Bæjarins besta - 08.03.2017, Side 22
22 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017
Finna má ævintýraglaða Ís-
lendinga víða um heim við hin
ýmsu störf og framkvæmdir.
Vestfirðingar eiga sannarlega
til líkt og aðrir að finna sér sitt
annað „heim“ í stóra heiminum
og jafnvel bókstaflega. Fyrir
skömmu sögðum við frá Bol-
víkingnum Hauki Vagnssyni
sem nú rekur Íslendingabarinn
á Pattaya í Tælandi og nú hefur
Ísfirðingurinn Harpa Henrysdótt-
ir ásamt eiginkonu sinni Steff
Hilty opnað kaffihús í Vínarborg
í Austurríki og á báðum stöðum
má næla sér í íslenskar veitingar
í nýju umhverfi fjarri Fróni.
Ekki alls fyrir löngu opnuðu
þær Harpa og Steff kaffihúsið
Home Café í menningarborginni
Vín. Undanfarna mánuði hafa
þær unnið hörðum höndum að
því að koma staðnum í rétt horf,
en áður var þar til húsa írsk
krá og þurfti talvert að taka til
hendinni til að gera staðinn að
þeim huggulega stað sem þær
dreymdi um.
Þær hjónin fluttu til Vínar síð-
asta sumar ásamt dætrunum Sig-
rúnu Aðalheiði og Hjördísi Önnu,
sem báðar eru grunnskólanemar
og byrjuðu í skóla á nýjum
slóðum síðasta haust. Harpa og
Steff voru með skýr markmið
að opna sinn eigin veitingastað
í borginni áður en þær héldu frá
Ísafirði, þar sem Steff hafði um
hríð glatt munna og maga við-
skiptavina Bræðraborgar með
eldamennsku sinni og Harpa
kenndi við grunnskólann. Eftir
að hafa fundið heppilegt húsnæði
var ráðist í framkvæmdir upp úr
áramótum. Þá voru þær þegar
búnar að ráða starfsfólk með
einni auglýsingu á Fésbókarsíðu
Íslendingafélagsins í Austurríki.
Hafa því allir starfsmenn Home
Café tengingu við Ísland, annað
hvort hafa þeir búið hér á landi
eða eru Íslendingar, þeirra á með-
al er Ísfirðingurinn, Elisabeth
Þorbergsdóttir. Það er vel við
hæfi þar sem áherslan í matnum
er íslensk, með heimagerðar og
huggulegar veitingar í fyrirrúmi
að sögn Hörpu.
Það er alveg sama hvar mað-
urinn er í heiminum staddur, alls
staðar er gott að eiga góða að og
segir Harpa að framkvæmdirnar
við staðinn hafi fyrst komist á
almennilegan rekspöl er foreldrar
hennar Henry Bæringsson, sem
dóttirin kallar stórvirku vinnu-
vélina og Jóna Benediktsdóttir,
sem tók að sér barnapíustörf,
komu til þeirra eftir áramótin.
Framkvæmdirnar fóru á flug og
var sóðalega búllan hreinsuð burt
með öllu og hratt og örugglega
fæddist fallegt kaffihús. Þær
Harpa og Steff hafa báðar áhuga
á því að gefa gömlum hlutum nýtt
líf og voru því flest húsgögn og
innanstokksmunir, sem eru frá
sjöunda og áttunda áratugnum,
meira og minna allt keypt í búð
sem heitir Carla, sem er eins og
austurrísk blanda af Góða hirðin-
um og Hjálpræðishersbúðunum.
Veggina prýða svo íslensk lands-
lagsmálverk og kort sem keypt
voru í Góða hirðinum áður en
haldið var frá Íslandi.
Harðfiskur frá Finnboga
og salt frá Saltverki
Í Vínarborg búa um 150 Ís-
lendingar sem nú geta svalað
hluta af heimþránni með því að
komast í alvöru íslenskan mat á
nýjum heimaslóðum. Íslendinga-
félagið verður með bókaklúbbinn
sinn á staðnum og í framtíðinni
fleiri viðburði á vegum félags-
ins. Staðurinn er þó sannarlega
ekki einvörðungu hugsaður
sem félagsmiðstöð Íslendinga í
Vínarborg, heldur suðupottur þar
sem menningarheimar mætast í
mat og selskap.
Af þeim íslensku veitingum
sem boðið er upp á má nefna
að ferskan fisk fá þær sendan
vikulega frá Íslandi, harðfisk
frá Harðfiskverkun Finnboga
á Ísafirði, salt frá Saltverki og
rabbbarasultu frá Kjarnavörum
fyrir bakkelsið. Svo geta gestir
gætt sér á íslenska bjórnum
Einstök, ásamt því sem boðið
er upp á bjór frá bruggfyrirtæk-
inu Brew age, sem rekur rætur
sínar til fjögurra austurrískra
stráka sem byrjuðu að brugga í
bílskúrnum heima hjá sér með
það góðum árangri að í dag
reka þeir öflugt bruggfyrirtæki
með fjölmörgum öltegundum.
Vínið kemur frá fjölskyldu sem
ræktar litla vínekru rétt fyrir utan
borgina, en Steff komst í kynni
við vínbóndann er hún beið einn
daginn eftir sporvagninum sem
hafði tafist vegna þess að einhver
lagði bílnum sínum fyrir teinana.
Hún settist þá inn á veitingastað
hjá stoppistöðinni á meðan hún
beið og fékk sér vínglas. Hún
lendir þar á spjalli við mann sem
kemur þar inn með vínsendingu
og kom þá í ljós að þar var á
ferðinni vínbóndinn sjálfur og úr
varð nýtt viðskiptasamband og
sér vínbóndinn þeim nú fyrir öllu
því rauðvíni, hvítvíni og líkjörum
sem boðið er upp á á Home Café.
Þar er svo boðið upp á úrvals
kaffi, sem er brennt og malað
í kaffibrennslu Coffee pirates
sem er staðsett í sömu götu og þá
kemur mjólkin í kaffið beint frá
býli rétt utan við borgina.
Kaffihúsið sem tekur um
fimmtíu manns í sæti er í 9.
hverfi Vínarborgar sem er frekar
miðsvæðis, það liggur að mið-
borginni með mjög góðar sam-
göngur allt í kring svo ekki tekur
nema um sjö mínútur að taka
sporvagninn úr miðbænum til
þeirra Steff og Hörpu í kaffi og
kruðerí.
Aðlögun með ágætum
„Fjölskyldan er að aðlagast
ágætlega í borginni. Það er
búið að vera nokkuð undarlegt
Systurnar Sigrún og Hjördís eru
báðar í tvítyngdum ensku/þýsku
skólum sem eru mjög alþjóðlegir,
í 20 barna bekk hjá þeirri yngri er
til dæmis bara eitt barn sem á tvo
austurríska foreldra og samtals
tala börnin 12 tungumál: „eða eins
og eitt foreldri í bekknum sagði
við mig „það er ekki hægt að vera
öðruvísi í þessum bekk, því það
Opna kaffihús
í Vínarborg
Harpa og Steff í dyragættinni á hinu nýopnaða Home Café í
Vínarborg.
Staðurinn er hinn huggulegasti eftir miklar endurbætur.
Steff við matseldina.
Íslenskar myndir úr Góða hirðinum prýða veggina.
fyrir mig að vera ekki að kenna
neitt, nema bara mínum eigin
börnum, sem eru orðin afar
leið á stærðfræðistöngli móður
sinnar, en það stendur til bóta
þar sem ég er aðeins að taka
að mér smá kennslu í íslensku
hérna svona til hliðar.“ Segir
Harpa aðspurð að því hvernig
fjölskyldan aðlagaðist að nýjum
heimkynnum: „Stelpurnar eru
að aðlagast ágætlega, þetta er
auðvitað búið að vera dálítið
erfitt, en þær eru núna farnar að
skilja þýskuna mjög vel og báðar
farnar að geta talað dálítið svo nú
kemur þetta hratt.
eru allir öðruvísi“ segir Harpa
um hið nýja umhverfi dætranna,
sem hafa verið afar liðtækar við
að koma kaffihúsinu í stand og
hönnuðu þær til að mynda barna-
matseðil staðarins.
Hægt er að fylgjast með gangi
mála á Fésbókarsíðu Home Café
og áður en langt um líður fer í
loftið heimasíðan home-cafe.at
og að sjálfssögðu munu þær taka
vel á móti Íslendingum á ferðinni
á Home Café, heimili Íslendinga
í Austurríki að heiman.
annska@bb.is
https://www.facebook.com/
ielandichome/