Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.06.1999, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 16.06.1999, Blaðsíða 1
400 ASA 3ÍPAKKA KR 1.190,- (KR 397,-/STK) 200 ASA 3ÍPAKKA KR 1.160, (KR 387, -/STK) Bomumm} m SÍM 3123 Stofnað 14. növember 1984 • Sími 459 4599 • Fax 458 4584 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 299 m/vsk Bygging nýrra varnargarða í Eyrarhiíð Áhersla lögð á að tryggja öryggi íbúa á svæðinu - segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ísaflarðarbæjar „Það verður byrjað á því að flytja efnið úr skurðunum frá svæðinu. Síðan munum við breikka og dýpka skurðina og gera þá þannig úr garði að þeir geti tekið við meira efni en þeir hafa gert til þessa. Grafan er á staðnum og því verður þetta verk unnið næstu daga,” sagði Halldór Hall- dórsson, bæjarstjóri ísafjarð- arbæjar, aðspurður um fram- hald t'ramkvæmda við varnir fyrir ofan Urðarveg og Hjalla- veg. „Síðan munum við hafa samband við Viðlagatrygg- ingu og Ofanflóðasjóð, bæði hvað varðar það tjón sem orð- ið hefur, sem betur fer ekki mikið, og hins vegar vegna áframhaldandi framkvæmda. Við munu fara fram á að farið verði í samstarf við okkur um öflugri varnir á svæðinu. Hvað varðar framkvæmdahraðann á því verki, þá ræðst hann á þeim viðbrögðum sem við fá- um frá framangreindum aðil- um. Mín von stendur til þess að verkið verði unnið í sumar. Ef við fáum grænt ljós frá ríkinu, getum við hafið fram- kvæmdir mjög fljótlega,” sagði Halldór. Er þar helst horft til nýs varnarskurðar sem graftnn yrði ofar í hlíðinni og myndi ná inn fyrir Engi og þaðan niður í sjó. Ekkert hefur komið fram um kostnað við slíkar framkvæmdir en talan 100 milljónir hefur verið nefnd. Jón Hcilldórsson, slökkviliðsmaður, stendur við bjargið sem stöðvaðist rétt fyrir ofan Urðarveg. Mesta váin í hlíðinni fyrir ofan byggðina við Urðarveg og Hjallaveg er hrun stórgrýt- is, eins og berlega kom í ljós þegar 12-15 tonna bjarg stöðv- aðist rétt fyrir ofan byggðina fyrir ofan Urðarveg. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins eru nokkur stór og hættuleg björg efst í giljunum við Gleiðarhjalla, björg sem hugs- anlega gætu farið af stað í næstu leysingum. Hafakomið fram hugmyndir um hvort hægt sé að sprengja þau líkt og gert var 1983 eða 1984. „Við munum skoða þessa lausn. Það verðurdustaðrykið af gamalli skýrslu þar sem er gert ráð fyrir slíkum spreng- ingum á tveggja ára fresti. Það getur vel verið að menn end- urmeti þá stöðu, kannski eru komnar nýjar hugmyndir og nýjar aðferðir, en við munum fara í allar þær aðgerðir sem þarf til að tryggja öryggi fólks á svæðinu,” sagði Halldór. Dr. Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur hjá Veðurstofu Islands kom til ísafjarðar á mánudag og fór hann við þriðja mann til að skoða aðstæður í Eyrarhlíð. Niður- staða þeirrar könnunar liggur væntanlega fyrir í vikunni. Snjófióðavarnir í Bolungarvík Sambland af leiðigörð- um og varnargörðum - kostnaður um þriðjungur til helmingur af kostnaði við rásina miklu Nýjar hugmyndir um mikla sem kynnt var í febrúar upp eitthvað af íbúðarhús- varnarkosti vegna snjóflóða og talin er munu kosta um um og beita auk þess rým- í Bolungarvík voru kynntar einn milljarð króna. ingum í einhverjum tilvik- bæjaryfirvöldum í síðustu Flestar þeirra hugmynda um. Kostnaður við hverja viku. Þær eiga það sameig- sem nú hafa verið kynntar fel- lausn af því tagi er áætlaður inlegt að vera langtum ódýr- ast í samblandi leiðigarða og 300-500 milljónir króna. ari og einfaldari en rásin þvergarðaásamtþvíaðkaupa Sjá nánar á bls. 2 og 3. Þróunarsetur Vestfjarða. ísafjörður Þróunar- setur opn- að í dag Hið nýja Þróunarsetur Vestfjarða var opnað í dag að Arnagötu 2-4 á Isafirði. Stofnendur að Þróunar- setursins eru Atvinnuþróun- arfélag Vestfjarða hf„ Fjórð- ungssamband Vestfírðinga, Hafrannsóknastofnun, Rann- sóknastofnun ftskiðnaðarins og Svæðisvinnumiðlun Vest- fjarða og hafa þeir allir kom- ið sér fyrir í hinu nýja hús- næði. Markmið og tilgangur Þróunarsetursins er m.a. sá að efla starfsvettvang stofn- ana og fyrirtækja á sviði rannsókna og þróunar á Vestfjörðum, að skapa nýtt umhverfi og nýjan grundvöll til öflunar nýrra verkefna á Vestfjörðum sent og á lands- vísu auk þess sem það mun koma á og þróa samstarfsnet aðila, jafnt innan setursins sem utan þess. Þá er setrið hluti af uppbyggingu sí- menntunar á Vestfjörðum. Eigandi húsnæðis Þórun- arsetursins er Vestri ehf. og fjármagnar hann breyting- arnar sem eru sniðnar að þörfum hvers og eins. Heild- arfjöldi starfsmanna stofn- ananna fimm er 18 manns. • v.-ti • VELKOMINN I GLAÐSKAPINN! mm t MANHsma- USTU lANOGÖNGU SÖOUNNAU FÁ l minn H/trmet rv/ensTuum. nö Heiuui. tvkr HemsÁifue. eiN Á/enuN. • •■ • y-qg-*B—g i • CKÍF, rvmstsm, TVÖ Ltf. SAMA 0 ÁSTIH! HAMRABORG Simi: 456 3166 ASTA VEXKEFNIÐ!

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.