Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.11.1999, Page 1

Bæjarins besta - 10.11.1999, Page 1
1 /ÆR NÝ|AM ÆVISÓSUR SEM VEKJÁ ATHYGU EiWAR BEWEDIK7SSON 2» faiiull sStíir Gw$for) Ff’idrik&s&n EULBA efeir ginnfaft-£a Hfermanna^qi B C> j IMLAÐAj J SIM14S6 3523 Stofnað 14. növember 1984 • Slmi 4SB 4S6D • Fax 45B 4564 • Netfang: öö@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk Ágreiningsefnin í Holtssókn óleyst Málinu vísaö attur r tfl biskups Islands - almennur safnaðarfundur harmar niðurstöðu úrskurðarnefndar Ekki eru útkljáð margvísleg kærumál sóknarbarna sr. Gunnars Björnssonar í Holti í Önundarfirði áhendurprestin- um þótt úrskurðarnefnd þjóð- kirkjunnar hafi fjallað um þau og skilað niðurstöðu. Nefndin taldi ekki liggja fyrir sannanir um trúnaðarbrot af hálfu sókn- arprestsins og treysti sér ekki til að fjalla um önnur kærumál og vísaði þeirn aftur til bisk- ups. Almennur safnaðarfundur var haldinn í Holtsskóla sl. laugardag, þar sem sóknar- nefnd greindi söfnuðinum frá niðurstöðum úrskurðarnefnd- arinnar. Á fundinum var sam- þykkt ályktun þar sem harmað var að nefndin „skuli ekki hafa vald til að korna með lausn í málinu, þó hún taki í öllum aðalatriðum undir sjónarmið Holtssóknar, en vísar rnálinu til biskups Islands. Fyrir ligg- ur að biskup Islands benti Holtssókn á að fara með málið til úrskurðarnefndar í apríl sl. eftir að hafa verið með málið til úrlausnar í eitt ár“, eins og segir í ályktun fundarins. Sjá nánar á bls. 3. Frá opnun starfsstöðvarinnar á ísafirði. Á myndinni má meðal annars sjá þá Rafit Jónsson, einn eigenda Islenskrar miðlunar og Halldór Kristmannsson forstöðumann fyrirtœkisins á norðanverðum Vestfjörðum. íslensk miðlun opnar tvær nýjar starfsstöðvar Yfir fimmtíu starfsmenn Hinar nýju starfsstöðvar fyrirtækið til húsa í Lamb- Þar rneð eru stöðvar Is- íslenskrar miðlunar í Bol- haga. Á ísafirði hófu sautján lenskrarmiðlunaríísafjarð- ungarvík og á Isafirði voru rnanns störf í húsakynnum arbæ orðnar þrjár og starfs- opnaðarsl. laugardag. I upp- sem fyrirtækið hefur tekið á fólkfyrirtækisinsíísafjarð- hafi eru starfsmennirnir í leigu í húsi íshúsfélags ísfirð- arbæogíBoIungarvíkkom- Bolungarvík tólf en þar er inga við Eyrargötu. ið yfir fimmtíu. - sjá viðta! við Konráð Eggertsson rækjuveiðimann með meiru á bls. 9 Súðavíkurhlíð Mörg snjóflóð Mörg snjóflóð féllu á veg- inn um Súðavíkurhlíð í fann- komunni í síðustu viku, flest á fimmtudagsmorguninn og þar af fjögur stór. Mikil óánægja ríkir meðal sveitarstjórnarmanna í Súða- vík vegna þess sem þeir kalla framtaksleysi og úrræðaleysi í ofanflóðavörnum á Súðavík- urhlíð. Sveitarstjóri Súðavíkur- hrepps segir slíkt kalla á kröf- ur um jarðgöng milli Isafjarð- ar og Súðavíkur, enda sé þessi leið ekkert einkamál Súðvík- inga heldur fyrst og fremst tenging um sex þúsund íbúa á norðanverðum Vestfjörðum við þjóðvegakerfi landsins. Sjá bls. 5. Rolungarvík Stefnumótun í atvinnumálum Bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur ákveðið að móta stefnu bæjarins í atvinnumálum með skipulegum hætti. Markaðs- ráðgjafi Atvinnuþróunarfé- lags Vestfjarða mun stýra verkefninu en ráðgjafar frá Iðntæknistofnun leiða sjálfa vinnuna og veita faglega ráð- gjöf- Verkefnið er unnið í fjórum 8-10 manna vinnuhópum. Að loknu starfi vinnuhópanna mun verkefnisstjórn sam- ræma tillögur þeirra og verður þannig mótuð heildstæð stefna í atvinnumálum og auk þess skýrðar hugmyndir urn fyrstu aðgerðir.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.