Víðförli - 01.10.1998, Page 3
OKTÓBER 1998
VÍÐFÖRLI
með störfum presta í þéttbýli og dreifbýli. Tólf prestar sjá
um þann þátt. Þjálfunartímanum lýkur með vikuveru í
Skálholti. f þjálfunarteymi eru Sigurður Árni Þórðarson,
Kolbrún Ragnarsdóttir og Þorvaldur Karl Helgason.
Framundan eru breytingar á prestsefnaþjálfun og er farið
að vinna í samræmi við framtíðarskipan sem kirkjuþing
ályktaði um 1997.
Prestar með Englum
Þórir Jökull Þorsteinsson og Bjami Þór Bjamason munu
þjóna söfnuðum í ensku kirkjunni næstu mánuðina. I
kjölfar Poorvo'samkomulagsins geta íslenskir prestar
þjónað í kirkjum á Norðurlöndum, Eystrasaltslöndunum
og Bretlandi.
Framherjinn Bebeto játast Kristi
I frétt frá Brasilíu kemur fram að hinn heimsfrægi knatt-
spyrnumaður Bebeto (34) hafi gefist Kristi í hönd meðan
heimsmeistarakeppnin í Frakklandi stóð yfir. Fyrir aftur-
hvarf sitt sótti framherjinn Bebeto guðsþjónustur í
baptistakirkju í Rio de Janeiro. Bebeto hefur vitnað um
trú sína á vegum Athletes for Christ, m.a. með því að
klæðast „treyju Guðs ríkis“. (Frétt ffá Brasilíu.)
Mannabreytingar
Halla Jónsdóttir, sem starfað hefur sem deildarstjóri á
fræðslu- og þjónustudeild undanfarin ár, hefur sagt starfi
sínu lausu og starfar nú sem sérkennari við Hagaskóla í
Reykjavík. Hún vinnur þó tvo hálfa daga á deildinni fyrst
um sinn. Halla hefur sinnt æskulýðs- og fermingarmálum,
svo og málefnum kvenna.
Guðný Hallgrímsdóttir, sem verið hefur í hálfu starfi
sem ffæðslufulltrúi með ábyrgð á barnafræðslu, er í launa-
lausu leyfi. Hún gegnir afleysingarstarfi í Seltjarnames'
kirkju næstu 9 mánuðina meðan Solveig Lára Guð-
mundsdóttir er í námsleyfi.
Petrína Jóhannesdóttir guðfræðingur hefur verið ráðin
í 75% starf hjá fræðslu- og þjónustudeild næstu 9 mánuð-
ina. Hún mun annast barna- og æskulýðsmál, fermingar-
fræðslu og málefni kvenna í kirkjunni. Petrína hefur áður
leyst af á deildinni og sinnti þá barnafræðslu.
„Innandyra í kirkjunni“
Námskeiðið Innandyra fyrir starfsfólk í bamastarfi kirkj-
unnar hefur verið haldið í Skálholti, Stykkishólmi, Vest-
mannaeyjum, á Patreksfirði, Eiðum og Löngumýri og verið
vel sótt. Auk kynningar á fræðsluefni vetrarins, Ævintýri í
Brekkugötu, er áhersla lögð á styrkingu og uppbyggingu
þátttakenda.
Starfsmenn í bamastarfi em kraftmikið og hugmynda-
ríkt fólk og hafa farið á kostum í brúðustjómun, leikrænni
tjáningu og tunguæfingum! Á námskeiðunum hafa ýmsir
leyndir hæfileikar fólks komið í ljós og má þar nefna Vest-
fjarðabandið sem rappaði og söng Baldursblús tileinkaðan
prófastinum í Vatnsfirði. Sagt er að þau stefni á að gefa út
geisladisk fyrir næstu prestastefnu og leggja síðan heiminn
að fótum sér.
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Elín Jóhannsdóttir sjá
um kennslu og kynningu að þessu sinni. Guðmundur
Haraldsson Ieikari fræðir þátttakendur um framkomu og
tjáningu á tveimur námskeiðanna og Guðný Hallgríms-
dóttir var á námskeiðinu í Skálholti.
Fræðsluefni fyrir barnastarf
Nýtt fræðsluefni fyrir barnastarf kirkjunnar er komið út á
vegum fræðsludeildar og Skálholtsútgáfu. Efnið er samið
af Elínu Jóhannsdóttur kennara og ber heitið Ævintýri í
Brekkugötu.
Tími hinna stóru dómkirkna kominn aftur?
Á norrænni ráðstefnu um kirkjubyggingar var rætt um
hvort tími hinna stóru og sérstæðu kirkjubygginga væri
kominn aftur eða hvort áherslan ætti áfram að vera á
smærri einingar og fjölbreytt safnaðarlíf. Kaj Bollmann,
framkvæmdastjóri Kirkefondet, bendir á að verði höfuð-
áhersla lögð á kirkjuna sem helgidóm sé hætta á að safn-
aðarlífið falli í skuggann. (Church News from Denmark,
september 1998.)
Danir ræða miðstýringu og valddreifingu
innan kirkjunnar
Hver talar fyrir hönd kirkjunnar í málum er varða þjóðfé-
lagið? Eru það einstakir biskupar, prestar og kirkjufólk ab
mennt, eða á kirkjan að tala einni röddu? Um þetta eru
skiptar skoðanir í Danmörku. Kjell Holm, biskupi í Árós-
um, finnst kirkjan þurfa að tala einni röddu, en biskupinn
í Hróarskeldu, Jan Lindhardt, varar við miðstýrðu áliti
kirkjunnar. (Church News from Denmark, september
1998.)
Miðlun trúar með rafrænum hætti
Ráðstefna verður haldin í Árósum 10.-13. október nk.
undir yfirskriftinni Værdiformidling og de elektroniske medi'
er. Fjallað verður m.a. um þróunina fá ritmenningu til
myndmenningar, nálægð og fjarlægð. Eru hinir nýju
miðlar ógnun eða blessun? Ráðstefnan er haldin af
Nordisk kirkelig studierád í samvinnu við Den Nordiske
Religionspædagogiske Konference. Nánari upplýsingar
veitir Örn Bárður í s. 535-1500.
Bók um safnaðaruppbyggingu
Unnið er að þýðingu bókar eftir þýska guðfræðinginn
Christian Schwartz. I bókinni eru birtar niðurstöður
könnunar er gerð var í 1000 söfnuðum í 32 löndum og 5
3