Bæjarins besta - 08.03.2017, Side 24
24 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017
Stemning í þjóðfélaginu er
skemmtileg skepna. Á sumrin
skottumst við um í lopapeysum
á ættarmótum með miðnætur-
glampa í augum. Haustið kemur
svo með sínum fallegu litabrigð-
um. Allir í bátana er stemningin
þá, bæjabúar komnir á sinn stað,
skólar byrjaðir og fé sótt á fjöll.
Ábyrgð og framkvæmdagleði
svífur yfir vötnum. Nú er vor í
lofti þrátt fyrir kuldatíð undan-
farna daga.
Sól hefur hækkað á lofti og
undurfögur birta liðast um dali
og firði. Já, ég er bara nokkuð
bjartsýn enda ærin ástæða til,
það er eitthvað svo góð stemning
núna til að taka af skarið og ganga
í hlutina.
Félag kvenna í atvinnulífinu
(FKA) finnur fyrir góðri stemn-
ingu í samfélaginu fyrir því að
láta til sín taka og hafa áhrif.
Eitt af þeim verkefnum sem á
hug okkar þessi misserin er að
sýna fram á mikilvægi þeirra
fjölmörgu fyrirtækja sem eru
stofnuð og rekin af konum. Kon-
ur og karlar hafa byggt þetta land
saman, og hafa sagnfræðingar
bent á að atvinnuþátttaka kvenna
hafi alltaf verið mikil. Hér áður
fyrr ráku þær heilu og hálfu
samfélögin meðan mennirnir
voru á sjó, uppá fjöllum eða
einhverstaðar að færa björg í bú.
Rekstur, stjórnun og mannleg
samkipti eru að mínu mati sam-
ofin íslenskum konum, enda held
ég fáir efist um getu þeirra til að
stjórna og ráðskast með menn
og málefni.
En hvers vegna er ég í þessum
hugleiðingum, jú þann 8. mars er
Alþjóðlegur dagur kvenna. Og
því tilvalið að beina kastljósinu á
mikilvægi þeirra í atvinnulífinu.
Er ekki stemning fyrir því? Jú,
það er nefnilega stemning fyrir
því að benda á og draga fram þær
frábæru fyrirmyndir sem birtast
okkur á hverjum degi.
Vestfirðir hafa á að skipa afar
öflugum kjarnakonum sem reka
og stjórna vestfirskum fyrirtækj-
um og stofnunum. Haustið 2015
var stofnað innan FKA útibú á
Vestfjörðum og höfum við séð
mikla grósku og elju í þeim
konum sem koma hér saman
til skrafs og ráðagerða og efla
tengslanetið.
Lítil, meðalstór og stór fyrir-
tæki þurfa á því að halda að hafa
á að skipa öflugu fólki og ekki
síst að tryggja að innan þeirra
raða sé hópurinn fjölbreyttur og
Er ekki
stemning
fyrir því?
endurspegli samfélagið okkar.
Horfðu í kringum þig, hvað
sérðu? Sérðu öflugar konur
sem stjórna og reka fyrirtæki og
stofnanir? Ef svo er, er þá ekki
tilvalið að þakka þeim gott starf?
Gefðu þeim gott klapp á bakið
því í dagsins önn gleymum við
oft að hrósa og benda á góða
hluti. En ef þú sérð engar svona
konur, þá þarf eitthvað að breyta,
því þá sérðu einsleitt atvinnulíf,
sem tekur einsleitar ákvaðanir
með einsleitar þarfir í huga – þá
er heldur betur kominn tími á
breytingar.
Opnum augun og skoðum í
kringum okkur, er ekki stemning
fyrir því?
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
Formaður FKA
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
Í næstum hundrað ára
gömlu húsi í Bolungarvík
stendur Stefanía Birgisdóttir
vaktina í Bjarnabúð. Það
voru sameinuðu verslanirnar
sem byggðu húsið árið 1918
en Verslun Bjarna Eiríkssonar
Bjarnabúð
var stofnuð 1927 og fagnar því
nítugasta rekstrarárinu á þessu
ári, geri aðrir betur. Stefanía
er fjórði skipstjóri við stýrið á
þessari víðfrægu verslun þar sem
allt milli himins og jarðar má fá,
matvöru, fatnað, bækur, ritföng
og leikföng svo fátt eitt sé nefnt.
Á efri hæð verslunarinnar er vísir
að safni með munum og gömlum
verslunarbókum alveg síðan árið
1917 og stundum fá gestir leyfi
til að kíkja upp á háaloft að skoða
gersemarnar.
Stefanía og maður hennar
Olgeir Hávarðarson tóku við
versluninni þann 1. janúar 1996
og eru enn að. Útgerð og fisk-
vinnsla fylgdu þá rekstrinum og
sinnir Olgeir því nú í smáum stíl.
Stefanía á ættir sínar að rekja til
Ísafjarðar en Olgeir er Víkari.
Að sögn Stefaníu var atvinnu-
lífið öflugra í víkinni þegar þau
tóku við, hér var fiskvinnsla,
rækjuverksmiðja og togari en
á móti komi betri samgöngur
eins og göng og malbik.
Stefanía Birgisdóttir.