Bæjarins besta - 07.07.1999, Blaðsíða 2
tTtgefandl: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísafjörður HaUdór Sveinbjörnsson
■B 456 4560 Ritstjóri:
0456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson
ITetfang prentsmiðju: Blaðamaður:
hprent@snerpa.is Hlynur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar:
http://www.snerpa.is/bh bb@snerpa.is
Bæjarins besta er í samtökum öæjar- og héraðs-
fréttablaða. Eftirprentun, hJjóðritun, notkun ljósmynda
og annars efnis er óheimll nema heimilda sé getlð. k A
Fyrirtæki Rauða hersins stefna í gjaidþrot
Uppfylla ekki skilyrði fyr-
ir láni frá Byggðastofnun
Fyrirtæki Rauða hersins
svonefnda virðast ekki eiga
annað en gjaldþrot fyrir hönd-
um þegar greiðslustöðvun
lýkur í næstu viku. Verulega
skortir á forsendur þess að
stjórn Byggðastofnunar
treysti sér til að lána fyrir-
tækjunum 100-150 milljónir
króna af almannafé og hefur
lánsbeiðni verið hafnað. Eng-
ar líkur virðast til að forsendur
breytist þannig að lánveiting
fáist.Telja ntá að það sé nokk-
ur léttir fyrir flesta sem hlut
eiga að máli, þegar upp er
staðið, að ákveðin niðurstaða
fáist í málinu.
Bæjarráð ísafjarðarbæjar
kont sarnan á mánudag ásamt
bæjarstjóra og sat um kvöldið
fund með Átaki, íbúasamtök-
um á Þingeyri. Stefnt er að
því að skipa framkvæmda-
nefnd til að vinna að atvinnu-
málum á Þingeyri, og verður
þar fyrst horft til skammtíma-
verkefna.
r
I eina sæng
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna vann orustuna við Is-
lenskar sjávarafurðir um sölu á afurðum Utgerðarfélags
Akureyringa. Bæjarstjórn Akureyrar taldi sig hafa gert
góðan díl og brosið náði eyrna á milli.
Þegar fáni Samherjamanna var dreginn að húni á stolti ís-
firska togaraflotans, Guggunni, var stórstreymi í loforða-
flaumnum. Þeir sem efuðust um heilindi bæjarstjórans á
Isafirði og stjórnarformanns Samherja, sem opinberuðust í
einni og sömu persónu, voru litnir hornauga.
Grindvíski Þorbjörninn gleypti hinn bolvíska Bakka.
Blásið var í lúðra. Yfirlýsingar um betri tíð í bolvískri fisk-
vinnslu skrýddu síður dagblaðanna. Þegar Meitillinn í
Þorlákshöfn hvarf í gin Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum voru væntingar í hverju orði. Fyrirheitin voru ekki
skorin við nögl.
Hvað er komið á daginn?
„Sölumiðstöðin lokar starfsstöð áAkureyri.” - „Guðbjörg
IS seld frá Isafirði til Þýslalands.” - „Þorbjörn hættir
bolfiskvinnslu í Bolungarvík.” - „Uppsagnir Vinnslustöðv-
arinnar í Þorlákshöfn.”
Vonsvikinn bæjarstjóri þeirra Bolvfkinga segir að leiða
megi líkur að því að Þorbjarnarmenn hafi eingöngu komið
til Bolungarvíkur til að flytja bolfiskaflann á brott: „Að
fenginni reynslu hefði ég frekar kosið að þeir hefðu ekki
komið hingað.” Bolvíkingar fengu ekki þinglega áfallahjálp
líkt og Þorlákshafnarbúar og því vart við því að búast að
þeir haldi stóískri ró.
Og nú Ishúsfélagið. Og Hnífsdalur þar með orðinn eini
staðurinn á norðanverðum Vestfjörum þar sem ferðamenn
geta séð vinnslu fisks í hraðfrystihúsi. Öðruvísi mér áður
brá þegar framleiðsla frá þessu svæði skóp allt að þriðjungi
söluverðs Sölumiðstöðvarinnar á Ameríkumarkaði.
Vissulega hefði margt mátt betur fara í vestfirskri útgerð
og fiskvinnslu. Það breytir því samt ekki að eftir að eignar-
rétturinn var innleiddur í fiskveiðistjórnunina í stað afnota-
réttar þá eru mönnum allar bjargir bannaðar. Handhafi auð-
lindarinnar ráðstafar lifibrauði fólksins í sjávarplássunum
að eigin geðþótta og spyr engan að þegar hann telur sig
þurfa að verja hag sinn. I því liggur meinsemdin.
Meðan eignarréttur í stað afnotaréttar blífur í fiskveiði-
stjórnunarkerfinu skiptirengu hverhopparuppíhjáhverjum
til þess eins að bjarga eigin skinni og hirða millurnar sem
þingmennirnir okkar hafa gaukað að þeim.
Reyndar efast margir um að farsælasta leiðin í
sjávarútveginum sé að koma þessu öllu á fáeinar hendur
eins og nú er markvisst stefnt að af stjórnvöldum.
-s.h.
OÐÐ VIKUNNAD
Júlf / keisari
Nafn einræðisherrans Júlíusar Sesars (eða Caesars
skv. latneskri stafsetningu), sem myrtur var árið 44 fyrir
upphaf tímatals vors, lifir enn með tvennum hætti í
daglegu máli. Hann var í raun fyrsti keisari Rómaveldis
en arftakarnir tóku upp þann titil sem dreginn er af nafni
hans (Caesar/keisari).
Nú er júlímánuður, en Sesar leiðrétti og endurskoðaði
tímatalið auk þess að vera í kennslubókum talinn
mikilmenni sakir velheppnaðra manndrápa í styrjöldum
við Galla og Germani. Júlímánuður ber nafn Júlfusar
Sesars en einnig er júlíanska tímatalið kennt við hann.
Vestfjarðavíkingurinn 19
Gunnar „danski“
sigraði Magnús Ver
Gunnar „danski" Guðjónsson, sem hlaut nýlega titilinn
Sterkasti ntaður Islands, sigraði naumlega í aflraunakeppninni
Vestfjarðavíkingnum 1999 sem háð var í ísafjarðarbæ um
síðustu helgi. Hann var aðeins hálfu stigi á eftir Magnúsi Ver
Magnússyni, sem tjórum sinnum hefur unnið titilinn Sterkasti
maður heims. I þriðja sæti af keppendunum átta varð
Isfirðingurinn Svavar Már Einarsson og má það teljast afar
óvæntur árangur hjá þessum unga manni. Frá hluía keppninnar sem fmm fór í Neðstakaupstað.
Aðaifundur Atvinnuþróunarféiags Vestfjarða hf.
Aukin áhersla á mann-
líf í brefðum skilningi
Hjá Atvinnuþróunarfélagi
Vestfjarða hf. einkenndist
starfsárið 1998 af auknum
umsvifum. Gerðir voru nýir
samningar við Byggðastofn-
un um aukin rekstrarframlög
samhliða yfirtöku á hluta af
starfsemi stofnunarinnar á
Vestfjörðum. Á síðasta sumri
hélt félagið atvinnuvegasýn-
ingu á ísafirði. Félagið skrif-
aði undir viljayfirlýsingu unt
leigu á húsnæði í Þróunarsetri
Vestfjarða.
Aðalfundur félagsins var
haldinn sl. laugardag. I árs-
skýrslu stjómar segir, að óhætt
sé að fullyrða að Atvinnuþró-
unarfélag Vestfjarða hf. sé
orðið sýnilegt afl í atvinnulífi
og nýsköpun á Vestfjörðum.
Atvinnuþróunarfélag Vest-
tjarða hf. var stofnað í árslok
1996. Eigendur þess eru
Byggðastofnun (20%), Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga
(18%), Atkonur - sjálfseignar-
stofnun (15%) og fyrirtæki og
einstaklingar (47%). Hlutafé
er sex milljónir króna og eign-
ir alls um tíu milljónir króna.
Lítilsháttar rekstrartap varð á
síðasta ári eða rúmlega 42
þúsund, en rekstrartekjur árs-
ins voru um tuttugu milljónir.
Starfsmenn félagsins hafa
verið með fasta viðverutíma
utan ísafjarðar. Miðað er við
að vera einu sinni í mánuði í
Strandasýslu og í Vestur-
Barðastrandarsýslu og þrisvar
á ári á Reykhólum. Það fyrir-
komulag hefur reynst vei og
til stendur að koma einnig upp
fastri viðveru í Bolungarvík.
Einnig verður breyting á
viðveru íVestur-Barðastrand-
arsýslu nteð tilkomu starfs-
manns með aðsetur þar.
Varðandi horfur á starfsár-
inu 1999 segir nt.a. í skýrslu
stjórnar: „Almennt mun félag-
ið í auknum mæli taka að sér
verkefnisstjórn í stærri verk-
efnum í samvinnu við sveitar-
félögin á svæðinu eða samtök
íbúa. [...] Önnur verkefni með
Isafjarðarbæ eru m.a. rnark-
aðssetning sveitarfélagsins
sem viðkomustaðar fyrir
skemmtiferðaskip og ráðgjöf
í kynningarmálum bæjarins. í
Bolungarvík hefur Framfara-
félag Bolungarvíkur gert
samning við félagið urn leit
að nýjum verkefnum hjá starf-
andi fyrirtækjum í Bolungar-
vík. Áframhald verður á verk-
efni félagsins og Vesturbyggð-
ar ogTálknafjarðarhrepps um
starf atvinnuráðgjafa sem
staðsettur er á svæðinu. Á
Reykhólum ntun félagið
vinna á árinu verkefni unt
stefnumótun í ferðamálum. I
Strandasýslu hafa sveitarfé-
lögin við Steingrímsfjörð lýst
áhuga á að vinna að stefnu-
mótun í atvinnumálum svæð-
isins og starfi sérstaks at-
vinnuráðgjafa."
Á fundinunt lét Sigurður
Jónsson á Isafirði af stjórnar-
formennsku og tók sæti í vara-
stjórn og voru honum þökkuð
störfin. Sigurður ávarpaði
fundinn og lýsti m.a. þeirri
skoðun sinni, að vestfirskt
fjárfestingarfélag væri for-
gangsverkefni og mikilvægt
sé að ná hingað áhættufjár-
magni. Hann ræddi um þá
áherslubreytingu, að félagið
hafi í auknum mæli lagt
áherslu á mannlíf í breiðum
skilningi en ekki aðeins at-
vinnulíf, m.a. með endur-
menntun.
LEIKSKÓLINN EYRARSKJÓL
Laust er starf aðstoðarmatráðskonu í
eldhús áEyrarskjóli. Starfshlutfall er
60%.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í
síma 456 3685.
ÚTBOÐ, LÝSING INNANDYRA___________________
B æj arsj óður í safj arðarbæj ar óskar eft-
ir tilboðum í endurnýjun lýsingar í
leikskólanumEyrai'skjóli, ísafirði. Um
er að ræða að skipta um loftlampa og
setja upp 66 flúorlampa.
Útboðsgögn verða seld á bæjarskrif-
stofu frá og með miðvikudeginum 7.
júlí á kr. 2.000,- eintakið.
Tilboð í verkið verða opnuð á bæjar-
skrifstofu þriðjudaginn 13. júlí kl.
11:00.
Tæknideild ísafjarðarbœjar.
2
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1999