Bæjarins besta - 16.06.1999, Blaðsíða 8
Helgi Steinar Kjartansson.
ísafjörður
Minningar-
sjóður Helga
Steinars
Helgina 28.-29. maí sl.
hélt árgangurinn sem út-
skrifaðist frá Grunnskóla
Isafjarðar árið 1989 upp á
að tíu ár voru liðin frá út-
skriftinni.
I tilefni þess var stofnaður
sjóður til minningar um
Helga Steinar Kjartansson,
en hann lést 12. apríl 1996.
Helgi, sem var einn af út-
skriftarnemendunum var
skólasytkinunum afar kær
enda var hann alltaf glað-
beittur og tilbúinn til að
hjálpa til þegar á þurfti að
halda og lét aldrei sitt eftir
liggja-
Hlutverk sjóðsins er að
styrkja málefni sem voru
Helga kær, eins og t.d.
skáta- og björgunarstörf. A
næstu dögum verður leitað
til fyrirtækja sem tengd voru
Helga á einhvern hátt og er
það von aðstandenda sjóðs-
ins að vel verði tekið í að
heiðra minningu kærs skóla-
bróður. Öðrum sem vilja
minnast hans er bent á
reikning sjóðsins í íslands-
banka á Isafirði nr. 0556-14-
601338, kt. 170873-4249.
ísafjöröur
Enn dregst
að opna Bón-
us verslunina
í Ljóninu
„Vel skal vanda það sem
lengi skal standa. Við stefn-
um núna á laugardaginn 26.
júní en það er alls ekki víst
að það náist", sagði Guð-
mundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss í sam-
tali við blaðið.
Enn hefur frestast að opna
verslun fyrirtækisins í Ljón-
inu á Isaflrði en síðast var
talað um að opna kringum
17. júní. „Við erum ekkert
stressaðir yfir þessu. Við
vöndum okkur og opnum
ekki fyrr en allt er orðið
hundrað prósent."
Astæðan fyrir þessari síð-
ustu frestun er sú, að sögn
Guðmundar, að tafir urðu á
hluta af frystitækjum versl-
unarinnar, - „en þetta er allt
að detta inn núna“. Hann
sagði að ekki yrði haldin
nein sérstök opnunarhátíð.
„Við verðum bara með
tilboð.“
Sorpbrennslan Funi í Engida/
Mörgum er ekki treyst-
andi til að vera þar einir
- óhjákvæmilegt að vakta svæðiö, segir Guðmundur Sigurðsson, vaktstjóri, en
kvartanir hafa borist vegna þess hve snemma gámasvæðinu er lokað á kvöldin
„Við verðum að vakta
gámasvæðið. Það er óhjá-
kvæmilegt. Efnafræðiþekking
Isfirðinga virðist ekki vera
rneiri en svo, að allt of mörg-
urn er alls ekki treystandi að
vera þar einir. Menn henda
hverju sem er hvar sem er og
fara alls ekki eftir þeirn til-
mælum sem eru á skiltum á
svæðinu og við hvern gám
fyrir sig. Þetta er helsta ástæða
þess að svæðið er ekki opið
nótt og dag“, segir Guðmund-
ur Sigurðsson, vaktstjóri í
sorpbrennslustöðinni Funa í
Engidal, en óánægjuraddir
hafa heyrst um að gámasvæð-
ið sé lokað og ekki hægt að
losa sig við drasl þegar fólk er
að hreinsa til hjá sér utan
venjulegs vinnutíma.
Guðmundur segir að gáma-
svæðið sé opið virka daga frá
klukkan tíu á morgnana til
níu á kvöldin og laugardaga
og sunnudaga frá klukkan tólf
á hádegi og til sex á kvöldin.
„Þessi tími hefur verið aug-
lýsturog veriðóbreytturíþrjú
ár, eða allt frá því að stöðin
var opnuð aftur eftir snjóflóð-
ið. Eg kannast heldur ekki við
annað en að hafi einhverjir
verið í stórkostlegum vand-
ræðum, með fulla kerru eða
því um líkt, utan þess tíma
sem auglýst er að sé opið, þá
höfum við sýnt þeim liðleg-
heit og opnað svæðið sérstak-
lega Við höfurn ekki orðið
varir við neinar svo alvarlegar
kvartanir að talin hafi verið
Hugleiðing
um skiptingu
ráðherrastóla
Nú þegar búið er að skipa
í alla ráðherrastólana velti
ég því fyrir mér, af hverju
Einar K. Guðfinnsson var
ekki í umræðunni um stól-
ana.
Sjálfstæðisflokkurinn
bætti við sig fylgi í öllum
kjördæmum nema á Vest-
fjörðum, þarsem flokkurinn
átti í höggi við Frjálslynda
flokkinn, með fyrrverandi
sjálfstæðismann, Guðjón A.
Kristjánsson í broddi fylk-
ingar.
Ef Frjálslyndi flokkurinn
hefði fengið svipað fylgi á
Vestfjörðum og í öðrum
kjördæmum, erég ekki í vafa
um að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði ekki fengið lakari út-
komu en Sjálfstæðisflokk-
urinn á Vesturlandi, sem
Skoðun
Níels R. Björnsson
sjómaður skrifar
bætti við sig 3,2%. Það var
önnur besta útkoman á
landsbyggðinni.
Þá er ég þess fullviss að
Einar K. Guðfinnsson hefði
staðið jafnfætis Sturlu Böð-
varssyni í umræðunni um
ráðherrastólana.
Finnst mér það dýrkeypt
að missa af því að Vestfirð-
ingar hefðu átt möguleika á
því að eignast ráðherra, sem
við svo sárlegaþurftum, fyr-
ir það eitt að hleypa mink
og öldruðum ref í hænsna-
bú!
- Níels R. Björnsson.
Sorpbrennslan Funi. Nokkurr-
aróánœgju hefurgcettmeð lok-
unartíma gámasvœðisins.
ástæða til að endurskoða þann
tíma sem auglýstur er. Sumir
eru reyndar að koma hér um
miðja nótt", segir Guðmund-
ur.
„Auk þess höfum haft hér
opnar stóru dyrnar í móttök-
unni og höfum getað tekið
þar á móti öllu brennanlegu
sorpi eftir klukkan níu á
kvöldin. Eins höfum við tekið
þar við minna magni af
óbrennanlegu sorpi eftir því
sem pláss hefur leyft. Loks
má geta þess, að líkt og hjá
öðrum stofnunum bæjarins
hljótum við líka einhvern tím-
ann að verða að hafa lokað."
ARS MAGiCA i háifan mánuð á isafirði
Fjölþjóðlegur hópur
listamanna vinnur saman
ARS MAGICA (hin dul-
úðga list) er nafn á hópi lista-
manna frá ýmsum löndum,
sem er á leið til Isafjarðarbæj-
ar til hálfs mánaðar dvalar,
eðafrá20.júní til 4. júlí. Þessi
hópur hefur unnið santan að
listsköpun um nokkurt árabil
og efnt til sýninga íAusturríki,
Noregi og á Ítalíu. I ARS
MAGICA hafa alltaf verið
tveir ísfirðingar en nú hefur
þeim fjölgað svo að hlutur
þeirra verður röskur helming-
ur að þessu sinni.
Driffjöður ARS MAGICA
er Austurríkismaðurinn Ro-
bert W. Wilfing, þekktur lista-
maður í sínu heimalandi og
víðar, einkum fyrir athyglis-
verða skúlptúrvinnu. Hópur-
inn mun einbeita sér að sam-
Amar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
F asteigna viðskipti
Eftirtaldar eignir eru einungis sýnishorn úr sölu-
skrá okkar, leytið nánari upplýsinga á skrifstofu.
ISAFJORÐUR
Hjallavegur I: I83m2 einbýlishús
með innbyggðum bílskúr. Verðlauna-
garður. Laust fljótlega.
Hlíðarvegur 14: Einbýlishús -
kjallari, hæð og óinnréttað ris.
Grunnflötur ca. 90m2. Húsið er
nýuppgert að mestu.
Verð: 10.400.000,-
Heiðarbraut 12: Rúmlega 220m2
tvílyft einbýlishús ásamt bílskúr. Geta
verið tvær íbúðir. Laust fljótl. Verð
kr. I 1.500.000,- Skipti á minni eign
koma til greina.
Kirkjubær: Lítið einbýlishús. Laust.
Mánagata 6: Efri hæð I55m2 5-6
herbergja. Laus fljótlega.
Mjallargata 6, norðurendi: Lítil 3-
4 herb. íbúð ásamttvöföldum bílskúr.
Laus fljótlega.
Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á 3.
hæð. Verð: 3.600.000,-
Stakkanes 6: Rúmlega I40m2
raðhús ásamt bílskúr og sólstofu.
Verð I 1.500.000,-
Stórholt II: 3ja herbergja íbúð á
3. hæð fyrir miðju. Laus.
Verð: 4.300.000,-
Stórholt 13:4ra herb. íbúð á 2. hæð
ásamt bílskúr. Skipti á ódýrari eign
eða jafnvel bíl koma til greina. Ibúðin
er laus. Verð kr. 7.800.000
Strandgata 5: Hnífsdal, 2ja herb.
Seljalandsvegur 22: Rúmlega 130 m2 einbýlishús, nýstandsett
að utan og innan. Verð 10.500.000,-
Húsið verður til sýnis nk. sunnudag kl. 14-17.
Aðalstræti 13: Efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt hálfum
kjallara og tvöföldum bílskúr.
íbúð 65 m2 á 2. hæð í sambýlishúsi.
íbúðin er laus. Verð kr. 1.000.000
Urðavegur 24: 240m2 raðhús með
bílskúr.
BOLUNGARVIK
Aðalstræti 18: Tvílyft einb.hús,
rúmlega 200m2 ásamt bílskúr.
Verð 3.300.000,-
Hafnargata 7: Efri hæð í
tvíbýlishúsi.
Verð: 2.800.000,-
Höfðastígur 6: Rúmlega 170m2 íbúð
á efri hæð og séríbúð í kjallara. Selst
sitt í hvoru lagi.
Þuríðarbraut 9: Rúmlega I20m2
einbýlishús úr timbri ásamt mjög
stórum bílskúr (hátt til lofts). Húsið
getur verið laust fljótlega. Hagstæð
greiðslukjör - engin útborgun.
Búðarkantur 2: Rúmlega 200m2
stálgrindarhús.
Holtabrún 5: Ca. I40m2 ein-
býlishús ásamt bílskúr.
Stigahlíð 2 og 4: 2ja og 3ja herb.
íbúðir. Verð: 1,5 til 3 milljónir.
Traðarland 10: Einbýlishús ásamt
bílskúr. Verð: 7,2 milljónir.
Vitastígur 9: 2 x 75m2 parhús.
Nýuppgert og mjög vandað.
Völusteinsstræti 28: I50m2
einbýlishús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Verð: 7.000.000,-
Völusteinsstræti 3: Einbýlishús
ásamt bílskúr.
PATREKSFJORÐUR
Hjallar 10: Stórt einbýlishús - laust.
Verð: 3.600.000,-
Hjallavegur 14 og 16: Lítil raðhús
á einni hæð.
Hjallavegur 18: Efri og neðri hæð í
tvíbýlishúsi.
Hjallavegur 20: Efri hæð í tvíbýlis-
húsi
Góð áhvílandi lán fylgja öllum
eignunum á Flateyri.
mmnm
Hjallavegur 9: Neðri hæð. Laust.
Sætún 6: Raðhús. Laust.
Hlíðarvegur 10: Efri hæð í tvíbýlis-
húsi. Góð áhvílandi lán.
Hjallavegur II: Einbýlishús, 160-
170m2, illa farið. Verð kr. 2 millj., allt
áhvílandi.
eiginlegu listaverki og verður
Edinborgarhúsið helsti vinnu-
staðurinn. Erlendir liðsmenn
ARS MAGICA hafa fylgst
með uppbyggingu þess úrfjar-
lægð og þykir mikið til koma.
Markmið ARS MAGICA
er að sameina krafta og hug-
myndaflug listamanna frá
ýmsum þjóðlöndum, þar sem
leiðarljósið er fyrst og frernst
þátttakaíþróun listarinnarinn
á næstu öld. Stefnan hefur
þegar verið tekin á borgina
Graz í Austurríki árið 2003,
en það ár verður hún ein af
menningarborgum Evrópu.
Hálfs mánaðar starf lista-
mannanna hér í bæ er töluvert
kostnaðarsamt. Þeir hafa þvf
leitað til fyrirtækja um stuðn-
ing - í ljósi þess, að þessi list-
viðburður megi verða Isa-
tjarðarbæ til virðingar og
vegsauka.
70 ára
Hulda B. Magnúsdóttir,
Maríubakka 2 í Reykjavík
verður 70 ára á morgun,
17. júní.
Hún tekur á móti gest-
um að Hóli III í Bolungar-
vík milli kl. 15:30 og
19:00 á afmælisdaginn.
8
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999