Bæjarins besta - 19.05.1993, Page 14
14
RÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 19. maí 1993
Jens
Kristmanns
SPAUGARI síðustu
viku, Guðjón Þorsteinsson
í Vídeóhöllinni skoraði á
Jens Kristmannsson, for-
mann IBI að koma með
næstu sögu og hér kemur
framlag hans.
„Steingrímur Eyfjörð
Einarsson læknir var eitt sinn
á ferð til Siglufjarðar og
kom við á Olafsfirði. Séra
Ingólfur Þorvaldsson og
Steingrímur voru skóla-
bræður og góðir kunningjar.
Nú stóð svo á, er Stein-
grímur heimsótti prestinn,
að hann var að messa. Bar
því fundum þeirra ekki
saman að þessu sinni, því
læknirinn var á hraðri ferð.
Hann gat þó ekki á sér setið
nema að hnippa í vin sinn,
klerkinn, og skildi eftir til
hans miða með þessum
vísuorðum:
Ingólfurerað messa,
orðin hans margan hressa
gáfu- og guðdómleg.
Þó hefur hann til þessa
þrammað hinn breiða veg.
Þegar Ingólfur sagði Jón-
ataníu, móður sinni frá
kersknivísu Steingríms,
svaraði hún samstundis:
Steingrímur lærði að lækna,
lagði þar hönd að frækna,
það votta þorum vér.
Meinsemdum margra eyðir,
- mest þeirra, sem hann
deyðir.
Heiðir þeim heiður ber.
Sagt er að Steingrími hafi
líkað svarið.
Eg skora á Kristján Guð-
mundsson, rafmagnsfræð-
ing hjá Orkubúi Vestfjarða
að koma með næsta fram-
lag.
W/
fí/FJARTNS BF.STA
er og hefur ávallt verið
prentað á umhverfisvænan
pappír úr skógunt Finnlands.
V
Báran í slipp
ísafjörður:
Súðavík:
Bessinn
með 100
tonn
Frá því við sögðum
síðast aflafréttir frá
Súðavik hafa íjögur skip
lagt upp afla sinn hjá
Frosta hf., samtals um
150 tonnum.
Bessi ÍS-410 landaði í
gær 100 tonnum og var
uppistaðan í afla skipsins
grálúða. Þá landaði Kofri
einnig í gærdag 16 tonnum
af rækju. I síóustu lönduðu
síðan tvö rækjuskip, Sig-
hvatur Bjarnason 16 tonn-
um og Haffari 18 tonnum.
Flatevri:
Jónína með
19 tonn eftir
flórar lagnir
Þá hefur okkur loks-
ins tekist að fá afla-
fréttir frá Flateyri og
vonumst við til að ekki
verði misbrestur á því í
framtíðinni.
A þriðjudag í síðustu
viku lönduðu þrír færa-
bátar á Flateyri samtals
4,225 kg. úr átta róðrum
og var Stella með mestan
afla 1.455 kg. úr einni ferð.
Tveir línubátar lönduðu
samtals 8.415 kg. úr sex
róðrum og Jónína landaði
19 tonnum eftir fjórar
lagnir. A mánudag landaði
sí ðan Valur 40 tonnum eftir
viku útivist á línu. Guðrún
Ottarsdóttir sem er í eigu
Reynis Traustasonar og
fleiri aðila er nú í vélar-
upptekt og fer að henni
lokinni á úthafsrækju-
veiðar og landar á ísafirði.
Snurvoðarbáturinn Osk-
ar er byrjaður veiðar og
hefur fengið þokkalegan
afla af kola.
Rækiuveiðar:
Léleg veiði
við mið-
línuna
Fjögur íslensk rækju-
veiðiskip eru nú við
veiðar við miðlínuna
milli Islands ogFæreyja,
en þar hafa færeysk
skip verið við veiðar upp
á síðkastið.
Islensku skipsins sem
eru á svæðinu eru Beitir
NK, Margrét EA, Klara
Sveinsdóttir SU og Skut-
ull IS. Fremur dræm veiöi
er á svæðinu sem stendur
en þokkalega veiði var á
svæðinu vikuna áður.
Bolungarvík:
Færabátamir
með 26,8 tonn
í 73 löndunum
Algjört gæftaleysi hef-
ur verið hjá minnstu
bátunum í Bolungarvík
að undanförnu. Færa-
bátarnir á staðnum
lönduðu í síðustu viku
aðeins 26,8 tonnum í 73
löndunum sem er með
því lélegast sem gerist.
Fimm línubátar lönduðu
í Víkinni í síðustu viku.
Guðný landaði 14,5 tonn-
um úr fimm róörum, Jakob
Valgeir 5,4 tonnum úr
tveimur róðrum, Haforn
8,4 tonnum úr þremur
róðrum, Þjóðólfur 4,2 tonn-
um úr fjórum róðrum og
Haukur 2 tonnum úr þrem-
ur róðrum. Páll Helgi sem
er á dragnót landaði 6
tonnum úr §órum róðrum
og smábátarnir sem eru á
línu lönduðu samtals 10,6
tonnum í tólf löndunum.
Þessa dagana er verið að
undirbúa Flosa IS á úthafs-
rækjuveiðar og mun hann
hefja veiðar um leið og
veður lægir. Flosi mun
leggja upp afla sinn hjá
Þuríði hf.
ísafjörður:
Góður túr
hjá Júlíusi
Frystitogarinn Júlíus
Geirmundsson IS-270
landaði á fimmtudag í
síðustu viku 202,7
tonnum af frystum fiski
og var uppistaðan í afla
skipsins grálúða.
Afli Júlíusar var að verð-
mæti 41,2 milljónir króna
sem telst mjög gott en það
samsvarar 277 tonnum
upp úr sjó. A fóstudag
landaði síðan Páll Pálsson
80 tonnum af blönduðum
afla og Guðbjörg landaði í
gærdag 110 tonnum.
Þingevri:
Sléttanesið
til sýnis í dag
Ef allt hefur gengið að
óskum á Sléttanesið að
vera komið til heima-
hafnar sinnar á Þing-
eyri. Þegar blaðið hafði
samband við KD rétt
fyrir hádegi í gær var
áætlað að skipið færi fi*á
Akranesi síðdegis og
yrði komið til Þ ingeyrar
í morgunsárið.
Skipið mun verða til
sýnis í dag og á morgun en
gert er ráð fyrir að það
haldi á veiðar um næstu
helgi. Er þar með lokið
fimm mánaða fjarveru
skipsins frá veiðum en eins
og kunnugt er þá var skip-
inu breytt í frystiskip í
Póllandi og var áætlaður
kostnaður við breytingar-
nar um 150 milljónir króna.
Sömu sögu er að segja
frá Þingeyri og frá Bolung-
arvík og Suðureyri. Mjög
lítill afli hefur borist á land
eins og sést á meðfylgjandi
tölum. Bibbi Jóns 4,2 tonn
í 3 róðrum, Björgvin Már 6
tonn í 3 róðrum, Dýrfirð-
ingur 1,4 tonn í 2 róðrum,
Máni 1,2 tonn í 1 róðri,
Mýrarfell 4,1 tonn í 3
róðrum og Tjaldanes II 4,7
tonn í 3 róðrum. Þá landaði
Auðunn 39 tonnum. Uppi-
staðan í afla línubátanna á
Þingeyri var þorskur og
steinbítur.
ísafjörður:
Grunnvíking-
ur úreldur
Hnífsdælingur hf.
hefur fengið 6,7 mill-
jóna króna úreldingar-
styrk úr Hagræðingar-
sjóði vegna Grunnvík-
ings ÍS.
Skipið er 53 brl. að
stærð, smíðað úr eik á Isa-
firói árið 1945. Skipið
hefur að undanfómu legið
í Isafjarðarhöfn og var
meðfylgjandi mynd tekin
af skipinu þar á sunnu-
dag.
Vestfirðir:
Lakasta
steinbíts-
vertíðin
Samkvæmt upplýsingum
frá Fiskistofu Islands var
steinbítsaflinn á Vestfjörð-
um frá áramótum og fram til
11. maí síðastliðinn rúmlega
3.800 tonn.
Til samanburðar má geta
þess, að samkvæmt bráða-
birgðartölum Fiskifélags-
ins fyrir tímabilið frá jan-
úarbyrjun til aprílloka í
fyrra var steinbítsaflinn á
Vestfjöröum þá 6.500 tonn,
óslægt. Þessar upplýsingar
koma fram í nýjasta tölu-
blaði Fiskifrétta.
Fiiran rælgu-
skip með
172 tonn
Fimm rækjuskip hafa
landað á Isafirði frá þvi
á þriðjudag í síðustu
viku, samtals tæpum
172 tonnum.
A miðvikudag landaði
Albert GK 301, daginn eftir
lönduóu Huginn VE 24 t,
Bergur VE 16 t, Gullberg
VE 13,2 t og Hilmir NK 53
t af frystri rækju. Á fostu-
dag landaði síðan Isleifur
VE 7,6togJöfuríS landaði
á laugardag 28 tonnum af
frystri rækju aó verðmæti
um 9,7 milljónir króna.