Bæjarins besta - 14.07.1999, Qupperneq 4
Fasteignaviðskipti
C3
I
S
v
fi
bn
‘33
m
Hlíðarvegur 31:
130 m2 einbýlishús á 2 hæðum ásamt bílskúr.
Húsið er nær allt uppgert að utan sem innan.
Mjög gott útsýni. Skipti á stærri eign möguleg.
Verð 10,7 m.kr.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
Hafnarstræti 1 - ísafiröi
Simar: 456 3940 & 456 3244
Fax: 456 4547 - Netfang: tryggvi@snerpaJs
ATHUGIÐ
Vegna mikillar eftirspurnar vantar
einbýlishús og stærri íbúðir á söluskrá
Einbýlishús / mðhus
Engjavegur 12:210 m2 einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt
innbyggðum bílskúr. Áhv. 5,7
m.kr. Verð 9,5 m.kr.
Góuholt 12: 169 m2 einbýlishús
á einni hæð ásamt bílskúr. Áhv.
ca. 700 þús.kr.Verð 9,6 m.kr.
Hafraholt 22: 144,4 m2 enda-
raðhús á tveimur hæðum ásanit
22,4 m2 bílskúr. Skipti á minni
eign möguleg. Áhv. ca. 2,5 m.kr.
Verð 9,5 m.kr.
Hjallavegur 4: 242 m2 einbýlis-
hus á tveimur hæðum ásamt bíl-
skúr. Fallegtútsýni. Tilboðóskast
Hjallavegur 19:242 m2 einbýlis-
hús á 2 hæðum ásamt innbyggð-
um bílskúr. Sér íbúð á n.h. Yrnis
skipti möguleg. Áhv. ca. 5 m.kr.
Verð 10,5 m.kr.
Hlíðarvegur 14: 170,8 m2 ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
risi. Húsið er mikið endurnýjað,
ekkert áhvflandi. Verð 10,5 m.kr.
Hlíðarvegur 36: 186 m2 enda
raðhús á þremur hæðurn í góðu
standi. Tilboð óskast
ísafjarðarvegur 4: 96,4 m2 ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
bflskúr. Húsiðeraðhluta uppgert.
Áhv.ca. l,8m.kr.Verð6,5m.kr.
Seljalandsvegur 68: 177 m2
einbýlishús á einni hæð ásamt
rislofti. Verð 11 m.kr.
Silfurgata 9: 150 m2 gamalt ein-
býlishús á besta stað í bænum.
Barnavænn og sólríkur garður,
mikið geymslupláss, bílastæði og
eignarlóð. Áhv. ca. 2,6 m.kr.
Verð 6,9 m.kr.
Urðarvegur 2: 213 m2 einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Húsið er mikið uppgert
og f góðu standi. Tilboð óskast
Urðarvegur 26:236.9 m2 raðhús
á tveinuir hæðum ásamt inn-
byggðum bílskúr. Ekkert
áhvílandi. Skipti á minni eign
koma til greina. Verð 11,8 m.kr.
Urðarvegur 64:214 m2 raðhús á
tveimur hæðum ásamt bílskúr.
Tilboð óskast.
4-6 herb. íbúðir
Fjarðarstræti 14: 163 m2 4ra
herbergja íbúð á n.h. í tvíbýlishúsi
ásamt kjallara og geymsluskúr.
Áhv.ca. 1,5 m.kr.Verð6,2m.kr.
Fjarðarstræti 38: 130 m2 4ra
herbergja íbúð á tveimur hæðum
í þrfbýlishúsi. Áhv. ca. 3,4 millj.
Verð 7 m.kr.
Hafnarstræti 6: 158 m2 6 herb.
íbúð á 3ju hæð í fjölbýli. Skipti á
minni eign möguleg. Áhv. 4,5
m.kr. Verð 6,9 m.kr.
Pólgata 5a: 127,7 m2 5 herbergja
íbúð á efri hæð í þríbýlishúsi
ásamt helmingi kjallara.
Verð 5,5 m.kr.
Seljalandsvegur 20: 161,2 m2
5-6 herb. íbúð á efri hæð í
tvíb.húsi ásamt bílskúr. Ibúðin
mikið uppgerð. Áhv. ca. 5.2 m.kr.
Verð 10,7 m.kr.
Seljalandsvegur67:116,2m24ra
herbergja íbúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi. Ibúðin endurnýjuð
að hluta. Áhv. ca. 4,2 m.kr.
Verð 7,2 m.kr.
Stórholt 13: 122.9 m2 4ra herb.
íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi
ásamt bílskúr. Verð 7,6 m.kr.
Túngata 12: 98,9 m2 4ra
herbergja íbúð á efri hæð í
þríbýlishúsi. Áhv. ca. 3,7 m.kr.
Verð 7,2 m.kr.
Aðalstræti 20: 98 m2 íbúð á 2.
hæð t.h. í fjölbýlishúsi ásamt sér
geymslu. Áhv. ca. 4,2 m.kr.
Verð 6,9 m.kr.
Brunngata 12a: 68 m2 íbúð
á efri hæð, að hluta undir risi, í
tvíb.húsi ásamt sér geymslu.
Áhv. ca. 1.8 m.kr. Verð 3 m.kr.
Fjarðarstræti 13: 80 m2 íbúð
á efri hæð í tvíbýlishúsi. Tvö
aukaherbergi, eitt í kjallara og
eitt í risi. Áhv. ca. 1,5 m.kr.
Verð 5,7 m.kr.
Mjallargata 1: 76,5 m2 íbúð á
2. hæð í fjölbýlishúsi, sér
inngangur, íbúðin er í góðu
standi. Áhv. ca. 5 m.kr.
Verð 7 m.kr.
Sólgata 8: 80 m2 ibúð á neðri
hæð f þríbýlishúsi í góðu standi.
Áhv. ca. 3 m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Stórholt 7: 74.6 m2 íbúð á 3ju
hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu. Áhv. ca. 2
m.kr. Verð 5,3 m.kr.
Stórholt 9: 80,9 m2 góð íbúð á
1. hæð í fjölbýlishúsi ásamt sér
geymslu og sameign. Áhv. ca.
2,4 m.kr. Verð 5,3 m.kr.
Stórholt 13: 79,2 m2 fbúð á 3ju
hæð til hægri í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu. Skoða öll
tilboð. Möguleiki að taka bíl
uppí. Áhv. ca. 3 m.kr.
Verð 5,5 m.kr.
Túngata 20: 75 m2 fbúð á 1.
hæð í uppgerðu fjölbýlishúsi.
Ibúðin er mikið uppgerð og í
góðu standi. Áhv. ca. 3 m.kr.
Verð 6,7 m.kr.
Hlíðarvegur 18: 64,5 m2 íbúð
á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Áhv.
ca. 1,7 m.kr. Tilboð óskast.
Mjallargata 1: 67,9 m2 íbúð í
góðu standi á 2. hæð í fjölbýlis-
húsi. Áhv. ca. 3,6 nt.kr.
Verð 6,5 m.kr.
Túngata 18: 53,4 m2 ibúð á 1.
hæð í nýlega uppgerðu fjölbýlís-
húsi ásamt sér geymslu.
Verð 4,9 m.kr.
Túngata 20:53,4 m2 íbúð á 3ju
hæð fyrir miðju í uppgerðu
fjölbýlishúsi. Áhv. ca. 2 m.kr.
Verð 4,9 m.kr.
Urðarvegur 78: 73,2 m2 íbúð
á3juhæof.m. í fjölb.húsi ásamt
sérgeymslu. Ibúðin er laus strax.
Öll tilboð skoðuð. Áhv. ca.
2,7m.kr. Verð 5 m.kr.
tun sn k
Vitastígur 25b: 101 m2 4ra
herbergja íbúð í fjölbýlisihúsi.
Sér inngangur. Áhv. ca. 1 m.kr.
Tilboð óskast.
Diídú ásamt börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum í garðinum hjá Bjarndísi Friðriksdóttur á ísafirði.
Á heimaslóðum eftir 53 ár í Ameríku
Einu sinni ísfirðing-
ur, alltaf Isfirðingur
- kærastinn ameríski stóð í þeirri trú fram að hjónabandi að væntanleg
eiginkona væri að verða tvítug - en í raun var hún sextán ára
Guðrún Guðleifs Bjarnadóttir, kölluð Dúdú, er á
leið til Bandaríkjanna rétt í þann mund sem þetta
blað kemur út. Hún hefur verið búsett vestanhafs
meira en hálfa öld og var í heimsókn á ísafirði - eða
réttara sagt, hún var að koma heim til ísafjarðar.
Það virðist heldur ósennilegt, að þessi fallega og
glæsilega og glaðlega kona sé orðin sjötug. Reyndar
segist hún héðan í frá ætla að ljúga til um aldurinn
og segja alltaf að hún sé sextíu og níu ára. Þeirri
lygi verður áreiðanlega trúað vel og lengi. Alveg
eins og þegar hún sextán ára gömul laug til um
aldurinn og sagði tilvonandi manni sínum að hún
væri að verða tvítug. Hann komst ekki að hinu
sanna fyrr en þau voru í þann veginn að ganga í
hjónaband og flytjast vestur um haf.
Dúdú er fædd „á Horn-
inu“ á Isafírði, rétt við póst-
húsið og ólst upp í stórum
systkinahópi. Börnin á
heimilinu urðu fjórtán og
þar af komust þrettán til ald-
urs. Tvíburasystir Dúdúar er
Elsa Bjarnadóttir og þær
systur héldu saman upp á
sjötugsafmælið fyrir nokkru.
Meðal bræðranna má nefna
Jón Aðalbjörn, ljósmyndara
í Kópavogi, Pétur Bjarnason
skipstjóra og Friðrik heitinn
Bjarnason, öðru nafni Didda
málara eða Didda á Horn-
inu. Og það er einmitt á
heimili Bjarndísar málara,
dóttur Didda á Horninu, sem
við hittum Dúdú í síðustu
viku. Hún kom til landsins
snemrna í síðasta mánuði en
börn hennar tvö. Herdís og
Roger ásamt mökum sínum
og börnunt, komu fyrir um
hálfum mánuði. Hópurinn
var allur á ísafirði og fór
víða og yngra fólkið gekk á
fjöll. „Það er yndislegt að
koma á Þingvöll og allt það,
en að korna á ísafjörð er að
koma heim“, segja þau.
Bjarndís segir undirrituð-
um að það hafi alltaf verið
sérstakur viðburður í upp-
vexti hennar þegar Dúdú
kom til Isafjarðar með
krakkana. „Það vissi allur
bærinn að Dúdú væri að
koma.“
En hver var ástæðan fyrir
því að þessi ísfirska stúlka
fluttist bráðung vestur um
haf í lok seinni heimsstyrj-
aldar?
„Eg giftist Ameríkana
sem ég kynntist hjá vinkonu
minni í Reykjavík. Ég var
rétt komin suður þegar ég
kynntist honum. Vinkona
mín var trúlofuð Ameríkana
og hún spurði hvort ég vildi
konta á á „biind date“ eins
og það var kallað og hitta
Guðrún G. Bjarnadóttir.
vin kærastans hennar. Ég
sagði já og varð strax hrifin
af honurn. Ég veit ekki hvort
hann varð strax hrifinn af
mér! Ég varð sextán ára í
maí en hitti hann í júní. Þú
þarft nú ekki að láta það
koma í blaðinu! Ég sagði
honum að ég væri nítján ára.
Hann vissi ekki að ég var
sextán ára fyrr en þegar við
vorum að fara að gifta okk-
ur. Pabbi vildi ekki að ég
færi út lil Bandaríkjanna
ógift. Mamma sagði við
kærastann minn að hann
væri að taka mig úr vögg-
unni. Hún er nú rétt að verða
tvítug, svaraði hann. Tvítug!
sagði mamma, hún er bara
sextán ára! Hann sagði þá
við ntig að hann hefði ekki
farið út með mér hefði hann
vitað þetta. Hættu þá bara
við, sagði ég. En þá sagði
hann: Ég elska þig! Þetta var
ákaflega gott hjónaband.“
Börnin þeirra urðu þrjú en
það yngsta, soninn Bjama,
misstu þau þegar hann var
ársgamall. Herdís dóttir
þeirra eignaðist fimm drengi
en missti einn þeirra í slysi í
Þýskalandi, þar sem hann
var atvinnumaður í körfu-
bolta. Roger á einn son.
Það var óskaplega mikið
ferðalag að fara til Banda-
ríkjanna árið 1946. „Maður-
inn minn fór með herflugvél
en ég var send með stóru
liðsflutningaskipi. Við vor-
urn eitthvað um þrjátíu kon-
ur unt borð og líklega fimm
börn. Annars voru þetta allt
hermenn um borð. Síðan fór
ég alltaf flugleiðis á milli og
framan af var millilent í
Gander á Nýfundnalandi.
Þetta var dálítið erfitt fyrir
mömmu. Henni fannst ég
vera í annarri veröld. Þegar
hún kom að heimsækja mig
hafði hún aldrei farið frá
íslandi áður. Pabbi hafði aft-
ur á móti verið á skipum og
séð miklu meira. Núna er
maður nokkra klukkutíma
að skjótast heim til íslands.
Ég er eins lengi að fara þvert
yfir Bandaríkin. Systurdóttir
mín var að útskrifast úr há-
skóla í Seattle og ég var
nærri fimm tíma að fljúga
frá Louisville í Kentucky og
þvert yfir landið til að vera
við útskriftina. Ég flýg til
Islands á rúmum fimnt tím-
um frá Baltimore."
Dúdú missti manninn sinn
4
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999