Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.05.1993, Page 11

Bæjarins besta - 19.05.1993, Page 11
BÆjARINS BESTA • Miðvikudagur 19. maí 1993 11 Bylgjan á ísafirði: Mikið hringt inn... ÚTVARPSSTÖÐIN Bylgj- an nýtur mikilla vinsælda á Isafirði. Hún á sér útibú hér í bæ, sem útvarpsstjórinn, Gunnar Atli Jónsson hefur yfirumsjón með. Hann sendir út milli hálfsex og sjö á virkum dögum, auk þess að útvarpa öll föstudags- og laugardagskvöld og er þá yfirleitt meira en nóg að gera við að svara í síma vegna óskalaga og fleira. En hvað olli þessum feiki- legu vinsældum, var orðin þörf fyrir útvarpsstöð sem þessa? Til að svara þessum spurn- ingum hafði blaðamaður sam- band við Gunnar Atla. „Já, það var tvímælalaust orðin þörf fyrir svona útvarps- stöð, allavega ef miðað er við þann fjölda fólks sem hringir hingað inn um helgar, þá er það ekki nokkur spuming. Hápunkturinn hingað til var án efa um páskana, þá ætlaði síminn aldrei að stoppa, það var sama hvenær ég tók upp tólið, þaó var alltaf einhver í símanum.” - Hvernig byrjaði þetta allt saman? „Þetta byrjaði í ágúst þegar ég og nokkrir félagar mínir starfræktum útvarpsstöð sem sendi út dagskrá þann tíma dagsins sem Stöð 2 var með útsendingar. Þess á milli send- um við út dagskrá Bylgjunnar með því að tengja okkar tækja- búnað við afruglara sem við höfðum.” - En af hverju hættuð þið útsendingum eftir áramótin? „Það stóð aldrei til að starfa lengur en til áramóta. En eftir áramótin hringdu þeir frá Bylgjunni í Reykjavík og vildu endilega halda útvarpinu gang- andi áfram. Ég setti því upp mjög frumstæðar græjur og hóf útsendingar, en gallinn er hins vegar sá að ég nýt engra styrkja, ég hef aðeins tekjur af auglýsingum sem því miður eru í litlu magni. En það er allt í lagi, fyrst þetta stendur undir sér og er ekkert á leiðinni á hausinn”. - Hvernig er framhaldið? „Eg mun halda áfram þar til ljósleiðarinn kemur hingað vestur, hvenær svosem það nú verður. En þegar hann verður kominn verður útvarpsstöðin starfrækt á svipaðan hátt og gert er á Akureyri, þ.e. út- sendingar milli kl. 5 og 7 á daginn og Bylgjan í Reykjavík alla aðra tima dagsins”. - Og munt þú standa einn í þessu öllu saman? „Nei, það verða líklega tölu- verðar breytingar í sumar því Guimar Atli Jónsson útvarpsstjóri meðmeiru við hinn frumstæða búnað sinn. við munum senda út á kvöldin. Ég er nefnilega síður en svo ánægður með það hvernig Bylgjan í Reykjavík hefur staðið sig. Þeir eiga að senda okkur efni gærkvöldsins á spólu svo við getum útvarpað því kvöldið eftir. Þetta hefur oftast brugðist og því hef ég ákveðið í samráði við félaga mína að senda út á kvöldin í sumar.” Þegar þarna var komið var lagið í útvarpinu búið og komið að Gunnari að kynna næsta lag. Við það kveður blaðamaður BB útvarpsstjór- ann og smellir mynd af honum í “stúdíóinu” sem staðsett er á skrifborðinu í herbergi hans. -hþ. ísafjörður: Gangstígurinn verður að koma, hver svo sem greiðir hann - segir Smári Haraldsson, bæjarstjóri um þá beiðni íbúa í Holtahverfi að gangstígur verður lagður á milli hverfisins og Ljónsins EINS og kom fram í síðasta blaði gengu tveir fulltrúar íbúa í Holtahverfi á fund bæjarstjórans á Isafirði á mánudag í síðustu viku og afhentu honum undirskrifta- lista frá 187 íbúum hverfisins þar sem krafist var úrbóta á hinum ýmsu málum í hverf- inu s.s. lagningu göngustígs á milli hverfisins og Verslunar- miðstöðvarinnar Ljónsins. Bréfið var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar á fimmtu- dag og að sögn Smára Haralds- sonar bæjarstjóra var tækni- deild falið að gera kostnaðar- áætlun vegna verksins auk þess sem henni var falið að ræða við Vegagerð ríkisins um öryggi gangandi vegfarenda á svæðinu. „Það er öllum ljóst að þarna verður aó koma gangbraut og reyndarekki bara þarna þó að þörfin sé mest þar. Ég stóð í þeirri meiningu að þessi stígur væri hluti af þessum vegi og væri því hlut- verk Vegagerðarinnar að öllu leyti en það er víst ekki rétt. Hins vegar er ljóst að það verða engar framkvæmdir þarna án samráðs við Vega- gerðina og ég vona að þeir taki þátt í þessari framkvæmd. Málið verður skoðað vel. Við hundsum þetta ekki og ég vona að lausn finnist fyrr en síðar,” sagði Smári. -s. Aætlaður byggingarkostn- aður tæpar 22 milljónir VEGAGERÐ Ríkisins hefur þurft að moka á hverjum degi þessa viku, þó komið sé „sumar”. Skafrenningur er mikill á heiðum og hálka sömu- leiðis fyrir þá sem skiptu yfir á sumardekkin á réttum tíma. Allar heiðar Vestfjarða eru l'ærar að sögn Kristins Jónssonar hjá Vegagerð- inni, en hann varar hins vcgar við mikilli hálku og segir skafrenning mikinn. Djúpleiðin er fær, nema um Hestakleifina, en hún verður væntanlega mokuð dag. ísafjöröur: Vestfjarða- mót í atskák SKÁKSAMBAND Vest- fjarða heldur Vestfjarðamót í atskák um næstu helgi á annarri hæð í Kaupfélaginu. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Fyrirkomulag atskáka er þannig, að umhugsunartími hvers keppanda er hálftími og er keppnin í útsláttarformi. Keppni hefst næstkomandi föstudag klukkan átta, annar hluti stendur milli fjögur og sjö á laugardaginn og mótinu lýkur á lokaspretti milli eitt og fjögur á sunnudag. Strax að móti loknu verða verðlauna- peningar veittir. Skráning til þátttöku fer fram hjá Ægi Pál Frióbertssyni í síma 4645. Mótsstaður er á 2. hæð Kaup- félagsins og er aðgangur öllum heimill og ókeypis. BYGGING spennistöðvar Orkubús Vestfjarða við Mánagötu á Isafirði gengur samkvæmt áætlun að sögn forsvarsmanna Orkubúsins. Undirstöðuplata hússins er tilbúin og mun uppslætti ljúka 30. júlí nk. Áætlað er að spennistöðin verði tilbúin 3. september nk. og þá með fullum rofa- og stjórnbúnaði og með hellum, gangstéttum, fullvöxnum trjám og runnum að utan. Það eru Eiríkur og Einar Valur hf. sem hafa með byggingarfram- kvæmdir að gera og arkitekt hússins er Elísabet Gunnars- dóttir. Heildarkostnaður við bygginguna áætlaður um 21,8 milljónir. -hþ. Ísafjörður/Hnífsdalur/Súðavík: ísafjarðarprestakall, 23. mai 1993: Aida Gná Guðmundsdóttir, Hnífsdalsvcgur 1, ísafirði. Árni Þór Einarsson, Eyrargata 6, Isafirði. Baldur Páll Hólmgeirsson, Fjaróarstræti 55, ísafirði. BirnaTryggvadóttir, Árholt 1, ísafirði. Eva Dögg Pétursdóttir, Árholt 3, ísafirði. Guðbjörg Björnsdóttir, Hlíðarvegur 43, ísafirði. Hildur Sigurðardóttir, Sundstræti 24, ísafirði. Magnús Freyr Ingjaldsson, Túngata 3, Isafirði. Ósk Mubaraka, Góuholt 9, ísafirði. TheodórÞórTheodórsson, Mjógata 5, Ísafírði. Örvar Eyjólfsson, Urðarvegur 24, ísafirði. ísaf jarðarprestakall, 30. maí 1993: Atli Frcyr Rúnarsson, Hlíðarvegur 45, Isafirði. Atli Þór Jakobsson, Hliðarvegur 20, ísafirði. Ágústa Sigurðardóttir Ringsted, Sundstræti 30, ísafirði. Áslaug Hrönn Reynisdóttir, Góuhojt 6, Isafirði. Eiríkur Gíslason, Lyngholt 9, ísafirði. Esthcr Ósk Amórsdóttir, Eyrargata 8, Isafirði. Geir Oddur Ólafsson, Hafraholt 22, ísafirði. Halldóra Harðárdóttir, Fagraholt 2, Isafirði. Haukur Gylfason, Fjarðarstræti 12, ísafirði. Hjördis Erna Ólafsdóttir, Engi, ísafirði. Jóhanna Fylkisdóttir, Fjarðarstræti 15, Isafirði. Jón Kristinn Hafsteinsson, Hlíðarvegur 25, ísafirði. Karen Pálsdóttir, Tárigagata 6, Isafirði. Kristján Ragnar Halldórsson, Urðarvegur 66, ísafirði. Marta Jónsdóttir, Túngata 18, Isafirði. Óraar Rafn Skúlason, Smiðjugata 4, ísafiröi. Sigrlður Élín Guðjónsdóttir, Hlíðarvegur 33, ísafirði. Sigrún Halla Tryggvadóttir, Móholt 7, Isafirði. Sturla Stígsson, Kjarrholt 4, ísafirði. Hnífsdalskapella 30. maí 1993: Auður Finnbogadóttir, Bakkavegur 11, Hnífsdal. Hilmar Skúli Hjartarson, Garðavegur 4, Hnífsdal. íngibjörg Sigrún Jóhannsdóttir, Strandgata 7, Hnífsdal. Jón Albert Harðarson, Garðavegur 6, Hnífsdal. Rakel Guðmundsdóttir, Bakkavegur 1, Hnífsdal. Snorri Hinriksson, Bakakvegur 10, Hnífsdai. Súðavíkurkirkja 31. maí 1993: Alda Björk Óskarsdóttir, Fögrubrekku, Súðavík. Asta Ýr Esradóttir, Grund, Súðavík. Ema Rut Steinsdóttir, Túngata 9, Súðavík. Jakob Einar Úlfarsson, Túngata 20, Súðavík. Jörundur Ragnarsson, Nesvegur 9, Súóavík.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.