Bæjarins besta - 08.03.2017, Síða 30
30 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017
Kristín B. Albertsdóttir, er
forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Vestfjarða. Þar stendur hún
í brúnni í aðalstöðvunum á
Ísafirði en starfsemi stofn-
unarinnar nær yfir stærstan
hluta fjórðungsins og veitir
almenna heilbrigðisþjónustu í
sveitarfélögunum Vesturbyggð,
Tálknafjarðarhreppi, Ísafjarðar-
bæ, Bolungarvíkurkaupstað og
Súðavíkurhreppi.
„Sá rekstur sem ég stýri lýtur
að heilbrigðisþjónustu og eru
daglegu störfin afar fjölbreytt,
s.s dagleg stjórnun, stjórn-
sýsla, fundir, starfsmannamál,
skipulagmál, o.fl. Hlutverk mitt
sem forstjóri er að miklu leyti
bundið í lög, en samkvæmt lög-
um um heilbrigðisþjónustu ber
forstjóri ábyrgð á að stofnunin
starfi í samræmi við lög, stjórn-
valdsfyrirmæli og erindisbréf
sem ráðherra setur forstjóra.
Þá ber forstjóri ábyrgð á þeirri
þjónustu sem stofnunin veitir og
að rekstrarútgjöld og rekstraraf-
koma stofnunar sé í samræmi við
fjárlög og að fjármunir hennar
séu nýttir á árangursríkan hátt,
en fjárlög ársins nema rúm-
um tveimur milljörðum.“ Segir
Kristín um víðfeðmt starf sitt,
en til viðbótar við þetta bætist
að forstjóri ber einnig ábyrgð
á ráðningu starfsliðs stofnunar,
þar sem starfa að jafnaði um
250 manns. Framkvæmdastjórn
stofnunar starfar undir yfirstjórn
forstjóra, en þar eiga sæti, fram-
kvæmdastjóri lækninga og fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar og aðrir
faglegir yfirmenn eftir atvikum.
Ábyrgð forstjóra er því mikil og
verkefnin margþætt.
Kristín hóf störf við Heil-
brigðisstofnun Vestfjarða þann
1.nóvember síðastliðinn. Hún
er starfinu sem slíku ekki ókunn
þar sem þrjú árin þar á undan
gegndi hún samskonar starfi hjá
Heilbrigðisstofnun Austurlands.
Starfið á gólfinu þekkir hún
líka vel af eigin raun þar sem
hún er menntuð sem hjúkrunar-
fræðingur í grunninn og starfaði
sem slíkur í mörg ár. Kristín
lærði síðar lögfræði og er með
lögmannsréttindi. Hún vann
sem lögfræðingur í nokkur ár
eða til 2013 er hún tók við sem
forstjóri HSA. Þá er hún einnig
lærður jógakennari og kenndi
jóga samhliða starfi þar til hún
flutti vestur.
Kristín, sem er fædd árið 1963,
er Austfirðingur í húð og hár,
Fáskrúðsfirðingur nánar tiltek-
ið. Vestfirðir eru henni þó alls
ekki með öllu framandi slóðir
en maður hennar er Birkir Þór
Guðmundsson f. 1964 frá Hrauni
á Ingjaldssandi. Um flutninginn
til Ísafjarðar segir Kristín það að-
allega komið til af því að Birkir,
sem á þeim tíma var með skrif-
stofu í Hafnarfirði, var kominn
með nokkur verkefni á Vestfjörð-
um í vinnslu. Hún var hins vegar
að vinna á Austurlandinu svo þau
sáu fram á mikla fjarbúð næstu
misserin - eins og samgöngum
er háttað milli Vestfjarða og
Austfjarða: „Þegar ég sá stöðuna
auglýsta ákvað ég að sækja um,
eftir nokkra umhugsun og fékk
starfið. Birkir hafði jafnframt tök
á að flytja starfsstöð sína vestur,
svo hingað erum við komin.“
Kristín og Birkir eiga saman
talið átta börn, sem flest hver
eru komin í fullorðinna manna
tölu. Börn Kristínar eru þrjú á
aldrinum frá 20-27 ára og á hún
jafnframt eina tengdadóttur og
barnabarn. Birkir á fimm börn
á aldrinum 11 – 31 árs. Öll eru
börnin búsett í Reykjavík.
Fjölþætt verkefni
forstjóra HVEST
Kristín B. Albertsdóttir.
Kristín segist ekki sjá eftir að
hafa tekið sig upp og flutt vestur á
firði: „Við Birkir eru bæði mikið
dreifbýlisfólk og erum mjög sátt
við að vera flutt hingað vestur.
Við vildum gjarnan geta búið
á Ingjaldssandi, en við eigum
jörðina Hraun í dag. Þangað er
hins vegar jafnan ófært og sjaldan
rutt svo erfitt væri að sækja vinnu
þaðan yfir vetrarmánuðina.“
Aðspurð um hvort hún telji
vera mun á að vera kona eða karl
í stjórnunarstöðu sem þessari
segist Kristín ekki telja svo vera:
„Nei, það held ég ekki. Stjórn-
endur eru mismunandi, hvor sem
þeir eru karlar eða konur. Ég held
að persónubundnir þættir, s.s.
persónuleiki, menntun og reynsla
hafi meira vægi en kynferði.“
Vélsmiðjan Þristur hf var
stofnuð á Ísafirði þann 1.mars
1986. Stofnendur voru hjónin
Óli Reynir Ingimarsson og
Vélsmiðjan Þristur - Hefur
vaxið og dafnað í 30 ár
Bjarney Guðmundsdóttir ásamt
fyrirtækjunum Hraðfrystihúsinu
Norðurtanginn hf, og Íshúsfélagi
Ísfirðinga. Fyrirtækið var byggt
upp á því að þjónusta sjávarút-
vegsfyrirtæki og útgerð, á Ísafirði
og í nágrenni, þar sem helstu
verkin voru nýsmíði úr ryðfríu
stáli, svo sem fiskvinnslulín-
ur og önnur nýsmíði. Þar var
einnig sinnt viðgerðum og unnin
allra handa málmsmíði fyrir
byggingarverktaka og einstak-
linga.
Fyrirtækið hefur vaxið vel
og dafnað og árið 1994 var
byggt við húsið og vélsmiðjan
stækkuð ásamt því sem opnuð
var véla- og verkfæraverslun
undir sama þaki. Árið 1999
eignuðust Óli og Bjarney allt
fyrirtækið og breyttu þau því þá í
einkahlutafélag. Í ágúst árið 2004
stækkaði fyrirtækið enn frekar
þegar það opnaði aðra verslun
að Silfurgötu 5, þar sem verslað
var með heimilistæki, stór sem
smá, auk mikils úrvals af ljósum
og miklu úrvali af gjafavöru. Þar
var reistur grunnurinn að verslun-
inni Þristi-Ormsson sem í dag er
mikil bæjarprýði á Ísafirði, mitt
í miðbænum.
Það var mikið í gangi á ár-
inu 2006, því að þá var ráðist
í að kaupa húsnæði sem áður
hýsti hinn margfræga Sjalla, við
Hafnarstræti 12 á Ísafirði. Ærið
verk var fyrir höndum og var allt
rifið innan úr húsnæðinu og það
gert fokhelt. Framhliðinni var
breytt, nýir gluggar og hurð sett
í ásamt því sem gólfið var fært
niður í götuhæð. Hönnuðir að
breytingum ásamt innréttingum
voru úr röðum fjölskyldunnar.
Þar var opnað þann 3.nóvem-
ber 2006, með breiðri línu af
heimilstækjum, sjónvörpum,
hljómflutningstækjum, ljósum
ásamt gjafavöru frá Rosendahl,
Georg Jensen og fleiri þekktum
aðilum.
Hjónin Aðalheiður Óladóttir
og Kristinn Mar Einarsson
keyptu svo Vélsmiðjuna Þrist
þann 1.mars 2016, en þau höfðu
unnið hjá fyrirtækinu allt frá
árinu 2002. Enn hefur verið
bætt við úrvalið af gjafavöru,
og eru þau að flytja inn danskar
vörur frá Home art, Zone,
Galzone og KJ collection.
Einnig er mikið og gott úrval
af vörum frá iittala, gott úrval
af heimilistækjum frá AEG og
sjónvörpum frá SAMSUNG.
Aðalheiður segir áherslu
hennar vera á að fyrirtækið sé
vel rekið, og að viðskiptavinir
þeirra fái góða og persónu-
lega þjónustu, hvort sem er í
Vélsmiðjunni eða í verslunum
þeirra í Sindragötu 8 og í
Hafnarstræti 12. Vélsmiðj-
an Þristur hefur verið á lista
Creditinfo sem Framúrskarandi
fyrirtæki á Íslandi árin 2015 og
2016, og segir Aðalheiður þau
mjög stolt af þeim góða árangi.
Aðalheiður og Bjarney.