Víðförli - 15.03.1995, Side 9
Tómas Torfason
Stundin er komin!
Alþjóðlegt kristnibobsátak Billy Graham
Hinn 16.-18. mars næstkomandi
standa samtök Billy Graham fyrir
alþjóðlegu kristniboðsátaki undir
yfirskriftinni: Stundin er komin!
(The time is now!) Átak þetta er
tvíþætt. Annarsvegar er um að
ræða samkomuröð, svipaðri þeim
sem voru m.a. í Neskirkju og
Breiðholtskirkju vorið 1993 og
margir muna eftir. Hinsvegar er
um að ræða ráðstefnu ætlaða leið-
togum og starfsmönnum í kristi-
legu starfi.
Samkomuröb
Haldnar verða þrjár samkomur á
Púertó Ríkó þar sem Billy Graham,
hinn þekkti bandaríski predikari, mun
predika. Víðsvegar um heiminn, eða í
u.þ.b. 150 löndum, verða samtímis
haldnar samkomur sem tengdar verða
samkomunum á Púertó Ríkó með
hjálp breiðtjalds og nýjustu gervi-
hnattatækni.
Hér á landi verða samkomumar
haldnar í nýju íþróttahúsi Knatt-
spyrnufélagsins Fram, Safamýri 26,
Reykjavík, og í Glerárkirkju á Akur-
eyri. Þær byrja kl. 20:00 og er áætlað
að þær standi yfir í um tvær klukku-
stundir í senn.
Ásamt Billy Graham munu koma
fram á hátíðinni margir af fremstu
flytjendum kristilegrar tónlistar.
Predikunin frá Púertó Ríkó verður
túlkuð á íslensku.
Auk dagskrárinnar að utan verða
samkomurnar prýddar innlendum
dagskráratriðum.
Samkomurnar eru fyrst og fremst
miðaðar við að ná til fólks sem sækir
sjaldan guðsþjónustur eða kristilegar
samkomur og les lítið í Biblíunni.
Margir hafa takmarkaða þekkingu á
fagnaðarerindinu og hafa ekki tekið
afstöðu til Guðs. Predikanir og
fræðsla svo og önnur dagskrá sam-
komanna er miðuð við þetta fólk.
I öllu boðunarstarfi sínu leggja
samtök Billy Graham höfuðáherslu á
að kristið fólk noti svonefnda
Andrésaraðferð. Hún byggir á því að
menn biðji markvisst fyrir vinnufé-
lögum, kunningjum, vinum og
venslafólki sem þeir síðan bjóða með
sér á samkomurnar.
Á samkomurnar eru allir hjartan-
lega velkomnir og jafnframt hvattir
til að bjóða með sér gestum.
Ráöstefna
Samhliða samkomuátakinu standa
samtök Billy Graham fyrir ráðstefnu
sem ætluð er leiðtogum og starfs-
mönnum í kristilegu starfi. Á sama
hátt og áður verða ráðstefnugestir
tengdir við Púertó Ríkó með aðstoð
gervihnatta.
Meginviðfangsefni ráðstefnunnar
er Boðberinn, Boðskapurinn og
BOÐLEIÐIN. Boðberinn, starfsmaður
Krists. Boðskapurinn, hjálpræðið
sem fellur okkur í skaut fyrir Jesú
Krist. Boðleiðirnar er gilda nú og í
upphafi 21. aldar.
Ráðstefnan er miðuð við alla leið-
toga og starfsmenn í kristilegu starfi.
Á það jafnt við um presta, safnaðar-
leiðtoga, leiðbeinendur í sunnudaga-
skólum og starfsmenn í kristilegum
sumarbúðum, svo einhver dæmi séu
tekin.
Ráðstefnan fer fram í aðalstöðvum
KFUM og KFUK, Holtavegi 28,
Reykjavík, dagana 16.-18. mars, kl.
9:00-16:00. Ráðstefnugjald er 3000
krónur og er innifalið í því matur,
kaffi og ráðstefnugögn.
Skráning fer m.a. fram hjá fræðslu-
deild kirkjunnar í síma 562 1500 og
Biblíuskólanum við Holtaveg í síma
588 8899. Þar má jafnframt fá bækl-
ing með dagskrá ráðstefnunnar og
fleiri upplýsingum.
Eins og fyrr segir var efnt til svip-
aðs átaks vorið 1993 en þá var engin
ráðstefna auk þess sem það náði að-
eins til Evrópu. Hér á landi varð mik-
ill árangur af þeim samkomum.
Margir játuðust Kristi en aðrir endur-
nýjuðust í samfélaginu við hann.
Óhætt er að fullyrða að samkomurnar
hafi orðið til blessunar, bæði þeim
sem á samkomunum lýstu vilja sín-
um til að helga líf sitt Kristi og hinum
sem buðu með sér gestum eða lögðu
sitt af mörkum við ráðgjöf og fyrir-
bæn.
Tceknimenn Billy
Graham-sam-
takanna voru
kallabir til þegar
Spánverjar voru í
vandrœbum meb
útsendingar frá
ólympíuleikunum
í Barcelona 1992
enda búa þeir
yfir mikilli þekk-
ingu og reynslu.
VÍÐFÖRLI 9