Bæjarins besta - 10.01.1996, Page 3
Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson, skólastjóri Grunnskólans
á ísafirði hélt fyrir stuttu endurmenntunarnámskeið á vegum
Kennaraháskóla íslands um samskipti heimila og skóla og fékk
fyrir vikið „rós í hnappagatið” frá tímaritinu „Heimili og skóli”
sem gefið er út af Landssamtökum foreldra. A námskeiðinu sem
eingöngu var ætlað skólastjórum, umsjónarkennurum og öðrurn
þeim sem tjalla um samskipti heimila og skóla á grunnskólastigi,
voru fluttir ýmsir áhugaverðir fyrirlestrar m.a. af Kristni
Breiðfjörð, sem fjallaði um sögu og hugmyndafræði samskipta
heimila og skóla, rannsóknir á því sviði, boðskipti milli heimila
og skóla, og stefnumótun skóla í samvinnu við foreldra. Til að
forvitnast aðeins og hugtakið Heimili og skóli auk annarra hluta
því tengdu sló blaðið á þráðinn til Kristins og spurði fyrst um
hvað hugtakið heimili og skóli merkti?
„Heimili og skóli eru samtök grunnskólanna og þar eiga
foreldrafélögin líka aðild að. Samtökin hafa sínar bækistöðvar í
Reykjavík og er Unnur Halldórsdóttir formaður þeirra. Samtökin
gefa út blað sem heitir Heimili og skóli og þetta er það sem ég
get sagt sér um þetta félag í stuttu máli. Markmið samtakanna er
fyrst og fremst að vinna að bættum samskiptum á milli heimila
og skóla auk aðstoðar við foreldra. Unnur er í þessu sambandi
væntanleg til ísafjarðar þann 11. janúar og mun hún halda fund
með stjórn foreldrafélagsins og tengiliðum þ.e. fulltrúum foreldra
í hverjum bekk. Annað sem er á döfinni hér heinta er t.d. það að
fimmtudagskvöldið 18. janúar, verður fræðslufundur þar sem
Sæmundur Halldórsson, sálfræðingur mun halda fyrirlestur fyrir
foreldra auk þess sem hann mun halda fyrirlestur fyrir kennara
daginn eftir, á starfsdegi kennara. Aðalþemað þar verður agi og
uppeldi og er hér um samstarfsverkefni að ræða á milli skólans
og foreldra.”
-Hvernig hafa samskiptin verið á milli skólans og heimila á
ísafirði?
„Eg get ekki lalað um fortíðina, einungis það sem lifir af vetri.
Eg get ekki sagt annað en að þau hafi gengið ágætlega, samskiptin
hafa að vísu ekki verið mjög mikil, en þó held ég að við séum að
feta okkur áfram. Strax í haust settum við okkur þau markmið að
reyna að vinna að þessum málum og réðum til þess tvo fulltrúa
innan kennaraliðs skólans. Þótt starfið hafí ekki verið mikið er
það von okkar að þetta sé vísirinn að öflugara starfi.”
-Er eitthvað sem er sérstaklega ábótavant varðandi samskipti
heimila og skóla á Isafirði?
„Þetta er fag innan stjórnunarfræðinnar sem ég hef verið að
skoða svolítið í sambandi við mitt nám og ég var búinn að gera
rannsókn í þessum efnum, sent reyndar beindist að mestu að
suðvesturhorninu. Eg get því
ekki sagt að neitt hafi komið
mér sérstaklega á óvart héma,
þetta er ósköp venjulegt stórt
sjávarþorp og þar finnum við
allan regnbogann livað það
snertir. Ég finn eindreginn áhuga hjá foreldrum og höfum gert
nokkuð að því að fá foreldra inn í skólann þegar að við höfum
þurft að ræða málefni einstakra nemenda og það er mjög vel
tekið í það, og það sýnir að fólk er þakklátt fyrir þetta starf. Það
er mjög gott að vinna með fólki hérna.”
-Nú hefur verið mikil umræða um aukna fíkniefnaneyslu á
meðal unglinga á grunnskólastigi. Hvernig er ástandið hér?
„Eins og ég sagði áðan þá hef ég enga viðmiðun þannig að ég
get ekki sagt til um það. Ég get ekki sagt að ég verði var við
fíkniefnaneyslu í skólanum en eftirstöðvar eftir neyslu geta
verið og eru þannig að erfitt er að greina þær. Má þar nefna t.d.
þunglyndi. Við erum töluvert inni í slíkum málum hjá nemendum
og m.a. er búið að ráða félagsráðgjafa frá áramótum, sem aftur
kemur til með að starfa með sálfræðingi. Það er erfitt að greina
á milli þunglyndis, hvort unglingurinn hafi verið í einhvetri
neyslu eða hvort þunglyndið stafar af einhverjum öðrum ástæðum,
en við vitum að samfara áfengis- og fíkniefnaneyslu fylgir oft
þunglyndi,” sagði Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson.
Sundlaug Flateyrar
Símf 456 7738
Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga
fimmtudaga og föstudaga kl. 17 - 21
Laugardaga kl. 11 - 16
Sunnudaga LOKAÐ ^
Gufubaðið er opið á
laugardögum kl. 12 - 16.
V°V.
%
7>/
Kaffi á könnunni
Verið velkomin!
Ctsala’-
m-m
afsláttur
Hefst fimmtudaginn
11. janúar kl. 13.00
Fatnaður og efni /m x
Ótrúlegt úrval LdUjlð
Nýtt kortatímabil
Aikihtrœti 21 • Simi 456 7326 • Bolungarvík
MIÐVIKUDAGUR 10. JANUAR 1996
3