Víðförli - 01.10.1998, Síða 5

Víðförli - 01.10.1998, Síða 5
OKTÓBER 1998 VÍÐFÖRLl glatt sælkera og vini Skálholts. Gert er vel við gesti í mat og drykk, ásamt dagskrá með ívafi úr sögu og menningu Skálholts. Vert er að benda sóknum og fyrirtækjum á kvöldverðinn, sem hentar þeim vel sem vilja gera sér glaðan dag á sérstakan hátt. Nánari upplýsingar eru veitt- ar í Skálholtsskóla í s. 486-8870. Aðskilnaður ríkis og kirkju Færri vilja aðskilnað ríkis og kirkju nú en á sama tíma í fyrra samkvæmt könnun Gallups. Af þeim sem taka af- stöðu með eða á móti aðskilnaði eru tæplega 63% hlynnt aðskilnaði en rösklega 37% andvíg. Á sama tíma í fyrra voru 66% þeirra sem tóku afstöðu hlynnt aðskilnaði. (Ríkisútvarpið, 10. september 1998.) Norska kirkjuþingið Norska kirkjuþingið kemur saman í Bergen í nóvember. Þar eiga sæti 80 fulltrúar, 55 leikmenn, 11 prestar og 11 biskupar, auk þriggja fulltrúa Sama. Af 80 fulltrúum eru 32 konur eða 40%. (Kirkeaktuelt, nr. 4, 1998.) Árið 2000 Það styttist óðum í næstu aldamót eða árþúsundamót - millenium. Það stendur kirkjunni næst að halda uppá þessi merku tímamót í sögu heims og þjóðar. Hér á landi starfa tvær nefndir að undirbúningi hátíðarhalda, kristnihátíð- amefnd og afmælisnefnd kirkjunnar. Verkefni kristni- hátíðarnefndar er einkum að huga að hátíðarhöldum á Þingvöllum sumarið 2000, en afmælisnefndarinnar að huga að dagskrá þjóðkirkjunnar og einstakra safnaða hennar 1999-2000. Hátíðarhöldin hér á landi eru tvíþætt. 2000 ár eru lið- in frá fæðingu Krists sem markaði upphaf tímatals okkar. 1000 ár eru liðin frá kristnitökunni. Á vegum prófasts- dæmanna er undirbúningur í fullum gangi en hátíðir verða víða í hémðum á næsta ári, 1999. Þjónusta við innflytjendur Síðastliðin tvö ár hefur Toshiki Toma starfað á vegum kirkjunnar og þjónað innflytjendum. Laun hans hafa ver- ið greidd af kirkjunni, Rauða krossinum, Félagsmálastofn- un Reykjavíkurborgar og ÍTR. Á þessu ári hefur tekist að afla styrkja til þjónustunnar frá fyrrgreindum aðilum, auk félagsmálaráðuneytisins. Styrkveitingarnar nú eru hins vegar mun lægri en á sl. ári. Leitað er leiða til þess að tryggja þjónustuna í framtíðinni en eftirspurn eftir henni fer vaxandi. Toshiki vinnur náið með starfsfólki í Miðstöð nýbúa og aðilum Félagsmálastofnunar. Innflytjendur eru hópur sem á sér fáa formælendur og því er sérstök ástæða til þess að huga að högum þeirra. Innflytjendum fer fjölgandi. Veistu að á Isafirði eru töluð 37 tungumál? I einu frystihúsi þar í bæ eru töluð 14 tungumál. ísland er að verða alþjóðlegt samfélag. Þess vegna er mikilvægt að tryggja að fólk af ólíku þjóðerni og trú geti lifað saman í sátt og samlyndi. Að því ber að vinna með markvissum hætti. Áhugaverð námskeið í L0gumkloster Dagskráin í Lögumkloster (Præstehöjskolen og Folke- kirkens Pædagogiske Institut) á vormisseri 1999 hefur borist fræðslu- og þjónustudeild og liggur þar frammi. Mörg áhugaverð námskeið eru í boði og eru þau opin ís- lenskum prestum og fræðurum innan kirkjunnar. Kostn- aður er 50 danskar krónur á dag. Sækja þarf um námsdvöl með góðum fyrirvara. För biskups til Afríku lyftistöng Biskup íslands, herra Karl Sigurbjömsson, heimsótti í vor dóttursöfnuði íslensks kristniboðs í Eþíópíu og Kenýu og skoðaði áratuga starf Hjálparstofnunar kirkjunnar á þess- um slóðum. För hans til Afríku mun án efa verða starfi Hjálparstofnunar lyftistöng. „Eg sá með eigin augum hversu framlög okkar, jafnvel hin smæstu, litlu molarnir af borðum okkar, fá miklu áorkað. En þörfin er mikil. Ég hvet einstaklinga og félaga- samtök til að leggja sitt af mörkum. Umfram allt hvet ég sóknir og söfnuði þjóðkirkjunnar til að koma myndarlega til liðs við þetta mikilvæga starf. Ég legg áherslu á að ls- lendingar geri verulegt átak í því að styrkja starfið með auknum framlögum og fyrirbænum - okkur öllum til heilla," sagði biskup eftir heimkomuna. Indlandsför Fimmtán manna hópur styrktarmanna Hjálparstofnunar kirkjunnar er nýkominn úr tveggja vikna ferð til Ind- lands. í Madras kynntist hópurinn merku starfi Social Action Movement samtakanna sem H.k. hefur stutt í bráðum tíu ár. Réttindafræðsla hverskonar, verkalýðsstarf og fullorðinsfræðsla, s.s. lestur og skrift, eru helstu við- fangsefnin. Auk þess rekur SAM forskóla fyrir börn fá- tækasta fólksins til þess að búa þau undir skólagöngu í al- menna skólakerfinu. Islendingar styðja 723 börn til náms í gegnum SAM. íslendingarnir fengu að sjá nýopnað athvarf fyrir börn í skuldaánauð, en í gangi er sérstakt verkefni til þess að losa hóp 500 barna úr skuldaánauð. Hjá Sameinuðu ind- versku kirkjunni hittu flestir í hópnum fósturbömin sín, en þar stunda 265 börn nám á vegum íslendinga. Þau ganga þar í heimavistarskóla og gat fólkið því séð allar að- stæður þeirra. Ferðin tókst vel í alla staði, þrátt fyrir minniháttar kveisu og auðvitað mikinn hita. Mátti ekki annað heyra en að þátttakendur hefðu verið hinir ánægðustu með ferðina. 5

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.