Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.2017, Blaðsíða 4

Bæjarins besta - 08.03.2017, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017 Vinnumálastofnun stýr- ir Evrópuverkefninu FREE en mark mið þess er að efla frum- kvöðla konur á landsbyggðinni og hvetja þær til dáða í sínum verk efnum. Segja má að verk efnið sé áframhald Female verkefnisins sem Vinnumálastofnun stýrði, en það var einnig fræðsluverkefni fyrir konur með staðbundnum námskeiðum. Í því verkefni kom í ljós að konur á landsbyggðinni hafa oft ekki tök á því að ferðast um langan veg til að taka þátt í námskeiðum og kjósa að hafa aðgang að fræðslu í gegnum netið. Því var ákveðið að sækja um styrk fyrir öðru verkefni sem myndi þá einblína á þarfir frum- kvöðlakvenna á landsbyggðinni. Rannsóknir sýna einmitt að það sem helst skortir á landsbyggðinni er aðgangur að efni á netinu en einnig telja konur mikilvægt að hittast og mynda tengsl. Verkefnið er samstarfsverkefni sex aðila frá fimm löndum, en auk Vinnumálastofnunar á Íslandi tekur Byggðastofnun þátt ásamt aðilum frá Bretlandi, Búlgaríu, Króatíu og Litháen. Samstarfið gengur vel og vinna allir aðilar vel saman að markmiðum verk- efnisins. Hvernig ætlum við að efla konur til dáða? Verkefnið skiptist í þrjá þætti: Í fyrsta lagi verður boðið upp á netnám í þáttum sem viðkoma hugmyndavinnu og rekstri fyrir- tækja. Má þar nefna stefnumótun, útflutning, vöruþróun, markaðs- setningu, kennslu í notkun samfé- lagsmiðla, netsölu og fjármál. Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um netnámið en verið er að leggja síðustu hönd á námsefnið. Mun það verða aðgengilegt í gegnum Moodle námskerfið á heimasíðu verkefnisins. Hér er umsóknin: http:// ruralwomeninbusiness.eu/is/ fraedsla-a-netinu/ Í öðru lagi þá verða settir upp hæfnihringir á netinu, þar sem þátttakendum gefst kostur á að hitta aðrar konur í sömu stöðu og ræða þar málefni sem á þeim brenna. Notast verður við „Google hangout“ kerfið sem er gjaldfrjálst og krefst eingöngu þess að G-mail aðgangur sé til staðar hjá þátttakanda. Einnig verður hægt að nálgast gagnvirkar æfingar í persónulegri hæfni á heimasíðu verkefnisins. Í þriðja lagi hafa verið sett upp tengslanet kvenna á þeim þremur stöðum sem einblínt er á en það eru Vestfirðir, Norðurland vestra og Austurland. Íbúaþróun hefur verið neikvæð á þessum svæðum og ennfremur sýna rannsóknir að konum fækkar meira á þessum svæðum en körlum. Tengslanetið byggir á hug- myndafræði frá Bretlandi, en þar hafa tengslanet kvenna í dreifbýli Fyrir nærri tuttugu árum beit ég það í mig að mig langaði að læra að búa til vefsíðu. Það var ekkert sérstaklega flókið, þurfti bara gamla tölvu, áhuga og tíma, já og auðvitað módem til að geta hringt sig í sambandið við internetið. En um hvað vefurinn ætti að vera, það var aðeins flóknara því þótt þetta hafi bara átt að vera til gamans gert, þá langaði mig að gera eitthvað nýtt, eitthvað sem mér fannst vanta. Ég áttaði mig á því að þó að netið væri fullt af leikjum þá voru það mikið skotleikir, bílaleikir og yfirhöfuð leikir sem mér fannst ekki spennandi. Ég fann þó einstaka leiki sem mér fannst skemmtilegir, sérstaklega voru það dúkkulísuleikirnir sem heilluðu, og ég fór að safna þeim. Þessi leikir voru hér og þar á netinu og mér datt í hug að ég gæti auðveldað aðgengi að þeim með því að safna þeim á einn stað – það væri fínt efni í vefsíðu. Svo liðu árin og þetta áhuga- mál óx og dafnaði enda fannst mér skemmtilegt að finna efni, þróa síðuna og sjá að heimsókn- irnar urðu alltaf fleiri og fleiri. Svo kom að þeim tímapunkti að það fór að verða auðveldara að hagnast á vefsíðum. Og þá meina ég að það var auðvelt að fá auglýsingar til að setja á síðuna en að fá notendur er ekki einfalt og hefur aldrei verið. Það var ekki fyrr en um tíu árum eftir að vefurinn leit dagsins ljós í fyrstu útgáfu, að fyrirtækið Dress up games ehf varð til. Síðan 1998 hefur margt breyst þó innihaldið sé alltaf Ert þú frumkvöðlakona? Ertu með hugmynd sem þig langar að framkvæma? verið starfrækt í nokkurn tíma í gegnum WIRE verkefnið. Hug- myndafræðin byggir á þátttöku og að deila upplýsingum og þekkingu inn í tengslanetið. Taktu þátt! Hér á Vestfjörðum hefur tengslanetið verið stofnað og var fyrsti fundur þess haldinn á Ísa- firði í febrúar. Góð mæting var og mikill áhugi á verkefninu meðal þátttakenda. Hluti af verkefninu er þjálfun tengslanetsleiðtoga á þessum þremur svæðum og leiðir Bryndís Sigurðardóttir tengslanetið hér. Fyrirhugað er að hittast með reglubundnum hætti og hafa fundi einnig á Suður- fjörðunum þegar líða fer á vorið. Sett hefur verið upp síða á Facebook þar sem konur geta tekið þátt í tengslanetinu og haft áhrif á hvað á að fjalla um þar og má nálgast hópinn hér https://www.facebook.com/ groups/1435367403171496/ Einnig bendum við á heimasíðu verkefninsins en þar má finna nánari upplýsingar um verkefnið og aðra samstarfsaðila www. ruralwomeninbusiness.eu Tengiliður verkefnisins á Vestfjörðum er Guðrún Stella Gissurardóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar Vestfjarða en verkefnastjóri er Ásdís Guð- mundsdóttir, starfsmaður At- vinnumála kvenna. gudrun.gissurardottir@vmst.is asdis.gudmundsdottir@vmst.is Ásdís Guðmundsdóttir. Dress Up Games það sama, dúkkulísuleikir. Ég er ekki búin að fá leið á þeim sem margir virðast vera hissa á því algengasta spurningin sem ég fæ, sérstaklega frá „bisness“ fólki er hvort ég ætli nú ekki að fara að gera eitthvað annað, eitthvað nýtt. En nýjungarnar sem fylgja breytilegri tækni, t.d. komu snjallsíma, veita mér alveg nægar áskoranir og ég ætla því að halda mig við þetta um ófyrirséða framtíð. Ein kona getur afrekað margt og í mínu tilfelli dugar þetta eina fyrirtæki mér – ég læt öðrum eftir öll hin tækifærin! Inga María Guðmundsdóttir eigandi Dress up games ehf Inga María Guðmundsdóttir.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.