Bæjarins besta - 10.11.1999, Page 2
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. í Hnífsdal
Útgefandi: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísafjörður Halldór Sveinbjörnsson
® 456 4560 Kitstjóri:
0456 4564 SigurjónJ. Sigurðsson
Netfang prentsmiðju: Blaðamaður:
hprent@snerpa.is Hiynur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar:
http://www.snerpa.is/bh bb@snerpa.is
Bæjarins besta er í samtökum Uæjar- og héraðs-
fréttablaða. Eftirprentun, hijóðritun, notkun Ijósmynda
og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. L A
■HjHiaJMW
„Veraldar dæm-
in varast skaltu
í byrjun viku sýndi sjónvarpið hvar fatlað fólk lagði
áherslu á þá kröfu að fatlaður einstaklingur nyti þeirra
sjálfsögðu mannréttinda, að glata ekki rétti, sem samfé-
lagið hefur búið honum, fyrir það eitt að bindast annarri
mannveru tilfinningaböndum. Þetta gerði fólkið með því
að mæta í réttarsal, þar sem nú skal á það reynt hvort
venslun fatlaðs einstaklings leiði til þess að ríkisvaldið
losni sjálfkrafa undan skyldum sínum við hinn fatlaða, í
spamaðarskyni, þar sem nú hljóti honum að vera borgið.
Svo „skemmtilega", og þykir þá rétt að hafa orðið
innan tilvísunarmerkja, vildi til að sama dag greindi DV
frá líkamsræktarferð íslenskra þingmanna til kollega sinna
færeyskra, sem rétt eins og mörlandinn eru alltaf í bolt-
anum. Nú mun ekki af veita að þingmenn búi yfir einhverju
þreki og er þá ekki verra að það sé líkamlegt en hvað
annað. Þá skal heldur ekki nánasast út af því að þingmenn
njóti styrkja til þessar iðju. Því eins og sagt er um ungl-
ingana: þeir gera þá ekkert af sér á meðan.
Það væri sparðatíningur að býsnast yfir sólarhrings
leigu á flugvél, þegar þeirrar hagsýni var gætt að velja
ódýrasta ferðamátann, og sýna þar að auki það góða for-
dæmi að ganga á takmarkaða vasapeninga til líkams-
þarfa og stússa auk þess í leiðinlegum búningaþvotti.
Þingmenn mega líka trúa því, sjálfum sér til hugsvölunar,
að með tuðrusparkinu sýni Alþingi Islendinga Færeying-
um sérstakt vinarbragð. Ef til vill felst sérstaðan í þeirri
kurteisi að gera út um leikinn með sjálfsmarki.
Framhjá einu verður þó ekki gengið. I svörum þing-
manna við spurningum DV um Færeyjaferðina opinberast
með einstæðum hætti dæmalaus fyrirlitning, dramb og
lítilsvirðing við almenning í landinu:
„Hvem varðar um það hvað er borgað fyrir það sem
maður fer svona?“ Hér talar maður valdsins. Skilaboðin
til almennings eru einföld: Ykkur kemur þetta.ekkert
við. Ykkur er nær að hugsa um eitthvað annað. Það má
líka orða það svo, að almenningi sé ekki seinna vænna að
minnast eftirfarandi varnarorða um yfirvöld hvers tíma
og hlíta þeim:
„Veraldar dæmin varast skalt,
voga þú ekki að gjöra það allt,
sem höfðingjamir hafast að,
þó heimurinn kalli loflegt það.
Þá blindur leiðir blindan hér,
báðum þeim hætt við falli er.“
Við þetta er því einu að bæta að fátt er svo með öllu illt
að ekki megi hafa af dulitla skemmtan.
s.h.
OÐÐ VIKUNNAÐ
Ljótur
Mannsnafnið Ljótur er nú útdautt en var gott og gilt í árdaga
íslandsbyggðar. Þótt undarlegt megi virðast er orðið Ijótur
skylt orðinu Ijós og hefur upphaflega táknað birtu og fegurð.
Enda þótt nafnið Ljótur væri enn lifandi fyrir þúsund árum
hafði lýsingarorðið þá þegar fengið núverandi merkingu. Það
kemur m.a. vel fram í Egils sögu, en Egill Skalla-Grímsson,
sem lést fyrir einni þúsöld og fáum árum betur, þótti heldur
ófríður. I Höfuðlausn segir hann meira að segja sjálfur að hann
sé ljótur en vill þrátt fyrir það eiga höfuð sitt áfram.
Grandi hf. kaupir
fyrir uni 550 milljónir
- Þormóður rammi - Sæberg hf. selur 3/4 af eignarhluta sínum
eftir að hafa tvöfaldað hann í síðasta mánuði
Útgerðarfyrirtækið Grandi
hf. í Reykjavík hefur keypt
þrjá fjórðu af eignarhluta Þor-
móðs ramma - Sæbergs hf. á
Siglufirði í Hraðfrystihúsinu
- Gunnvöru hf. íHnífsdal. Hér
er um að ræða 15% eignar-
hluta í Hraðfrystihúsinu -
Gunnvöru hf. að nafnvirði um
90 milljónir króna en að mark-
aðsvirði um 550 nrilljónir
króna. í síðasta mánuði keypti
Þormóður rammi - Sæberg hf.
10,2% hlut í Hraðfrystihúsinu
- Gunnvöru hf. af íslands-
banka en átti áður 10% og átti
ísafjarðarkirkja
ímyndhlns
ósýnilega
Annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld kl. 20:30 heldur
dr. Gunnar Kristjánsson er-
indi um kirkjulega list í
safnaðarheimili Isafjarðar-
kirkju.
Erindi dr. Gunnars nefn-
ist „ímynd hins ósýnilega“
og er um list og trú innan
kirkju og utan. 1 framhaldi
af erindinu verða umræður
um væntanlega altaristöflu
kirkjunnar.
ísaQörður
Félagsmiðstöð
GI10 ára
Opið hús verður í Félags-
miðstöðinni við Austurveg
á ísafirði milli kl. 13 og 17
á laugardaginn, 13. nóvem-
ber, en þann dag á hún tíu
ára afmæli. Boðið verður
upp á léttar veitingar og líf-
leg skemmtiatriði í tilefni
afmælisins.
Frá upphafi hefur Jón
Björnsson hefur verið for-
stöðumaður Félagsmið-
stöðvarinnar, en aðrar slíkar
víða um land hafa löngum
horft til félagsstarfsins á
ísafirði sem fyrirmyndar.
Margt hefur breyst á þess-
um tíu árum en stærsta
breytingin varð við samein-
ingu sveitarfélaganna í ísa-
fjarðarbæ á sínum tíma. Þá
voru opnuð útibú á Flateyri,
Suðureyri og Þingeyri og
þar með varð Félagsmið-
stöð ísafjarðarbæjar sú víð-
feðmasta á landinu.
Fyrirhuguð er vegleg af-
mælisdagskrá í Félagsmið-
stöðinni samfleytt um
tveggja vikna skeið og auk
þess verður gefið út mynd-
arlegt afmælisrit.
því liðlega fimmtung í fyrir-
tækinu fyrir söluna nú.
Jafnframt þessari kaupum
hefur Grandi hf. selt Þormóði
ramma - Sæbergi hf. 90% í
fiskvinnslufyrirtækinu Amesi
hf. í Þorlákshöfn. Þessar til-
færingar eru dæmigerðar fyrir
það sem er að gerast í sjávar-
útvegi og fiskvinnslu á Islandi
um þessar mundir. Stórfyrir-
tækin stokka sig saman og
jafnframt liggur við að allir
eigi hlut í öllum. Þannig á
Grandi hf. 20% hlut í Þormóði
ramma - Sæbergi hf. og var
því í rauninni að hluta til að
kaupa eigin eign með kaup-
unum í Hraðfrystihúsinu -
Gunnvöru hf. nú.
ÍSAFJARÐARBÆR
ORÐSENDING TIL ÍBÚA
ÍSAFJARÐARBÆJAR
Þar sem nú er unnið að nýrri þjóðskrá
m. v. 1. desember 1999 er íbúum sveit-
arfélagsins bent á að tilky nna um breytt
lögheimili sem allra fyrst.
Eigendum íbúða er skylt að fylgjast
með búsetuskráningu leigjenda sinna.
Forstöðumenn fyrirtækja og stofn-
ana eru hvattir til að tilkynna um nýtt
starfsfólk.
IVinsamlegast hafið samband við
manntalsfulltrúa í síma 456 3722.
Bœjarstjórinn í ísafjarðarbæ.
METRÓ
- Áral ehf. -
Mjallargötu 1 • 400 Isafjöröur • Simi: 456 4644 • Fax: 456 4680
Atvinna
Óskum eftirað ráða starfskraft hálfart dag-
inrt eftir hádegi til áramóta.
Upplýsingar í síma 456 4644 eða á stað-
num.
Tónleikasalurinn Hamrar
Sönghópurínn
Sólarmegin
Sönghópurinn Sólar-
megin frá Akranesi held-
ur tónleika í Hömrum, sal
Tónlistarfélags Isafjarðar
nk. laugardag kl. 17.
Sönghópurinn var stofn-
aður snemma árs árið
1990 af nokkrum áhuga-
söngvurum og hefur nán-
ast eingöngu fengist við
söng án undirleiks.
Sönghópurinn hefur
haldið fjölda tónleika og
komið víða fram, bæði inn-
anlands og utan, og einnig í
útvarpi og sjónvarpi. Söng-
hópurinn gaf út geisladisk-
inn Sólarmegin árið 1996,
en hann hefur að geyma
fjölbreytt úrval íslenskra og
erlendra laga.
A efnisskránni á tónleikun-
um á laugardag eru m.a. ís-
lensk og erlend þjóðlög, lög
Sönghópurinn Sólarmegin frá
í útsetningu Grayston Ives,
sem hefur útsett fyrir King 's
Singers og lög eftir höfunda
eins og Billy Joel, Lennon
og McCartney og Albert
Hammond. Ljóst er að hér
er um fjölbreytta og að-
Akranesi.
gengilega efnisskrá að
ræða sem ætti að höfða til
allra aldurshópa.
Miðaverð á tónleikana er
kr. 1.200,- og eru miðar
seldir við innganginn.
Ókeypis er fyrir skólafólk.
2
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999