Víðförli - 15.12.1988, Side 30

Víðförli - 15.12.1988, Side 30
Skapandi virkni og hvíld Nýverið fór ég á ráðstefnu um trú, heilsu, kirkju og samfélag, sem haldin var í nágrenni Bergen. Mér fannst eftirtektarvert hve Norðmenn eiga sterkar rætur í trúarlegum arfi. Það einkenndi alla umfjöllun þeirra , bæði lækna, heilsugæslufólks og presta. Að baki var kristinn mannsskilningur, heildarskilningur á mann- innum, sem er allt í senn líkami, sál og andi. Sr. Ólafur Oddur Jónsson Hvíld er forsenda sköpunar Ég ætla aðeins að segja ykkur frá einu atriði sem fjallað var um á ráð- stefnunni. Mártha von Holst, hjúkr- unarfræðikennari, fjallaði um skap- andi virkni og hvíld. Það má vel vera að hún hafi gripið mig hvað mest, þar sem ég kom þreyttur til ráðstefn- unnar. Hún lagði áherslu á að hvildin væri forsenda fyrir því að vera skap- andi. Það verður að vera jafnvægi milli þess sem við tökum og gefum síðan af okkur, milli hvíldar og virkni. Á daginn gefum við af okkur, tökum til hendi og erum virk, en nóttin er sá tími þegar við tökum á móti, hvílumst og hlöðum geymana. Nóttin veitir okkur frelsi frá ábyrgð og áreynslu. Nóttin takmarkar þann- ig ábyrgðina. Það er engin þörf á því að við séum stöðugt áhyggjufull og á vakt. Öllu er afmörkuð stund Nú á tímum er það æ algengara að fjölskyldur njóti ekki uppbyggilegra stunda eins og áður fyrr. En það að hvílast og taka á móti er jafn mikil- vægt og að vera virkur og gefa af sér. Það að una einn með sjálfum sér er ekki síður mikilvægt en að vera í samfélagi við aðra. Þögnin er jafn mikilvæg og samtalið. Allt hefur sinn tíma segir prédikarinn. „Öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma. Að fæðast ehfur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma, að gróðursetja hef- ur sinn tíma og að rífa upp, sem gróðursett hefur verið hefur sinn tíma“. (Préd. 3:1-2) Að starfa hefur sinn tíma og hvíl- ast hefur sinn tima. Það kemur sér vel að hálft líf okkar er nótt og svefn, ekki bara líkamans vegna, heldur alls persónuleikans og endurnýjunar hans. Kvöldbænin er mikilvæg í þessu sambandi. Hvert kvöld felum við okkur forsjá Guðs og það hjálpar okkur að slaka á. Nóttin verður þannig lækningarmeðal. Hún eykur hvíldina og friðinn í lífi okkar. Margir hafa ef til vill heyrt getið um Helder Camara erkibiskup í Brasiliu. Hann byrjar daginn með bæn og hugleiðslu. „Láttu hjarta þitt hvílast á nóttunni“, segir hann, „og fel líkama og sál í Guðs hendur“. Frá fyrstu tíð höfum við haft hvíldardaginn, sabbatinn, eins og Gyðingar kalla hann. Guð hvíldist hinn sjöunda dag af verki sínu segir í 1. Mósebók og hann blessaði hinn sjöunda dag og helgaði hann (1. Mós. 2:3). Þessi samhljóman sköpunar- verksins hefur fylgt mannkyni allt fram á þennan dag. Mönnum er ætl- að að safna kröftum fyrir komandi viku á hvíldardeginum. Tímar skapandi hvíldar Martha von Holst, sem hefur starfað í Afríku, vitnaði einnig í Nt. máli sínu til sönnunar. Ef við Iítum á Nt. þá einkenndist líf Jesú af virkni og því að draga sig í hlé. í Markúsarguðspjalli 6. kafla, (31. versi) fáum við áform hans um að hvílast, áform um kyrrðardaga: „Hann sagði við þá: Komið þér nú á óbyggðan stað, svo við séum einir saman, og hvílist um stund. En fjöldi fólks var stöðugt að koma og fara, svo þeir höfðu ekki einu sinni næði til að matast.“ Jesús skildi að við höfum öll þörf fyrir kyrrðina og hvíldina til þess að safna kröftum. Hann er okkar fyrirmynd í þeim efn- um að hvíla líkama og sál. Heimsókn hans til Mörtu og Maríu gefur einnig til kynna nauðsyn hvíldarinnar. Við þurfum að sitja við fætur meistarans til þess að hvílast og fá aðra vídd yfir líf okkar og aðstæður. Jesús segir að María hafi valið góða hlutann. En höfum við valið góða hlutann? Jesús notaði einnig dvölina í eyði- mörkinni. Það voru ekki andlegir þurrkatímar eins og margir ætla. Það voru tímar skapandi hvíldar. Er tíminn eilíft kapphlaup? Eflaust höfum við rangtúlkað, nú á tímum, þessa hvíldarstundir Jesú. Við skynjum tímann á annan hátt. Tímaskynjunin er mismunandi í ólíkum menningarheimi. í Afríku verða menn að upplifa tímann. í hinu hefðbundna samfélagi í Afríku reikna menn aðeins með núinu, framtíðin er ekki inni í myndinni. Á okkar tímum er tíminn peningar og eilíf kauptíð. Nær allt öðlast pen- ingagildi. Tíminn og klukkan verða sem þrælahaldarar. Flestir eru í 30 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.