Víðförli - 15.12.1988, Blaðsíða 32
í fréttum
„Prestakirkja”-
„Leikmannakirkja”
Tekist á við sorg
„Þetta er svo augljóslega hlutverk kirkjunnar, við getum gert
svo mikið og það er eftir því beðið“ sagði sr. Sigfinnur Þorleifs-
son prestur á Borgarspítalanum, formaður samtaka um sorg og
sorgarviðbrögð. Hann hefur undanfarið komið á fundi víðsvegar
um landið og fjallað um viðbrögð manna við miklum missi, um
sorg og sorgarviðbrögð.
Prestar endast vel á
Austfjörðum
Séra Sigmar Torfason á Skeggja-
stöðum á Bakkafirði hefur látið af
prestsþjónustu, en hann hefur verið
sóknarprestur þar í 44 ár og prófast-
ur Múlaprófastsdæmis í 23 ár.
Sr. Gunnar Sigurjónsson var vígð-
ur til Skeggjastaða nú í sumar.
Sr. Einar Þór Þorsteinsson á Eið-
um hefur verið skipaður prófastur
Múlaprófastsdæmis. Hann hefur
þjónað þar eystra frá vígslu sinni
1956.
Það má segja að prestar endist vel
í prófastsdæminu. Séra Sverrir
Haraldsson vígðist til Borgarfjarðar
eystra 1964, sr. Bjarni Guðjónsson til
Valþjófsstaðar 1965 og sr. Vigfús
Ingvar Ingvarsson til Egilsstaða
(Vallaness) 1976 og starfa þar allir
enn.
Þess má geta að nágrannaprófast-
urinn sr. Þorleifur Kjartan Krist-
mundsson hefur þjónað á Kolfreyju-
stað frá vígslu sinni 1955.
Nýir æskulýðsfulltrúar
Ragnheiður Sverrisdóttir djákni
hefur verið ráðin æskulýðsfulltrúi
Reykjavíkurprófastsdæmis. Er það
hálft starf, en Ragnheiður annast
einnig safnaðarstarf í Fella- og Hóla-
kirkju. Carlos Ferrer guðfræðingur
starfar nú sem æskulýðsfulltrúi
Akureyrarkirkju, það er 60% starf
fyrst um sinn.
Námsskeið fyrir starfsfólk í
barna og unglingastarfi
Að vanda hefur æskulýðsstarf
kirkjunnar gengist fyrir námsskeið-
um fyrir núverandi og væntanlega
starfsmenn í barna og unglingastafi
kirkjunnar. Megin námskeiðið var
haldið í Skálholti og var fjölsótt og
voru meðal kennara þar leikararnir
Gunnar Eyjólfsson og Baldvin Hall-
dórsson sem tóku skemmtilega á því
að hjálpa fólki að flytja mál sitt
skörulega og koma boðskapnum
þannig til skila. Auk þess kenndi
Ragnar Snær Karlsson leikbrúðu-
gerð og Finn Wagle frá Noregi ræddi
um fræðsluefni fyrir börn. Starfs-
menn æskulýðsstarfsins hafa síðan
haft námskeið vestur á fjörðum og á
austurlandi og víðar.
Sr. Sigfinnur hefur nýverið haldið
fundi með starfsliði heilsugæslu-
stöðva, lögreglu og grunnskóla í
Ólafsvík og Grundarfirði, að frum-
kvæði sóknarprestanna sr. Jóns
Þorsteinssonar og sr. Friðriks Hjart-
ar. Umræður voru miklar enda fást
allir þeir sem sinna umönnun fólks
við þann vanda sem skapast þegar
fólk verður fyrir miklum missi. Mik-
ill áhugi kom fram um meira sam-
starf og innbyrðis stuðning starfs-
greinanna, m.a. í formi miðlunar á
upplýsingum.
Sr. Sigfinnur hefur ítrekað verið
með fundi og námskeið á Akureyri
og í Keflavík og beiðnir hafa komið
víðar að um námskeiðahald síðar í
vetur.
í Keflavík eru starfandi hópar
fólks sem tekst á við sorg sína undir
Ieiðsögn sóknaprestsins sr. Ólafs
Odds Jónssonar. Hann hefur þann
hátt á, að vinna fyrst með fjölskyld-
unni sem orðið hefur fyrir missi og
beina henni siðar inn í sorgarhóp.
„Slíkt form er vænlegt til árang-
urs“ segir sr. Sigfinnur „því að það
er mikið mál að stefna saman
ókunnugu fólki sem býr við vanda.
Leiðsögnin verður að vera ákaflega
næm og stefnuföst. En slíkum hóp-
um þyrfti að fjölga, þeir eru nauð-
synlegir og verða að finna sér farveg
innan safnaðarstarfsins.“
32 — VÍÐFÖRLI