Víðförli - 15.05.1983, Qupperneq 9
Þjónustumiðstöðin á Hvammstanga sem hýsir sóknarprest, sýslumann, tannlækni og fleiri.
— Hvernig hagar þú kirkjustarf-
inu, séra Guðni?
„Stærsta sóknin er Hvammstanga-
sókn sem er rúmlega 600 manns. Þar
er messað annan hvern sunnudag og
er barnaguðsþjónusta fyrir hádegi
messudagana. Hina sunnudagana
er svo messað til skiptis á hinum kirkj-
unum þremur, Melstað, Staðar-
bakka og Efra-Núpi. Um 250 manns er
í Melstaðarsókn, 150 manns eiga
sókn að Staðarbakka en aðeins um
50 manns á Efra Núpi. Reyndar eru
aðstæður nokkuð sérstakar, að Stað-
arbakki og Melstaður liggja samtýn-
is og eru í rauninni í sömu byggð.
Sumir sóknarmenn Efra-Núpssóknar
eiga svo styttra að Staðarbakka en
að eigin kirkjustað. Því hefur það orð-
ið að sami kirkjukórinn syngur við
sveitakirkjurnar þrjár og Ólöf Páls-
dóttir á Bessastöðum er organisti.
Kórarnir eru sérstaklega kraftmikl-
ir og báðir organistarnir mjög hæfir
og áhugásamir, bæði Ólöf og Helgi S.
Ólafsson, á Hvammstanga. Þar við
bætist að kirkjunar eru allar sérlega
vel búnar og hirtar og bera vitni
rausnarhug sóknarfólksins. Staðar-
bakkakirkja er t.d. nýuppgerð. Söng-
ur og ytri búnaður kirkjuhússins eflir
sannarlega guðsþjónusturnar, en
ekki er víst að sama verði sagt urr
prestinn. “
— Þú kemur frá Vestmannaeyj-
um Herbjört og sr. Guðni úr Hvols-
hreppnum í Rangárvallasýslu.
Hvað finnst ykkur helst einkenn-
andi fyrir mannlífið norðan heiða?
„ Öll byggðarlög hafa sinn brag og
ekki gott að bera saman. Félagslíf er
yfrið nóg og það fer ekki fram hjá
neinum hvað um er að vera eins og
oft verður í þéttbýlinu. í vetur hafa
verið margvísleg námskeið, í leiklist,
félagsstörfum, dansmennt, skatta-
framtali, svo að eitthvað sé nefnt og
svo er hið þróttmikla sönglíf. Nú er
líka að fara af stað starf meðal aldr-
aðs fólks. Það hefur verið opið hús
með kaffi og dagskrá þar sem fólk
getur hist og rabbað saman. Þetta er
gert eftir mynstri Rauða krossins og
Guðni hefur átt aðild að þessu í sam-
starfi við Rauða krossinn á Hvamms-
tanga."
— Nú er það oft vandamál fyrir
konur sem giftar eru prestum að
þær flytja með mönnum sínum á
staði þar sem þær geta ekki nýtt
sína sérmenntun, sumar hafa jafn-
vel háskólapróf. Spurningin er því
gjarnan hver á að fylgja hverjum
Herbjört?
„Þetta er ekkert gamanmál í ýms-
um tilfellum. Það fellur ekki undir
jafnrétti heldur almenn mannrétt-
indi að fá að vinna við verkefni sér að
hæfi. Ég hef nú verið svo upptekin
við að fjölga börnum og koma upp
heimili á tveimur stöðum að það hef-
ur ekki reynt á það að finna sér starf
utan heimilis. Reyndar held ég að
bókasafnsfræðingar séu tiltölulega
vel settir hvað þetta áhrærir, það eru
víða almenningsbókasöfn, skólasöfn
og pappírsflóðið er alltaf að aukast
og þeir geta nýst við skrásetningu og
skjalavörslu hjá fyrirtækjum. Það
hefur verið ymprað á því við mig að
koma og vinna við mitt fag, ég sé nú
til í haust. “
— Hefur þú haldið áfram guð-
fræðirannsóknum hér á Melstað sr.
Guðni?
„Ekki ennþá. Hugurinn er allur
bundinn við það að koma sér fyrir og
finna sinn stað í söfnuðinum. Við
erum byrjuð að húsvitja eftir þvi sem
færð hefur leyft og förum þá gjarnan
saman hjónin. Ég stefni að því að
húsvitja öll sveitaheimilin í ár. Okkur
hefur verið tekið forkunnar vel og
þetta hefur verið mjög lærdómsríkt
og uppörvandi. Ég held að fólk vilji
að það sé húsvitjað reglulega. Að
minnsta kosti sagði maður við mig á
einum bænum: Sjáumst við ekki
hérna að ári?
Mig langar að koma barnastarfinu
á góðan grundvöll. Ég hef verið að
huga að samnýtingu ferða með börn-
in úr sveitunum inn á Hvammstanga
í kirkjuskóla eða barnaguðsþjónust-
ur. Og auðvitað ættu Hvammstanga-
börn að heimsækja sveitakirkjurnar
líka. En þetta starf þarf að vera reglu-
bundið, við skuldum börnunum það,
svo traustir kirkjugestir sem þau eru.
Það er líka skylda safnaðarins að sjá
um skírnarfræðsluna að sínu leyti.
Svo er þörf að auka tengslin í söfnuð-
um og safnaðarvitund, t.d. með út-
gáfu safnaðarblaðs eða með safnað-
arsíðu í Víðförla. Þetta er allt í deigl-
unni. Við höfum aðeins verið hér í
fjóra mánuði. í haust flytjum við inn í
nýja einingahúsið frá Siglufirði sem
verið er að byggja á Melstað. Þá lýk-
ur þessum bráðabirgðabúskap og ég
vonast til að taka sæmilega til hend-
inni í safnaðarstarfinu. Maður er
sannarlega ekki einn. Sóknarnefn-
dirnar, undir formennsku þeirra
Brynjólfs Sveinbergssonar á
Hvammstanga, Böðvars Sigvalda-
sonar á Barði, Benedikts Guðmunds-
sonar á Staðarbakka og Guðmundar
Þorbergssonar á Neðra Núpi, sem
eru í forsvari þeirra í Efra Núpssókn,
vilja að haldið sé áfram góðu starfi
forvera minna og heldur auka það.
Þeir eru stórhuga Húnvetningar, ég
vona að ekki sitji eftir skuturinn hjá
mér. “
Kirkjurnar í Melstaðaprestakalli eru vel búnar. Hór sést úr Hvammstangakirkju.
VÍÐFÖRLI - 9