Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.07.1999, Síða 6

Bæjarins besta - 07.07.1999, Síða 6
Arlegur markaðsdagur í Bolungarvík Einar Agúst Yngvason sigraði í 10 km Reynir Pétursson sigraði í 10 km hlaupi hlaupi karla 16-39 ára. karla 50 ára og eldri. Karnivalbragur með alvaiiegu ívafi Markaðsdagurinn er árviss í Bolungarvík. Hann verður nk. sunnudag að þessu sinni oghefstkl. 14.TÍ1 sölu verður ýmiskonar varningur, m.a. ávextir og grænmeti, heima- gert bakkelsi, handverk, notuð föt, fjölærar plöntur o.m.fl. Þá verður fjölbreytt dagskrá fyrir börn og fullorðna í boði Kvennakórs Bolungarvíkur og ferðamálanefndar. Jafn- framt er ætlunin að safna fé til stuðnings Elísabetu Kristjáns- dóttur, sem hefur átt við krabbamein að stríða undan- farin ár. Meðal efnis á dag- skránni verður tónlistarflutn- ingur af ýmsu tagi, karaoke- keppni, tívolí og leiktæki fyrir yngstu börnin. Jóhannes Kristjánsson eftirherma af Ingjaldssandi skemmtir og hestar verða teymdir undir börnum og unglingum. Að auki verða ýmsar óvæntar uppákomur og má jafnvel vænta þess að bragurinn á svæðinu minni ákjötkveðju- hátíð hjá suðrænum þjóðum ef vel tekst til. Kvennakórinn verður einnig með bakkelsi og fleira til sölu til styrktar Elísabetu og fjölskyldu hennar og Kvenfélagið Brautin annast veitingasölu. Ýmsirlistamenn gefa vinnu sína og Flutninga- miðstöð Vestfjarða styrkir söfnunina. Þeir sem vilja koma og selja varning sinn á markaðsdegi í Bolungarvík geta fengið sölu- borð á leigu á kr. 500 á metr- ann. Skráning söluborða og í karaoke er í Finnabæ en einnig er hægt að skrá sig í sönginn á sjálfan markaðsdaginn. Nán- ari upplýsingar um allt sem viðkemur markaðsdeginum veitir Guðrún Stella Gissurar- dóttir. Markaðurinn verður við Verkalýðsgarði nn. „Of gott veðuru fyr- ír Oshlíðarhlaup Keppendur í Óshlíðar- hlaupinu um síðustu helgi voru samtals 58 á vega- lengdunum þremur, þar af 12 í hálfmaraþoni, 19 í tíu km hlaupi og 27 í fjögurra krn skemmtiskokki. Arangur var þokkalegur en þó vantaði tilfinnanlega sterka hlaupara á lands- mælikvarða, sem ósjaldan hafa sett mark sitt á hlaup- ið. Einnig má segja, að veður hafi jafnvel verið of gott, enda var dagurinn sólríkur og í heitara lagi og þegar hlaupið var und- an andvaranum hlupu menn í rauninni í logni. Þrír fyrstu í hálfmara- þoni voru Ólafur Th. Árnason (1.21.09). Jakob Einar Jakobsson (1.25.22) og Tom Anton H. Hansen (1.27.17). Þeir kepptu í flokki 16-39 ára. Fjórði í röðinni varð Styrmir Sig- urðsson, sem keppti í flokki 40-49 ára (1.38.04), en næstir í þeim flokki voru Árni Aðalbjarnarson (1.39.59) og Smári Haraldsson (1.54.22). Einn keppandi var í flokki 50 ára og eldri, Halldór Margeirsson (1.46.50). Tvær konur voru meðal keppenda í hálf-maraþoni, þær Rósa Þor-steinsdóttir (1.48.06) og Eygló Harðardóttir (2.03.58). I 10 km hlaupi voru sigur- vegarar í einstökum flokk- urn sem hér segir: Drengir 15 ára og yngri: Hjalti Rún- ar Oddsson, f. 1987 (58.49). Karlar 16-39 ára: Einar Ágúst Yngvason (43.55). Karlar 40-49 ára: Jóhann Guðnason (49.09). Karlar 50 ára og eldri: Reynir Péturs- son (49.53). Konur 16-39 ára: Sandra Dís Steinþórs- dóttir (47.57). Konur 40-49 ára: Helga Friðriksdóttir (65.21). I 4 km skemmtiskokki var ívar Pétursson fljótastur (18.03), en síðan komu Kristján Óskar Ásvaldsson (19.23), Auðunn Bragi Sal- marsson (19.45) og Ólafía Kristjánsdóttir (20.24). Árangur hinnar síðastnefndu hlýtur að teljast einkar athyglisverður, þar sem hún var elst af keppendunum 27 á þessari vegalengd. Hrafn Snorrason Ijós- myndari kemur í mark í 10 km hlaupi. Þóra Gunnarsdóttir lœknir við Fjórðungssjúkrahásið á Isafirði var á meðal keppenda. Slunkaríki og Edinborgarhúsió Sýning hefst með gjörningi Myndlistarmennirnir Sig- urður Guðmundsson og Her- rnann Pitz frá Þýskalandi opna sýningu í Slunkaríki og Ed- inborgarhúsinu á Isafirði á sunnudag kl. 16. Þessi við- burður hefst á gjörningi sem þeir framkvæma í Edinborg- arhúsinu en þar verða verk Hermanns. Að loknum gjörningi og léttum veitingum verður gengiðtil Slunkaríkis.þarsem til sýnis verða blýantsteikn- ingar Sigurðar og skúlptúrar hans úr graníti, en þá hefur hann unnið á síðustu tveimur árurn. Einnig sýnirhann lakk- ímyndir, unnar eftir aldagam- alli kínverskri aðferð, þar sem hver hlutur er lakkaður meira en hundrað sinnum og slípað- ur með viðarkolum. Allir eru velkomnir á opn- unina. Sýningartími í Slunka- ríki og Edinborg er kl. 16-18 fráfimmtudegi til sunnudags. Veitingastofa „Fjögurra félaga“ í Súðavík. Himinninn á myndinni segir meira en mörg orð um veðrið liér vestra að undanförnu. Veitingastofa Fjögurra féiaga í Súðavík „MjaUhvít og dvergarnir sjö“ „Fjórir félagar" í Súðavík eru búnir að færa út kvíarnar í rekstrinum. í vistlegu timbur- húsi skammt frá kirkjunni er nú opið kaffihús með ýmsu tilheyrandi alladagafráellefu á morgnana og til níu á kvöld- in. Á föstudags- og laugar- Fornbflar áferð Félagar í Fombílaklúbbi Islands lögðu leið sína vestur á ftrði í síðustu viku. Sjö ár eru frá því að félags- menn komu hingað síðast í hópferð á hinum glæsilegu farkostum sínum. Að þessu sinni áðu þeir meðal annars í Tungudalnum við Isa- fjörð, þar sem þessi mynd var tekin. dagskvöldum eropin kráog á krá. Nú eru „Fjórir félagar“ sunnudögumerkaffihlaðborð reyndar orðnir sjö talsins og síðdegis. Veröndin í kringum sumirSúðvrkingarnefnastað- húsið hefur verið stækkuð og inn Mjallhvíti og dvergana þar eru skjólveggir í kring. sjö. Mjallhvít vinnur hjá þeim HúsFjögurrafélagavarsett félögum og tekur vel á móti á núverandi stað fyrir um gestum. tveimur árunt og var þá opnuð 6 MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 1999

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.