Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.2017, Blaðsíða 21

Bæjarins besta - 08.03.2017, Blaðsíða 21
MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017 21 LÆKNA R MÆLA MEÐ HUSK! NÁTTÚRULYF Á SÉRLYFJASKRÁ Náttúrulegar trefjar sem halda meltingunni í góðu formi ehb@ebridde.is, www.ebridde.is HUSK fæst í apótekum, heilsubúðum og Fjarðarkaupum Vika endómetríósu stendur nú yfir á landsvísu, en um er að ræða vitundarvakningu á sam- nefndnum sjúkdómi sem einnig er þekkt sem legslímuflakk. Zontasamtökin og þar á meðal Zontaklúbburinn Fjörgyn á Ísa- firði er meðal þeirra sem styðja samtök um endómetríósu við framkvæmd vikunnar. Fjörgyn hefur að auki ákveðið að styrkja samtökin fjárhagslega og þá munu Safnahúsið og höfuðstöðv- ar Orkubús Vestfjarða á Ísafirði vera með gula lýsingu af þessu tilefni dagana 4.-10. mars auk fleiri bygginga bæði á höfuð- Vekja athygli á endómetríósu borgarsvæðinu og um landið. Um 10% kvenna hafa endó- metríósu eða um 176 milljónir kvenna í heiminum. Sjúkdómn- um geta fylgt miklar kvalir og ýmsir erfiðir fylgikvillar, þar á meðal meltingarvandræði og ófrjósemi og er greiningartími sjúkdómsins almennt langur, en meðalgreiningartími er 7-8 ár. Stuðningur og fræðsla er meginverkefni Samtaka um endómetríósu sem vinna ötullega að því að fræða almenning og heilbrigðisstarfsfólk um sjúk- dóminn. Margar konur með endómetríósu finna fyrir vantrú Gula slaufan til styrktar Samtaka um endómetríósu. annarra og þurfa enn þann dag í dag að berjast fyrir viðurkenn- ingu á líðan sinni og einkennum. Nánari upplýsingar um sjúk- dóminn og viku endómetríósu er að finna á vef samtakanna endo. is. Þar má kaupa söluvarning líkt og gulu slaufuna til styrktar samtökunum og þar má einnig finna upplýsingar um málþing sem haldið er í tilefni vitundar- átaksins í hringsal Landspítalans á miðvikudag. Einnig er hægt að styrkja samtökin beint með því að leggja inn á 0336-26-2650 og kennitala: 711006-2650. annska@bb.is Nú er orðið ljóst hvaða tónlistarfólk treður upp á stóra sviðinu á Aldrei fór ég suður 2017, en að vanda fer hátíðin fram á Ísafirði um páskana. Annað árið í röð verður rokk- að og rólað í skemmu rækjuverksmiðjunnar Kampa við Ásgeirsgötu. „Aldrei fór ég suður heldur áfram að fylgja þeirri sérstöðu að blanda saman straumum og stefnum í tónlist, konum og köllum, gömlum sem ungum, frægum og efnilegum og allt þar á milli. Þarna sjáum við indípopp, blús, pönk, lúðrastuð, þungarokk, gleðipopp, rapp, köntrí, dramatík og dans. Allir fá eitthvað, enginn fær ekkert, einn fær ekki allt,“ segir í tilkynnningunni. Í myndbandinu sem fylgir fréttinni boða Ísfirðingar og nærsveitungar gesti velkomna til Ísafjarðar um páskana ásamt því að lyfta hulunni af safaríku prógrammi hátíðar- innar. Þau sem koma fram á Aldrei fór ég suður 2017: KK band Soffía Karó Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar Mugison Kött Grá Pjé HAM Börn Sigurvegari músíktilrana 2017 Hildur Vök Emmsjé Gauti Rythmatik Valdimar Allir fá eitthvað – enginn fær ekkert!

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.