Bæjarins besta - 02.03.1994, Page 5
RíJARINS BESTA • Miðvikudagur 2. mars 1994
5
ísafjörður:
Grænlenskur heim-
skautafari í heimsókn
GRÆNLENSKI fyrirlesarinn og heimskautafarinn, Jens
Jörgen „Ono” Fleischer kemur til landsins föstudaginn 4.
mars nk., til að kynna Grænland sem ferðamannaland.
Hann mun ferðast víða um land og segja frá grænlenskri
menningu sein og ferðamöguleikum á Grænlandi auk þess
sem hann mun segja frá ævintýralegu ferðalagi sínu og
félaga síns, Jens Danielsens, frá Thule á norður Grænlandi
um Kanada til Point Barrow í Alaska, 4000 km. ferð á
hundasleðum sem tók 100 daga.
Ono Fleischer kemur til Isa-
fjarðar á sunnudaginn og fer
kynning hans fram á Hótel Isa-
firði og hefst kl. 20.30. Heim-
sókn Ono Fleischers er hluti af
samvinnuverkefni íslenskra og
grænlenskra ferðamála- og
samgönguyfirvalda sem hefur
það að markmiði að auka ferða-
mannastreymi milli landanna.
Um þetta er í gildi þriggja ára
samstarfssamningur íslensku
ríkisstjórnarinnar og græn-
lensku landsstjórnarinnar sent
tók gildi unt áramótin.
Ono Fleischer er bátasmiður,
veiðimaður og barnakennari,
sem hefur ferðast á hunda-
sleðum um þvert og endilangt
Grænland og víðar. Hann er
mikill áhugamaður um græn-
lenska tungu og menningu og
er baráttumaður fyrir hvort
tveggja. Hann er söntuleiðis
áhugamaður um menningu
inúíta (eskimóa) enda var eitt
meginmarkmið sleðaferðar-
innar miklu til Alaska að stuðla
að betri og nánari tengslum milli
bræðraþjóðann sem byggja
norðurhjarann.
-s/f.
Snerpa, átaksverkefni í atvinnumálum kvenna á Vestfjörðum:
Heldur Kynningaif und
á Hótel Isafirði í kvöld
SNERPA, átaksverkefni í atvinnumálum kvenna á Vest-
fjörðum heldur kynningarfund á Hótel Isafirði í kvöld kl.
20.30. A fundinum mun Elsa Guðmundsdóttir, verkefna-
stjóri kynna hvaða hlutverki verkefninu er ætlað að gegna
sem og hvaða þjónustu það býður konum á Vestfjörðum. Þá
verður farið í hugmyndaleit þar sem ýmsir möguleikar til
atvinnusköpunar á svæðinu verða kannaðir.
Verkefnið hefur verið starf-
andi í tæpa sjö mánuði. A
þessum tíma hefur verkefna-
stjóri haldið kynningarfundi og
sinnt fyrirspurnum frá konum
sem hafa áhuga á að hefja fram-
leiðslu eða stofna fyrirtæki.
Viðbrögð kvenna hafa verið
mjög góð og hafa þær óspart
notfært sér þjónustu verk-
efnisins. Árangur lætur ekki á
sér standa því konur víðast hvar
á Vestfjörðum hafa hafist handa
við að þróa vörur og hugmyndir
og hafa aðrar hafið framleiðslu
og stofnað fyrirtæki. Smám
saman eru konur að taka virkari
þátt í uppbyggingu fjölbreyttari
atvinnuhátta í sínum heima-
byggðum með því að útfæra
eigin hugmyndirtil tekjuöflunar
og atvinnusköpunar.
Fundir hafa þegar verið
haldnir á Suðurfjörðunum og
er fundurinn á Isafirði fyrsti
liður í mars fundarherferð verk-
efnisins. Næstu fundir verða
haldnir á Flateyri, Suðureyri,
Bolungarvík, Súðavík og inni í
Djúpi og verða tímasetningar
þeirra auglýstar síðar.
-slf
Bolungarvfk:
Óku Subaru að Galtarvita
HANN gerist æ furðulegri
ferðamátiun um fjöll og firn-
inai landsins, sumir hjóla yfir
Vatnajökul og aðrir reynaað
aka yfir, en síðastliðinn föstu-
dag óku þrír Bolvíkingar á
Subaru Justy með aðstoð
Willis jeppa, árgerð ’66, að
Galtarvita í Keflavík.
Ökumaður fólksbílsins var
Reimar Vilmundarson, 21 árs,
sem jafnframt er eigandi hans,
en á jeppanum voru þeir Elvar
Sigurgeirsson, 19 ára, og Ævar
Þór Ólafsson, 17 ára. „Við
héldum af stað um þrjúleytið
og ókum upp Tungudalinn og
tókum svo beina stefnu á Kefla-
víkina. Það var mikill skari á
leiðinni svo að bíllinn sökk lítið
en við þurftum reyndar að draga
Subaruinn upp tvær brekkur.
En ferðin sóttist samt vel og við
vorum komnir heim aftur
klukkan hálfsex, þetta var bara
skot-túr.
Eg veit ekki alveg hvernig
þetta kom til, þetta var eigin-
lega bara gamall draumur og
okkur virtist færið vera mjög
ákjósanlegt á föstudaginn og
slógum því til,” sagði Elvar en
hann ereigandi Willys jeppans,
sem er af árgerð 1966 -hþ.
Það var ekið greitt þegar félagarnir komust loks upp Tungudalinn. Hér er Subaru
bíllinn á hátindi ferðaleiðinnar.
Komnir heim í hlað að Galtarvita.
— Klippið út og geymið á éberandi slað — — — — —
HEILSUGÆSLAN Í BOLUNGARVÍK
Þjonustusimi heilsugæslunnar 7287
Neyðarnumer heilsugæslunnar 7444
Boðsími læknis
, -
9Vr »
' *..........*
Boðsími sjúkraflutningsmanna 984-5 f
/ neyðartilvikum má nota boðsíma læknis ef
Vaktsími læknis er tengdur símsvara er veitir
upplýsingar um lækni eða afieysara hans allan
sólarhringinn. Ef vantar lækni á vakttíma, byrjið
alltaf á að hringja í síma 7387.
Vanti sjúkrabíl er einfaldast að hringja í síma
Upplýsingar um boðsímakerfið er í
• símaskránní. Hafirðu ekki tónvalsíma eða
treystir þér ekki til að nota boðkerfið færðu
aðstoð á Sjúkraskýlinu í síma 7147.
■■ Veí'í
SYSLUMAÐURINN
drdLCJ
JJI Á ÍSAFIRÐI
, ..... ...
Áhugasömum er bent á að hafa sam-
band við Önund Jónsson, yfxrlögreglu-
þjón, sem veitir allar upplýsingar um
starfið. Æskilegast er að viðkomandi
hafi lokið prófi frá Lögregluskóla
að hafa til að bera prúðmannlega fram-
komu, góða íslenskukunnáttu og undir-
stöðumenntun, auk þess að hafa nokkra
reynslu af mannlegum samskiptum.
Ökupróf er algert skilyrði.
Umsóknum ásamt sakavottorði og
meðmælum skal skila til yfirlögreglu-
þjóns á Lögreglustöðinni á ísafirði eigi
síðar en 23. marz 1994.
LögreglustjÓrinn á Isafirði,
1. marz 1994.
Ólafur Helgi Kjartansson.