Bæjarins besta - 08.03.2017, Page 6
6 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017
Helga Guðný Kristjánsdóttir
er bóndi í Botni í Súgandafirði
þar sem hún býr og starfar með
eiginmanni sínum Birni Birkis-
syni. Sveitastörfin voru henni
sannarlega ekki ókunn er hún
fluttist vestur á firði upp úr 1980
úr Ölfusinu þar sem móðir hennar
og móðurbróðir hafi stundað
búskap. Helga segir það ekki
hafa verið neina spurningu hvert
ævistarfið myndi verða – hún hafi
alltaf ætlað sér að verða bóndi,
hún hafi í raun fæðst inn í starfið.
Helga og Björn reka einskonar
félagsbú með yngsta bróður hans,
Svavari, sem býr með fjölskyldu
sinni í Birkihlíð. Auk þeirra er
nú á bænum vinnumaður í fullu
starfi. Þau eru með um 300 fjár
sem skiptist u.þ.b. til helminga
milli bændanna og á búinu eru
um 240 nautgripir sem eru sam-
eiginleg eign, þar af um 65 mjólk-
andi kýr, mjólkaðar í mjaltaþjóni
og mjólkuðu þær rúmlega 510
þúsund lítra á síðasta ári, en
greiðslumark búsins er hins vegar
um 455 þúsund lítrar. Nautin
eru alin í yfir tvö ár og þá send
í slátrun. Allar vélar, tæki og
útihús eru sameign og jarðirnar
eru nýttar sameiginlega. Að auki
eiga þau saman fyrirtækið Bænd-
ur ehf sem svo á jörðina Fremri
Breiðadal í Önundarfirði. Það er
mikill annatími er heyskapurinn
fer fram þar sem Helga og hennar
fólk þurfa að fara um víðan völl
til að sækja hey fyrir bústofninn
sem þarf allt að 2300 heyrúllur
yfir árið og heyja þau í Súganda-
firði, Önundarfirði, Skutulsfirði
og Álftafirði.
Búskapurinn er fjölbreyttur og
meðal þess sem bændurnir sinna
er æðarvarp sem er í hólmum
við lónin neðan við bæinn og
gefur það í kringum 6 kíló af dún
árlega. Þá er á býlinu heimilis-
virkjun sem sér bæjunum nánast
alveg fyrir rafmagni bæði til bús
og heimilisnota. Einnig eiga
þau ásamt Svavari, meirihluta í
Dalsorku ehf, 550kw vatnsafls-
virkjun, sem framleiðir rafmagn
inn á veitukerfið.
Helga er sannkölluð íslensk
kjarnakona, hún og Björn eiga
saman fjögur börn sem öll eru
flogin úr hreiðrinu, tvö eldri búa
á Ísafirði og næst yngsta er bóndi
á Suðurlandinu, en sú yngsta
flutti fyrir skemmstu er hún hóf
háskólanám í Reykjavík. Helga
vinnur utan bús við veiðihúsaþrif
á sumrin og í Húsamiðjunni/
Blómaval í hlutastarfi allt árið,
hún er einnig öflug í félagsstarfi
og fer á alla bændafundi sem
hún kemst á. Helga segir þau
störf afar mikilvæg þar sem fáir
bændur séu á svæðinu og þeir
verði að standa vel saman og
gæta hagsmuna sinna.
Helga segir að konur í bústörf-
um séu bændur, sú nafngift eigi
sannarlega ekki einungis við
karlmenn. Hún segir þó skiptingu
verka breytingum háð og ekki
hafi allar konur skrokk í að djöfl-
ast í erfiðisvinnu allan daginn.
Það sé líka þannig að algengara
sé að annar aðilinn á heimilinu
vinni utan bús og í flestum til-
fellum sé það konan. Af þessu
leiði það að karlinn á heimilinu
sé oft virkari í félagsstörfunum:
„Oftast voru bara kallarnir á
öllum fundum áður fyrr, en svo
breyttist þetta og konurnar komu
sterkar inn. En núna er þetta að
fara til baka. Bændafundirnir
eru aftur meiri karlasamkonur
og ástæðan sennilega konurnar
eru í vinnu útífrá og þá dagurinn
Ég hafði stundað jóga hjá
Mörthu Ernstdóttur í nokkurn
tíma á meðan hún bjó hér
á Ísafirði. Ég féll algjörleg
fyrir þessum lífsstíl og þegar
Martha ákvað að hverfa til
annarra verka annarstaðar á
landinu þá ákvað ég að ég vildi
ekki hætta þessari ástundun
og vildi einnig leyfa öðrum
að njóta jóga.
Ég fór í jógakennaranám
hjá Jóga og blómadropaskóla
Kristbjargar og útskrifast frá
henni haustið 2013 og byrja
strax að kenna og var með
mína fyrstu aðstöðu á Hlíf ll.
Núna er aðstaðan í nýbyggðu
húsi að Mávagarði á Ísafirði.
Ég var fyrstu árin ein en það
var síðasta haust að tvær flottar
konur bættust í kennarahóp-
inn hjá Jóga-Ísafjörður, þær
Jenný Jensdóttir og Aðalheiður
Jóhannsdóttir. Í kjölfar þess
gátum við farið að bjóða uppá
mun fleiri tíma og fjölbreyttari,
hægt er að fylgjast með okkur og
sjá stundatöflu á facebooksíðu
okkar Jóga-Ísafjörður.
Ég og Jenný kennum svokall-
að Hatha jóga en Aðalheiður
kennir Asthanga jóga. Ég er
einnig að kenna jóga á einum
leikskóla hér í bænum ásamt
því að vera í klukkutíma á viku í
frístund í Grunnskólanum. Eldri
borgarar fá einnig sitt jóga, en á
miðvikudagsmorgnum kl. 11 eru
tímar uppá Hlíf ll í kjallaranum,
þar eru allir heldri borgarar vel-
komnir þeim að kostnaðarlausu,
en við gerum jóga á stólum þar.
Bæjarbúar og nágrannar hafa
tekið þessu afar vel og eru dug-
legir að mæta í jóga. Ég hef verið
með lokað yfir sumarmánuðina,
júní, júlí og ágúst þar sem
mæting hefur alltaf minnkað
þegar nær dregur sumri og fólk
fer meira út að hreyfa sig sem
er jú ein tegund af jóga að njóta
þess sem náttúran hefur uppá
að bjóða.
Undanfarin sumur hef ég ver-
ið með útijóga u.þ.b einu sinni í
viku og hittumst við þá í Blóma-
garðinum og gerum jóga. Einnig
hef ég reynt að bjóða uppá jóga
Naustahvilft a.m.k einu sinni á
sumri og verður engin breyting
á því í sumar. Minn áhugi er
að yfir sumarmánuðina muni
ég bjóða uppá gönguferðir sem
innihalda jóga og tvinna þannig
saman mín helstu áhugamál,
Helga í Botni
þeirra fulllestaður. Örugglega
ekki áhugaleysi hjá þeim.“
Helga situr sjaldnast auðum
höndum og nú eru Botnsbændur
að skoða að taka kjöt frá sláturhúsi
og vinna í neytendaumbúðir og
einnig hafa þau líka til skoðunar
að fara í ferðaþjónustubransann
með einhverjum hætti.
Helga við störf í Botni.
Upphaf þess að Jóga-
Ísafjörður varð til
göngur og jóga. En jóga er
fyrir alla, konur, karla og börn
og er jóga stundað um allan
heim í þeim tilgangi að auka
heilbrigði og andlegan þroska
hvers einstaklings. Jóga er ætl-
að að þjálfa og sameina líkama
og huga. Með því ræktum við
heilbrigði í huga og á líkama
og þannig leitumst við við að
lifa í sátt við umheiminn og
njóta lífsins til fulls.
Lifa núna.“
Gunnhildur Gestsdóttir
Gunnhildur Gestsdóttir.