá Hótel ísafirði og inn í Ljón á föstu- dagsmorgun.cn án árangurs. Blaðið hefur einnig haft af því spumir að mjög erfitt sé að fá leigubíla eftir dans- leiki og eigi margur dans- gesturinn í mestum erfið- leikum að komast til síns heima. Hólmavíkur. Við erum á sjö leigubíium um helgar og yfirleitt gengur vel að ná í okkur,” sagði Elías. aftur á hornið MIG langar til að bera fram ósk sem ég vona að verði tekin til athugunar. Ég hef heyrt hjá mörgum sem búa í efri bænum á ísa- firði að þeir sakni mjög Kaupfélagsins „áhorninu”á Hlíðarvegi. Ég veit að það var lokað vegna kvartana um hávaða i kælitækjum en eru ekki til kælitæki scm cru ckki eins hávaðasöm? Ef svo er, af hverju ekki aðreynaaftur? Það væri mjög gott ef svo yrði, svo fólkið hér i efri bænum þyrfti ekki að fara alla leið niður í bæ, vantaði það t.d. bara mjólk. Ykkar eirtlœg „húsmóðir”. Uppáfallandi dæmi ELÍAS Sveinsson leigu- bílstjóri á ísafirði sagðJ I samtali við blaðið að þessi tvö dæmi væru uppáfall- andi. Tveir leigubílstjórar væru í fríi og hinir þrír sem eru á dagvakt hefðu verið uppteknir. „Við erum fímm á dag- vaktinni og þar af eru tveir í fríi. Ég sjálfur hef verið upp- tekinn á morgnaná við að aka bömum í sund frá Súða- vík og annar þeirra sem eftir er var í verkefni inni í Súða- vík og hinn mætti ekki. Það hefur bara hist þannig á að sá eini sem var á vakt var staddur inn í Súðavík um leið og flugvélin kom. Hinn sem mætti ekki var búinn að hlaða bílinn fullan af harð- fiski og var á leiðinni til Ekki á dagskrá að „á horninu” BLAÐIÐ hafði samband við Kaupfélag ísfirðinga vegna lesendabréfsins hér að ofan. Fyrir svörum var Sigríður Matthíasdóttir sem er staðgengill kaup- félagsstjóra Guðríðar Matthíasdóttur. „Þetta hefur ekkert verið rætt hér innan Kaupfélagsins og ég geri ekki ráð fyrir að af því geti orðið, þó svo að ég ráði engu þar um. Mín persónulega skoðun er sú að opnun verslunar á Hlíðar- veginum sé of kostnaðar- söm svo að af því geti orðiö. Þaðer rétt hjá húsmóðurinni að vcrsluninni var lokað vcgna hávaða í kælitækjum og þaö hefur ekki komið til tals að opna þar aftur,” sagði Sigríður. UTBOÐ Fyrir hönd Alþýóuhúss ísfiróinga óskar Tækniþjónusta Vestfjarða eftir tilboóum í klæóningu utan á Alþýóuhúsið á Isafirói, meó STENI og STENEX klæðningu. Um er aö ræða 630 m2 klæddan einangraóan flöt og 250 m2 óeinangraðan flöt, kantar inrtifaldir. Verklok: 15. september 1993 Útboðsgögn veröa afhent hjá Tækniþjónustu Vestfjarða Austurvegi 1,400 ísafirði frá og með 21. maí 1993gegn10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboóin veröa opnuð á skrifstofu verkalýósfélaganna Pólgötu 2, ísafirði þriöjudaginn 8. júní 1993, kl. 14:00. Tækniþjónusta Vestfjarða hf. Austurvegi 1 400 ísafirði, sími 94-3902 Sóltún, hús ísfirðingafélagsins: Þrí- og fjórbókað um hverja helgi í sumar MIKIL ásókn er í gistingu í Sóltúni, húsi ísafirðinga- félagsins í Reykjavík, við Hlíðarveg á Isafirði. Allt síðastliðið sumar var húsið uppbókað og nú er svo komið að hver vika frá 4. júní til 9. september er þrí- eða fjór- bókuð. Guðfinnijr Kjartansson stjórnarmaður í Isfirðinga- félaginu í Reykjavík sagði í samtali við blaðið að gisti- möguleikamir hefðu mælst vel fyrir hjá félögum í Isfirðinga- félaginu og væm bókanir í viku gistingu í húsinu fleiri en ráð var gert fyrir. „Húsið er þræl- bókaó í allt sumar, alveg frá 4. júní til 9. september og eru flestar vikurnar þrí- eóa fjór- bókaðar. Til að mæta á- sókninni höfum við sett þær reglur að sá hefur forgang sem hefur greitt árgjaldið flest árin og síðan fellur sá út sem hefur fengið úthlutað. Ef menn standa jafnir að vígi er aldur viðkomandi látinn ráóa. Þess- ar reglur hafa mælst vel fyrir og komið vel út að okkar mati.” Guðfinnur sagði ennfremur að nokkuð væri um að fólk sem hefði verið í húsinu á síðasta ári heföi pantað aftur í sumar og það eitt segi aðeins það að fólki líkaði veran í húsinu og heimabyggðinni. Húsið er leigt frá föstudegi til föstudag og kostar hver vika kr. 14.400. -í. Sóltún, hús ísfirðingafélagsins í Reykjavík á ísafirði. Mjög mikil ásókn er í gistingu í húsinu í sumar ísafjörður: Kristbjöm Sigurjónsson framkvæmdastjóri Núps hf. í nýju versluninni ásamt dætrum sínum, þeim Óddnýju Kristínu og Katrínu Sif. Núpur flyturí Ljónið BYGGINGAVÖRU- VERSLUNIN Núpur hf. sem verið hefur við Silfurtorg á þriðja ár flutti sig um set í síðustu viku og opnaði á föstudag í nýju húsnæði í Verslunarmiðstöðinni Ljón- inu Skeiði. Að sögn Kristbjörns Sigur- jónssonar eins eiganda Núps og framkvæmdastjóra fyrir- tækisins er hér um þrefalda stækkun á húsnæði að ræða og getur verslunin nú boðið allar sínar vörur á einum gólf- fleti í staðinn fyrir að vera með lager á mörgum stöðum. „Við vorum með lagerinn okkar út um allan bæ en nú getum við haft allt á einum stað sem gerir okkur kleift að veita betri þjónustu. Þá er öll aðkoma að versluninni mun betri en á gamla staðnum og þá kannski sérstaklega fyrir viöskiptavini okkar. Samfara stækkuninni höfum við aukið vöruúrvalið mikið og sem dæmi má nefna að við höfum aukið gólfefnaúrvalið um 3000 fermetra sem er með því mesta sem þekkist hér,” sagði Kristbjöm. Hann sagði ennfremur að fyrstu tveir opnunardagarnir lofuðu góöu um framhaldið. Salan í tvo daga hefði numið sama og á þriggja vikna tíma- bili á gamla staðnum og því væri hann bjartsýnn á fram- tíðina. Eigendur Núps eru Teppaland-Parketgólf hf. í Reykjavík, BYKO, Hjálmar Guðmundsson, Magnús Rafn Magnússon og Kristbjöm Sig- urjónsson. Teppaland-Parket- gólf er stærsti hluthafinn og er fyrirtækið rekið sem sjálfstætt fyrirtæki. -s. Verslunarmiðstöðin Ljónið: Haustveður á Vordögum VERSLUNARMIÐ- STÖÐIN Ljónið á Skeiði á Isafirði hélt sína árlegu vor- daga á föstudag og laugar- dag í síðustu viku. Þrátt fyrir nafnið „Vordagar” var veð- ur líkast því sem gerist á haustdögum og dró það aðeins úr aðsókn frá vestur fjörðunum. Talið er að hátt í þúsund manns hafi komið á vordaga að þessu sinni og voru versl- unareigendur í Ljóninu ánægðir með viðbrögðin, þrátt fyrir leiðinlegt veöur. Herdís Viggósdóttir í Legg og Skel sagðist í samtali við blaðið vera ánægð með að- sóknina þrátt fyrir að veðrið Svanhildur Þórðardóttir og Herdís Viggósdóttir í Legg og Skel. Þær voru ónægðar með „Vordagana” þrátt fyrir haustveður. hefói sett strik í reikninginn. Hún sagði ennfremur að til stæði að vera með ýmsar uppákomur í sumar til þess að vekja meiri athygli á þeirri þjónustu sem væri í boði á Skeiðinu og tók sem dæmi úti- markað og fleira. Vestfirðingar geta því átt von á lífi og fjöri í og við Verslunarmiðstöðina Ljónið á komandi mánuðum. _<•

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.