Bæjarins besta - 02.03.1994, Qupperneq 2
2
MptfNS BESTA • Miðvikudagur 2. mars 1994
ísafjörður:
DANÍEL Jakobsson skíðagöngukappi var útnefndur
Iþróttamaður Isafjarðar 1993 í hófi sem fram fór á Hótel
Isafirði á fimmtudagskvöldiö í síðustu viku. Aðeins fjórir
íþróttamenn voru tilnefndir í ár og er það nokkuð færra en
búist var við en auk Daníels voru tilnefnd þau Sigríður B.
Þorláksdóttir fyrir hönd Boltafélags ísafjarðar, Helga
Sigurðardóttir fyrir Sunfélag Vestra og Sigurður R. Samúels-
son fyrir Golfklúbb ísafjarðar.
Daníel Jakobsson var til-
nefndur fyrir hönd Skíðafélags
ísafjarðar en tilnefningarnar
fóru þannig fram að hverju og
einu íþróttafélagi á Isafirði var
gert að velja sinn fulltrúa til
kjörsins, en eins og áður segir
voru þeir aðeins fjórir talsins.
Það var svo í höndum sérstakrar
valnefndar að útnefna einn
þeirra fjögurra sem Iþróttamann
Isafjarðar, en nafnbótin hefur
tekið smá breytingum, áður var
hún Iþróttamaður ársins.
Hinir tilnefndu voru allir vel
að titlinum komnir og var út-
nefningin síður en svo auðveld
fyrir valnefndina enda hefur
þessi hópur afreksmanna skarað
mjög fram úr og verið íþrótta-
félögum sínum og heintabæ til
mikils sóma. Formaður íþrótta-
og æskulýðsráðs, Halla Sig-
urðardóttir afhenti hinum til-
nefndu, eða fulltrúum þeirra,
blómvendi við valið og tók Gísli
E. Amason við veglegum bikar
fyrir hönd Daníels..
Hófið á hótelinu var vel sótt
og í alla staði veglegt. Avörp
voru flutt og sumir gesta stigu í
pontu og rifjuðu upp gamla tíma
frá dögum Harðar og Vestra,
gestum til mikillar skemmtunar.
menn munu vera á atvinnu-
leysisskrá. Framkvæmdaaðili
verksins er Isafjarðarkirkja.
-s.
hálfan mánuð í senn en það
gerir um 700 tíma á ári.
Arangur Daníels í skíða-
göngu á árinu 1993 var hreint
frábær og í skjali sem Skíða-
félag Isafjarðar færði val-
nefndinni til stuðnings til-
nefningunni segir m.a. að Dan-
íel hafi orðið fjórfalduríslands-
meistari; í 30 km göngu (rúmar
átta mínútur á undan næsta
manni), 15 km göngu (rúmar
tvær mínútur á undan næsta
manni) og í tvíkeppni. Þá vann
hann einnig íslandsmeistaratitil
í boðgöngu ásamt þeim Gísla
Einari Arnasyni, og Árna Frey
Elíassyni. Að auki sigraði
Daníel eina bikarmótið sem
hann tók þátt í.
Af árangri á sænskri grundu
má nefna að á síðastliðnu ári
var Daníel í 2. og 6. sæti á
Sænska meistaramótinu í flokki
19 til 20 ára og vann hann átta
mót í þeim flokki. Og sarnan-
lagt er Daníel í sjötta sæti í
sínum aldursflokki yfir Svíþjóð
alla.
Daníel Jakobsson.
Þá má einnig benda á að
Daníel er eini Islendingurinn
sem hefur hlotnast styrkur úr
svokölluðum þróunarsjóði Al-
þjóða Ólympíunefndarinnar, en
styrkur þessi er veittur íþrótta-
mönnum sem taldir eru vera
efni í afreksmenn.
Bæði Daníel og Helga Sigurðardóttir sundkona eru stödd erlendis við nám og
íþróttaiðkun og því voru það fulltrúar þeirra sem tóku við blómvöndum. F.v. Sigríður
B. Þorláksdóttir skíðakona, Sigurður Samúelsson kylfingur, Gísli E. Arnason stað-
gengill Daníels og svo móðir og nafna fulltrúa sundfélags Vestra, Helga Sigurðar-
dóttir.
BÆJARSTJÓRINN á fsafirði hefur fyrir hönd ísafjarðar-
kaupstaðar sótt um styrk til atvinnuleysistryggingasjóðs til
sex starfa við byggingu ísafjarðarkirkju en áætlað er að
verkið taki um sex vikur.
Hérerumaðræðamúrhúðun munu starfa fjórir múrarar og
kirkjunnar að innan en við það tveirhandlangararen allirþessir
Eftir að útnefningin var kunn-
gjörð, hringdi forseti bæjar-
stjórnar, Einar Garðar Hjalta-
son, úr síma sem tengdur var
við hátalarakerfi borðsalsins, í
Daníel sem þá var staddur á
Ólympíuleikunum í Lille-
hammer og óskaði honum til
hamingju með titilinn og ræddi
stuttlega við hann um gengi
hans á leikunum.
Frábær árangur
Daníels á síðasta ári
Daníel, sem nú er búsettur í
Östersund í Svíþjóð, er fæddur
17. ágúst árið 1973 og er því
tvítugur að aldri. Daníel hefur
æft hjá Skíðafélagi ísafjarðar
frá átta ára aldri en jafnframt
æfir hann með Ásarna IK sem
er eitt besta skíðafélagið í
Svíþjóð. Daníel æfir yfirleitt sex
daga í viku og jafnaði einn og
ísafjörður:
Qaníel Jakobsson valinn
íbrúttamaður Isaíjarðar
Bærinn sækir um
styrk til atvinnu-
leysistryggingarsjóðs
Fjölvís skrifar:
Hvar eruþingmenn?
- missa Vestfirðingar síðasta maisvara sinn afþingiþegar Matthías fíættir?
VESTFIRÐINGAR voru svo heppnir, til skamms tíma, að eiga á að skipa afburða
þingmönnum. Þingmönnum sem höfðu áhrif og völd, bæði innan sinna flokka og í þjóð-
félaginu. Margir þeirra voru ráðherrar, eða ráðherraígildi, sem þjóðin túk tillit til, virti og
óttaðist. Þessir þingmenn höfðu frumkvæði og sjálfstæðar skoðanir á grundvallarmálum
þjóðarinnar, en létu ckki mata sig á skoðununt „sérfræðinga" og afætulýðs. Þeir vissu á
hverju þjóðin lifði, oggat lifað, og héldu vörð um líf sjávarútvegs og landbúnaðar. Og þeir
sáu til þess að íslenskur iðnaður dafnaði og heilbrigð verslun var í landinu. Og í þeirra tíð
áttu allir kost á menntun og læknishjálp, án tillits til sparisjóðsbókar eða ættartöllu. Já, þá
var öldin önnur.
Með einni undantekningu
(Matthías Bjarnason) hafa
þingmenn Vestfirðinga nánast
ekkert fram að færa þjóðinni
til framdráttar. Og allra síst að
þeir. þ.e. þingmenn Vestfjarða,
hafi eitthvað fram að færa
Vestfirðingum til hjálpar um-
fram aðra þingmenn þessa
lands. Þeir spila á hörpu á
meðan Vestfirðirbrenna. Und-
antekningin er Matthias
Bjarnason, aldursforseti þings-
ins og jámkarl. sem aldrei sefur
á verðtnum, en hefur nú, vegna
aldurs og lasleika, ekki lengur
kraft til að berja á forystu
flokks síns og öðru þingliði.
Það er vissulega skarð fyrir
skildi.
Sá úr þingmannaliðinu að
vestan. sem gæti vissulega haft
áhrif og komið fólkinu sínu til
bjargar á örlagastundu. er
Sighvatur Björgvinsson. Hann
er mikill að burðum, hættu-
lega greindur og kjaftfor, en
virðist hafa skort hugrekki til
að ná fram málum. Einhver
breyting virðist þó vera í að-
sigi. því Sighvatur, fyrstur
manna úr þingmannastétt,
sagði fyrir skömmu, að það
væri nauösynlegt fyrir íslensku
þjóðina að veiða nieira af
þorski heldur en Hafrann-
sóknastofnun hefur verið upp-
álagt að segja að óhætt sé að
veiða á yfirstandandi I iskveiði-
ári. Undirþettatók síðanEinar
Kristinn, Bolvíkingur.en aðrir
þingmenn að vestan virðast
mállausirmeðöllu(þegarþetta
„smámál” ber á góma). Krist-
inn H. Gunnarsson cr trúlega
að hugsa upp eitthvert sam-
særi gegn Ólafi Ragnari, Ólaf-
ur Þ. að gefa kúm sínum í
Borgarfirði og Jóna Valgerður
að aðstoða bónda sinn við að
hrista saman í einn graut
Súðvíkinga og Bolvíkinga.
Hvað varðar þcssa þing-
menn heldur um auknar veiði-
heimildir Vestfirðingum lil
handa? Geta þeir ekki bara
ræktað ánatnaðka, tálgað
minjagripi úr rckaviði eða tekið
við gestum í bændagistinguna
átímabilinu l.júlítil 15.ágúst
ár hvcrt? Hvflík niðurlæging
að eiga slíka þingmenn, hví-
líkur kross að bera. Eða eiga
Vestfirðingar þetta skilið? Það
skyldi þó ekki vera?
Með afskiptaleysi sínu og
dómgreindarskorti hafa þeir
kallað yfir sig slíka hörmung.
Með því að velja liðónýtt fólk
til starfa á sjálfu Alþingi. Með
því að láta það viðgangast að
velja fólk, sem ekki veit á
hverju tilvist fólksins í kjör-
dæminu byggist. Með því að
velja þingmenn sem nenna
ekki að taka þátt f umræðunni
um fiskveiðistefnunaog finnst
það ekki neinu máli skipta
hvort Vestfirðingarmegi draga
fisk úr sjó eður ei.
Ef Matthías Bjamason hættir
að vera málsvari Vestfjarða
eftir næstu kosningar. sem
vissulega er líklegt. setur hroll
að mörgum Vestfirðingnum.
Hver mun taka við að halda
uppi merkinu? Eru líkur á að
núverandi „þingmenn", nái
þeir aftur kjöri, taki sig á?
Koma nýir alvöru þingnrenn
tíi skjalanna? Eða er lausnin
sú, að gera landiö allt að einu
kjördæmi? Það myndi að
minnstakosti 1 Vestfirðinga frá
þeirri trú að þeireigi um þessar
mundir vesælustu þingmenn
þjóðarinnar.
-Fjölvís.