Víðförli - 01.10.1998, Page 2
VÍÐFÖRLI
OKTÓBER 1998
Fréttir og fróðleikur
Nýkjörið kirkjuþing
Nýkjörið kirkjuþing íslensku þjóðkirkjunnar kemur sam-
an hinn 11. október næstkomandi. Þá verða liðin 40 ár
frá því að kirkjuþing kom fyrst saman, en það var í októ-
ber 1958. Samkvæmt nýjum kirkjulögum fær kirkjuþing
nú nýja stöðu og hlutverk og verður æðsta stofnun þjóð-
kirkjunnar með leikmannameirihluta. Þegar kirkjuþing
kemur saman að þessu sinni verður það myndug samkoma
sem mun starfa í umboði þjóðkirkju sem ber fulla ábyrgð á
málefnum sínum innan lögmæltra marka. Það er ástæða
til þess að marka þau tímamót með fyrirbæn og fögnuði í
sérstakri guðsþjónustu í Dómkirkjunni.
I haust er Alkirkjuráðið 50 ára. Það var stofnað 1948
og var þjóðkirkjan einn stofnaðili þess. Þess verður einnig
minnst við sömu hátfð. Innan vébanda Alkirkjuráðsins
eru 330 kirkjur úr 100 löndum um víða veröld. Ráðið leit-
ast við að styrkja samstarf milli kirkjudeilda, lögð er
áhersla á rannsóknir í guðfræði, samtal til að efla skilning
milli kirkna og trúarbragða, virka þátttöku kirkna í að
ráða bót á félagslegum vandkvæðum og að vinna gegn
ranglæti og kúgun. A þessum tímamótum, þegar íslensk
þjóðkirkja er að búa sig til að minnast þúsund ára kristni í
landinu og er að axla aukna ábyrgð á eigin málum, er
mikilvægt að hún minnist þess að hún er hluti alþjóðlegs
samfélags. Þá alþjóðlegu sýn kirkjunnar þurfum við að
styrkja hér hjá okkur og biðja og vinna að því að svo
verði sem Kristur bað fyrir lærisveinum sínum: „Allir
verði þeir eitt.“
Hátíðin verður í Dómkirkjunni sunnudagskvöldið 11.
okt. kl. 20.30. Þangað verður þjóð og kirkju boðið að
treysta hendur sínar og hjörtu til góðra verka. Að messu
lokinni verður kirkjukaffi í safnaðarheimili Dómkirkjunn-
ar. Kirkjuþing verður sett næsta morgun, 12. okt., kl. 9.30
í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Samningur ríkis og kirkju
Tímamótasamningur var undirritaður við hátíðalega at-
höfn á Biskupsstofu 4- september sl. „Hann er niðurstaða
af löngum ferli viðræðna og samninga og á tíðum deilna
um kirkjueignir og réttarstöðu þjóðkirkjunnar, viðræðna
sem átt hafa sér stað um áratugaskeið," sagði biskup í
ávarpi sínu er hann undirritaði samninginn.
Með samningnum fær ríkið jarðir kirkjunnar til eignar
og ráðstöfunar að vild, en þær höfðu verið í umsýslu ríkis-
ins frá 1907. I staðinn greiðir ríkið laun tiltekins fjölda
presta og starfsmanna kirkjunnar og innheimtir sóknar-
gjöld eins og undanfarin ár.
Leikmaður forseti kirkjuþings
Það nýmæli verður tekið upp á kirkjuþingi að leikmaður
verður forseti þess, en frá upphafi hefur biskup Islands
verið þar í forsæti.
Ein kona á kirkjuþingi
Dalla Þórðardóttir, prófastur Skagfirðinga, er eina konan
sem kosin var til kirkjuþings. Hlutur kvenna kemur mjög
á óvart á sama tíma og sóknarnefndir fengu senda jafn-
réttisáætlun kirkjunnar til yfirlestrar. Kosningarétt hafa
sóknarnefndir og prestar. Leikmenn á kjörskrá 1998 voru
alls 1250, þar af 569 konur, eða 46%, og 681 karl, eða
54%. Meðalaldur kjörinna kirkjuþingsfulltrúa er 56 ár.
Leikmannaskóli kirkjunnar
70 manns komu fyrsta kvöldið er námskeið vetrarins hófu
göngu sína. Skólinn byrjaði að þessu sinni með námskeiði
um trúarbrögðin, sem Þórhallur Heimisson kennir, og
námskeiði um kristnitökuna, sem þeir Jón Böðvarsson og
Hjalti Hugason kenna.
Úttekt á sambandi ríkis og kirkju
Að tillögu biskups hefur kirkjuráð samþykkt að skipa
nefhd til að gera úttekt á sambandi ríkis og kirkju og
móta stefnu varðandi framtíð þess.
Nefndin skal m.a. meta áhrif nýrra kirkjulaga á ís-
lensku kirkjuna og tengsl hennar við stofnanir þjóðfélags-
ins; afla upplýsinga um og leggja mat á umræður og að-
gerðir í nágrannalöndum okkar hvað varðar tengsl ríkis
og kirkju; gera guðfræðilega grein fyrir stöðu þjóðkirkj-
unnar gagnvart þjóð og ríkisvaldi og öðrum trúfélögum;
kanna áhrif þess að prestar verði embættismenn kirkj-
unnar og þiggi laun úr prestlaunasjóði en ekki ríkissjóði;
leggja mat á hvort og hvemig skipan kirkjunnar og staða
gagnvart ríkisvaldinu hefur áhrif á boðun hennar og stöðu
í þjóðfélaginu; meta hlutverk kirkjunnar í miðlun gilda,
varðveislu hefða, gagnrýni á ráðandi viðhorf og hverskon-
ar ranglæti í samtímanum. Skal í því sambandi einkum
gaumgæfa áhrif kirkjuskipunarinnar á frelsi boðunarinnar.
Nefndin skili skýrslu eigi síðar en vorið 2000.
Þjálfun prestsefna
Sjö guðfræðikandídatar eru í starfsþjálfun á vegum bisk-
upsembættisins. Við upphaf þjálfunartímans fara allir
kandídatamir í ítarleg viðtöl. Þjálfunartíminn nú er tveir
mánuðir, september og október.
Fyrstu tvær vikurnar kynnast kandídatar ýmsum stofn-
unum sem þeir gætu þurft að leita til í prestsstarfi. Þá
verða kandídatar sendir út á akurinn og munu fylgjast
2