Bæjarins besta - 14.07.1999, Blaðsíða 3
Friðar-
hlaupið
Friðarhlauparar lögðu
leið sína um Vestfirði í
síðustu viku.
Um tvö þúsund manns
munu hafa tekið þátt í
þessu boðhlaupi hringinn
í kringum Island og sést
hér einn þeirra á leið um
Vestfjarðagöng. Friðar-
hlaupið fer fram víða um
lönd, hefst á nýársdag ár
hvert og lýkur á gamlárs-
Go,f 1
Efnilegir
unglingar
Tólf börn og unglingar
tóku þátt í svæðismóti
Golfsantbands Islands á
Vestfjarðasvæði, sem
fram fór á golfvellinum í
Tungudal við Skutuls-
fjörð sl. sunnudag. I
flokki drengja 12 ára og
yngri urðu jafnir þeir
Birkir H. Sverrisson og
SigurðurFannarGrétars-
son á49 höggum alls eða
31 höggi nettó.
í flokki drengja 13-15
ára sigraði Gunnar Ingi
Elvarsson á 57 höggum
alls eða 39 höggurn. I
öðru sæti varð Gunn-
laugur Jónasson á 60
höggum alls eða 42
höggum.
í flokki stúlkna 13-15
ára sigraði Aðalbjörg
Sigurjónsdóttir á 82
höggum alls eða 61
höggi nettó. I öðru sæti
varð Arna Grétarsdóttir
á 96 höggum alls eða 75
l höggum nettó. J
Landsmót unglingadeilda
Um 400 nianns
Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins 1999 var
haldið í Skálavík um síðustu helgi undir kjörorðinu Unglingar
á nýrri öld. Þátttakendur voru um fjögur hundruð, þar af um
þrjú hundruð unglingar á aldrinum 14-18 ára og um hundrað
starfsmenn. Björgunarsveitin Tindar í Hnífsdal hafði umsjón
með mótinu með góðu liðsinni Björgunarsveitarinnar Ernis í
Bolungarvík. Komið var upp tjaldbúðum þar sem þátttakendur
bjuggu meðan á mótinu stóð.
Mótið hófst sl. fimmtudagskvöld og stóð til hádegis á
sunnudag. Margir þættir björgunarstarfa á sjó og landi voru
æfðir, svo sem skyndihjálp, rústabjörgun, sig (tankarnir hjá
Shell í Bolungarvík reyndust góðir til þeirra þarfa), notkun
fluglínu og slöngubáta og notkun snjóflóðaýla, auk þess sem
var farið í ratleik. Kvöldvökur voru bæði á föstudagskvöld og
laugardagskvöld og kveiktir varðeldar og farið var í sund í
Bolungarvík, enda eru mót þessi ætluð bæði til gagns og
skemmtunar.
Landsmót unglingadeildanna eru haldin annað hvert ár.
Tankarnir hjá Shell í Bolungarvík komu í góðar þarfir við
œfingar í sigi.
Þjónusta á Hólmavík
Skammtímavist-
un fyrir fatlaða
- sambýli stofnað á næsta vori
Ný skammtímavistun fyrir
fatlaða var opnuð á Hólma-
vík í síðasta mánuði. Vist-
unin verður starfrækt í tvo
mánuði samfleytt í sumar og
svo aðra hverja viku næsta
vetur. Síðan er áformað að
starfsemin breytist í sambýli
á næsta vori.
Hér er um að ræða nýja
þjónustu, sem er í samræmi
við þá stefnu Svæðisskrif-
stofu málefna fatlaðra á
Vestfjörðum, að veita fötl-
uðu fólki þjónustu í heima-
byggð. Skipulagning starf-
seminnar er samvinnuverk-
efni Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra, Hólmavfkur-
hrepps og Kaldrananes-
hrepps. Stöðugildi eru þrjú
en starfsmenn eru ftmm.
Frá opnu hási hjá Svœðisskrifstofu málefna fatlaðra.
Ákvörðun stjórnenda Básafells hf. um sölu á togaranum S/éttanesi
Harkaleg viðbrögð
- áfall fyrir okkur öll hér vestra, segir Einar K. Guðfinnsson
Ákvörðun stjórnenda Bása-
fells hf. um að selja togarann
Sléttanes hefur vakið mjög
hörð viðbrögð. Gagnrýnendur
halda því fram, að með þessu
sé verið að slátra mjólkurkú
fyrirtækisins og hugmyndir
um að efla fyrirtækið í staðinn
með því að koma upp bolfisk-
vinnslu á ísafirði séu af ýms-
unt ástæðum lítt raunhæfar.
Fyrrverandi bæjarfulltrúi á
ísaftrði, sem gjörþekkir at-
vinnumálin hér vestra (hér er
ekki átt við Halldór Jónsson),
sagði í samtali við blaðið, að
hann teldi yfirlýsingar vegna
þessara aðgerða hjá Básafelli
hreina sýndarmennsku og
blekkingar. Þetta væri fyrsta
skrefið í þá átt að slátra fyrir-
tækinu og flytja eignir þess
burt af svæðinu. Salan á
Sléttanesinu og kvótanum
væri ekki til þess að gæta
hagsmuna Básafells sent at-
vinnufyrirtækis á Isafirði,
heldur væri tilgangurinn ein-
hver allt annar og væri hans
að leita hjá fjármálamönnum
annars staðar á landinu.
Halldór Jónsson, sem sagt
var upp störfum hjá fyrirtæk-
inu í síðustu viku, hefur einnig
gagnrýnt þessa sölu harka-
lega.
„Mér líst mjög þunglega á
þá ákvörðun að selja Slétta-
nesið“, sagði Einar K. Guð-
fmnsson alþingismaður í sam-
tali við BB. „Skipið er mjög
verðmætur vinnustaður fyrir
marga hér á svæðinu, auk þess
sem það hefur skipt mjög
miklu máli fyrir tekjuöflun
fyrirtækisins. Þetta er hins
vegar ákvörðun stjórnend-
anna og erfitl fyrir þá sem
standa utan við að hafa áhrif
þar á. Ég lít hins vegar þannig
á, að með þessum aðgerðum
séu stjórnendurnir fyrir sitt
leyti að treysta grundvöll
Básafells til framtíðar. Ég
bendi á, að Básafell á eignir
langt umfram skuldir, þannig
að ég trúi því að fyrirtækið
geti eflst. Það hefur verið mjög
mikil vægur hlekkur í atvinnu-
lífí á Vestfjörðum og ég trúi
því að svo verði áfram. Þessi
eignasala er hins vegar heil-
mikið áfall fyrir okkur öll hér
vestra. Það hefur einnig komið
fram hjá stjórnendum, að þeir
Itaft ýmislegt annað á prjón-
unum sem lúti að uppbygg-
ingu fyrirtækisins. Ég tel afar
mikil vægt fyrir okkur sem hér
búum að þeir fari að greina
frá því opinberlega hvað í því
felst, þannig að hægt sé að
átta sig á því hvað framtíðin
muni bera í skauti sér.“
Vikan
framundan
Miðvikudagur 14. júlí
Þennan dag árið 1974 var
vegurinn yfir Skeiðarársand
opnaður og þar með var lok-
ið við hringveginn um land-
ið. Vegalengdin milli Núps-
staðar og Skaftafells styttist
út tæpum 1.400 kílómetrum
í 34 kílómetra. Byggðar
voru tólf brýr, samanlagt
2.004 metrar að lengd, þar
af var Skeiðarárbrú 904
metrar, lengsta brú landsins.
Fimmtudagur 15. júlí
Þennan dag árið 1970 varð
stórbruni í verkstæðisbygg-
ingu Strætisvagna Reykja-
víkur. Meðal annars brunnu
þrír strætisvagnar.
Föstudagur 16. júlí
Þennan dag árið 1955 kom
Dwight D. Eisenhower for-
seti Bandaríkjanna í stutta
heimsókn til Islands á leið
frá Bandaríkjunum til
Evrópu.
Laugardagur 17. júlí
Þennan dag árið 1991 skor-
aði Arnór Guðjohnsen tjög-
ur mörk í landsleik í knatt-
spyrnu við Tyrki og endur-
tók þannig afrek Ríkarðs
Jónssonar fjörutíu árum
áður.
Sunnudagur 18. júlí
Þennan dag árið 1918 voru
undirritaðir samningar um
frumvarp til sambandslaga.
Frumvarpið var samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslu 19.
október og lögin tóku gildi
1. desember. Með þeim var
endurreist sjálfstætt og full-
valda ríki á Islandi en í kon-
ungssambandi við Dan-
mörku.
Mánudagur 19. júlí
Þennan dag árið 1974 stóð
varðskipið Þór breska tog-
arann C.S.Forester að ólög-
legum veiðum og varð að
elta hann um 120 mílur á
haf út. Varðskipið skaut átta
skotum að togaranum og
kom leki að honum. Skip-
stjórinn Dick Taylor, hlaut
fangelsisdóm fyrir brotið.
Þriðjudagur 20. júlí
Þennan dag var síðasti hval-
urinn veiddur við Island
samkvæmt vísindaáætlun.
Hann kom á land í hvalstöð-
inni í Hvalftrði og hvalveið-
um lauk, a.m.k. um sinn.
Auglýsingar
og áskrift
sími
456 4560
MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 1999 3