Víðförli - 15.12.1988, Side 3

Víðförli - 15.12.1988, Side 3
Kvenprestum fjölgar Á haustdögum hafa þrjár konur verið vígðar til prestsþjónustu, þær sr. Þórhildur Ólafs til starfa innan þjóðkirkjusafnaðarins í Hafnar- firði, sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir sem verður aðstoðarprestur í Selja- sókn og sr. Sjöfn Jóhannesdóttir sem mun vera í at'leysingaþjónustu í Kolfreyjustaðarprestakalli. Sr. Þór- hildur Ólafs mun i framtíðinni starfa við hlið manns síns sr. Gunnþórs Ingasonar í Hafnart'irði og sr. Sjöfn verður grannprestur eiginmanns síns sr. Gunnlaugs Stefánssonar í Hey- dölum. Þriðju hjónin hafa tekið prestsvígslu, þau sr. Hanna María Pétursdóttir og sr. Sigurður Árni Þórðarson rektorshjón í Skálholti. Nokkrar konur í prestsþjónustu eru giftar guðfræðingum og nokkur hjón stunda nám í guðfræðideild Háskólans sarnan, þannig að búast má við því að fleiri prestshjón í orðs- ins fyllstu nrerkingu verði að störf- um innan kirkjunnar í framtíðinni. Kristnihald undir jökli „Það er yndislegt að eiga aðgang að bænahópi úti í þorpinu, þar sem beðið er fyrir kirkjulegu starfi og prestinum. Það veitir mikinn styrk og ómetanlegt að geta verið með í slíkum hóp, án þess að þurfa að vera í forystu sem svo oft er hlutverk prestsins,“ sagði sr. Friðrik Hjartar í Ólafsvík í stuttu viðtali við Víðförla. „Það er margt gott að gerast í trú- málum í Ólafsvík. I nokkrum bátum er skál með mannakornum og biblía á matborðinu. Menn eru þá að fletta upp í henni á frívakt, og rabba um efnið. Stundum er einmitt kokkur- inn mikill fræðari um þessi efni.“ Sr. Friðrik Hjartar Þá má geta þess að innan eins fisk- vinnslufyrirtækis byrja menn vinnu- daginn með biblíulestri og bæn fyrir öllum atvinnurekstri á staðnum. Ungt fólk með hlutverk er starfandi í Ólafsvík, kirkjurækið fólk og styð- ur prestinn vel. Þau hafa opinn bænahóp á hverju sunnudagskvöldi. Og meðhjálparinn, Guðni Sumar- liðason býður tvisvar i viku til bæna- og biblíuhóps heima hjá sér. Kirkju- kaffi er eftir messu, sem foreldrar fermingarbarnanna sjá um, þau taka á móti fólki, annast veitingar og ganga frá. Samþykkt var að ekki skyldi bjóða upp á tertur heldur molakaffi. En foreldrarnir fundu út að undir þá skilgreiningu falla konfektmolar svo að kirkjukaffið er vinsælt samfélag, menn njóta veit- inga og góðra umræðna." Fræðslunámskeið fyrir sóknarnefndir Þátttakendur á námsskeiði á Hólmavík ísumarfyrir sóknarnefndarfólk og aðrastarfs- menn kirkjunnar á vegum Húnavatnsprófastsdæmis. Leikmannastefna kirkjunnar hef- ur hvatt til þess að gengist verði fyrir námskeiðum fyrir leikmenn sem starfa fyrir kirkjuna. Er þar vísað til námskeiða sem Kjalarnesprófasts- dæmi stofnaði til fyrir skemmstu all- víða um prófastsdæmið. Fleiri prófastsdæmi hafa nú efnt til slíkra námskeiða. í Húnavatns- prófastsdæmi voru þau tvö, bæði á Húnavöllum og Hólmavík, og i Ey- jafjarðarprófastsdæmi kom um 70 manns saman í safnaðarheimili Glerárkirkju. Voru þar einkum sóknarnefndarmenn en einnig með- hjálparar, hringjarar og kirkjuverð- ir. Þeir sr. Bernharður Guðmunds- son fræðslustjóri og Helgi Hjálms- son viðskiptafræðingur form. Leik- mannaráðs kynntu Eyfirðingum drög að nýju erindisbréfunum fyrir sóknarnefndir, ný form fyrir reikn- inga kirkju og safnaða og starfs- skýrslu sóknar. Miklar og fjörugar umræður urðu um starfshætti kirkj- unnar og komu fram margar óskir um fleiri námskeið fyrir forystu- menn í leikmannastarfi, sérílagi var hvatt til þess að komið yrði upp smá- hópum í söfnuðunum, t.d. umræðu- hópum og Biblíuleshópum. Var litið til nýstofnaðrar fræðsludeildar kirkjunnar um aðstoð í því et'ni. Sr. Birgir Snæbjörnsson prófastur stýrði námsstefnunni. Héraðssjóður greiddi allan kostnað. VÍÐFÖRLI — 3

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.