Víðförli - 01.10.1998, Síða 6
VÍÐFÖRLI
OKTÓBER 1998
Nývígðir prestar 9. ágúst 1998
Bára Friðriksdóttir, cand. theol., til að vera prestur í Vest-
mannaeyjaprestakalli frá 1. september 1998.
Guðbjörg jóhannesdóttir, cand. theol., til að vera sóknar-
prestur í Sauðárkróksprestakalli frá 1. september 1998.
Lára Oddsdóttir, cand. theol., til að vera sóknarprestur í
Valþjófsstaðarprestakalli frá 1. nóvember 1998.
Nývígðir prestar 27. september 1998
Kristín Þórunn Tómasdóttir, cand. theol., til að vera hér-
aðsprestur í Kjalarnessprófastsdæmi frá 15. september
1998.
Ragnheiður Jónsdóttir, cand. theol., til að vera sóknar-
prestur í Hofsóssprestakalli, Skagafjarðarprófastsdæmi
frá 15. október 1998.
Sigurður Grétar Sigurðsson, cand. theol., til að vera sókn-
arprestur Breiðabólsstaðarprestakalli, Hvammstanga,
Húnavatnsprófastsdæmi frá 1. október 1998.
Tilfærslur í embættum
Birgir Asgeirsson skipaður í embætti sendiráðsprests í
Kaupmannahöfn frá 1. ágúst 1998.
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir skipuð í embætti sjúkrahús-
prests á Ríkisspítölum frá 1. september 1998.
Önundur Bjömsson skipaður sóknarprestur í Breiðabóls-
staðarprestakalli, Rangárvallaprófastsdæmi frá 1. sept-
ember 1998.
Kristján Bjömsson, skipaður sóknarprestur í Vestmanna-
eyjaprestakalli frá 1. september 1998.
Bryndís Malla Elídóttir, skipuð sóknarprestur í Kirkjubæj-
arklaustursprestakalli frá 1. október 1998.
Nýir prófastar
Dalla Þórðardóttir, sóknarprestur í Miklabæjarprestakalli,
var skipuð prófastur í Skagafjarðarprófastsdæmi frá 1.
september 1998.
Halldóra Þorvarðardóttir, sóknarprestur í Fellsmúlapresta-
kalli, var skipuð prófastur í Rangárvallaprófastsdæmi
frá 1. september 1998.
Haraldur M. Kristjánsson, sóknarprestur í Víkurpresta-
kalli, var skipaður prófastur í Skaftafellsprófastsdæmi
frá 1. október 1998.
Lausn frá störfum
Lárus Þ. Guðmundsson frá 1. júlí.
Jóna Hrönn Bolladóttir frá 1. júlí.
Sváfnir Sveinbjamarson frá 1. ágúst.
Jón Bjarman frá 1. september.
Hjálmar Jónsson frá 1. september.
Sigurjón Einarsson frá 1. september.
Sigurpáll Óskarsson frá 1. október.
Breytingar á starfsliði Biskupsstofu
1. október 1998
Ása Gunnsteinsdóttir hefur látið af störfum og í hennar
stað sem aðalbókari kemur Magnhildur Sigurbjöms-
dóttir 1. október 1998.
Sigurgeir Ingimarsson, sem hefur haft eftirlit með prests-
bústöðum á landsbyggðinni, lætur af störfum 1. októ-
ber 1998.
Lausar stöður í Genf
Hjá Lútherska heimssambandinu em eftirtaldar stöður
lausar til umsóknar:
Study Secretary for Worship and Congregational Life.
Secretary for Project Coordination and Administration.
Director and Editor'in-Chief, Office for Communication
Services.
Finance Officer í Kambódíu.
Construction Engineer í Kambódíu.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ámi í s. 5535-1500.
Lesið, heyrt og séð
Paul Marshall ivith Leila Qilbert: Their Blood Cries
Out, the world wide tragedy of modern Christians who
are dying for their faith, Word Publishing, Dallas,
1997.
Islendingum finnst það ekki tiltökumál þótt fleiri eða
færri sæki kirkju og allflestir eiga velmeðfarið, líttlesið
eintak af Biblíunni í góðu bandi. En víða um heim er fólk
á þessari smndu dregið út af heimilum sínum, því mis-
þyrmt og það limlest fyrir að eiga Biblíu eða dirfast að fara
til messu. Aldrei hafa fleiri verið ofsóttir fyrir trú sína en
um þessar mundir. Um þessa staðreynd fjallar bókin Their
Blood Cries Out. Mér barst hún í hendur í haust, vinargjöf
frá Ingþóri Indriðasyni Isfeld, presti í Fyrstu lúthersku
kirkju í Winnipeg. Þetta er í einu orði sagt mögnuð bók
og ætti að vera skyldulesning prestum og öllum sem láta
sig mannréttindi og trúfrelsi varða. Paul Marshall er
heimspekingur og sérfræðingur í mannréttindum sem
kennir stjómmálafræði í Toronto og flytur fyrirlestra um
víða veröld, einkum um mannréttindi. Hann hefur borið
vitni um ofsóknir gegn kristnum mönnum fyrir
Helsinkinefnd Bandaríkjaþings og leiðir þriggja ára verk-
efni rannsóknateymis alþjóðlegra sérfræðinga um mann-
réttindi. Frásagnir hans eru studdar traustum heimildum
um kerfisbundnar ofsóknir í mörgum ríkjum heims. Mill-
jónatugir kristins fólks í meira en 60 ríkjum eru aðþrengd-
6