Bæjarins besta - 10.11.1999, Síða 6
Draumurinn um Edinborgarhúsið á ísafirði að rætast
notkun eftir
an
- rausnarlegur styrkur úr Endurbótasjóði menningarbygginga gjör-
breytir stöðunni en nauðsynlegt er að afla fjár á móti
Endurbótasjóður menning-
arbygginga hefur samþykkt
allt að 30 milljóna króna styrk-
veitingu til uppbyggingar Ed-
inborgarhússins á Isafirði.
„Þessi styrkur gjörbreytir
allri framkvæmdagetu okkar
og hleypir nýju blóði í félag-
ið“, sagði Jón Sigurpálsson,
formaður stjórnar Edinborgar-
hússins ehf. í samtali við
blaðið. „Ef vel gengur sér
maður fyrir sér að þetta hús
verði komið í fulla notkun eftir
tvö til þrjú ár. Stóri salurinn
verður vonandi orðinn hæfur
til útleigu þegar á næsta ári.
Það sem þarf inn í salinn, eins
og margvíslegur tækjabúnað-
ur, verður síðan að koma smátt
og smátt“, sagði Jón.
„Okkur var bent á þann
möguleika að sækja um í
þennan sjóð. Björn Bjamason
menntamálaráðherra hefur
sýnt okkur mjög mikinn vel-
vilja og áhuga og ekki má
gleyma Einari Kristni Guð-
fínnssyni alþingismanni sem
hefur verið okkur mjög hjálp-
legur. Við sóttum um og feng-
um mjög jákvæð viðbrögð og
fáum á þessu ári úthlutun upp
á fimm milljónir og heildarút-
hlutun allt að 30 milljónum
næstu fímm árin eða svo. Ég
fór á fund sjóðsstjórnarinnar í
síðustu viku og þar greindi ég
henni frá því hvað er fram-
undan hjá okkur og gerði grein
fyrir stöðunni. Þetta var mjög
jákvæður og góður fundur“,
sagði Jón Sigurpálsson.
„Það sem liggur fyrir hjá
okkur núna er að fínna mót-
framlag á móti þessum styrk.
Það er nokkurs konar vinnu-
regla hjá hinu opinbera að
styrkþegar leggi annað eins
fram á móti, og raunar er það
óhjákvæmilegt í þessu tilviki
því að kostnaðaráætlunin frá
upphafi til loka framkvæmda
hljóðar upp á tæplega 200
milljónir króna. Þá er miðað
við allan tækjabúnað, bæði
leikhúsbúnað og það sem þarf
í ráðstefnusal, svo sem hljóð-
kerfi, fjarfundabúnað og ann-
að. Það er allt inni í þessari
tölu.“
Endurbótasjóður menning-
arbygginga er í vörslu
mcnntamálaráðuneytis og for-
maður hans er Hermann Jó-
hannesson, deildarstjóri
eignadeildar ráðuneytisins.
Hlutverk sjóðsins er að standa
straum af kostnaði við endur-
bætur á húsakosti menningar-
stofnana og stuðla að verndun
gamalla bygginga í eigu rík-
isins og bygginga sem þarf að
vernda, að mati Þjóðminja-
safnsins.
Fjáröflunar-
nefnd sett á stofn
Nýlega hefur verið komið á
fót fjáröflunarnefnd fyrir Ed-
inborgarhúsið ehf, sem Jón
Sigurpálsson segist vona að
sé nokkuð öflug. I henni eiga
sæti Laufey Jónsdóttir, Jón
Ólafur Sigurðsson, Ólafur B.
Halldórsson, Haukur Odds-
son (Péturssonar; eins konar
sendiherra okkar í Reykjavík,
eins og Jón orðar það), og
Gunnar Jónsson.
„Þessi nefnd á að koma
fram með tillögur og finna
möguleika á því að afla pen-
inga Við einblínum ekki á
fjáröflun innanlands, heldur
eru einnig ýmsir möguleikar
á fjármagni erlendis. Nú stefn-
um við því að hefjast handa í
aðalsal hússins og mér finnst
ástæða til að ætla að hægt
verði að fara að leika í honum
þegar á næsta ári þó að hann
verði kannski ekki alveg full-
kláraður þá. Salurinn er lang-
samlega stærsti einstaki póst-
urinn í framkvæmdunum við
Edinborgarhúsið. Hins vegar
var vissulega miklum áfanga
náð á síðasta ári þegar tekið
var í notkun húspláss það þar
sem Listaskóli Rögnvaldar er
í suðurendanum á miðhæð-
inni, þó að það sé ekki alveg
fullfrágengið og má segja að
innansleikjurnar séu eftir. Sá
áfangi var okkur nokkuð dýr.
Fjárhagsleg staða okkar er
ekki það sterk að þetta var
stór biti og við erum að jafna
okkur á honum núna. En þessi
styrkveiting núna gjörbreytir
stöðunni hjá okkur.“
Ytra byrði Edinborgarhúss-
ins hefur nýlega verið friðlýst
að frumkvæði Húsafriðunar-
nefndar. Að sögn Jóns Sigur-
pálssonar studdi það vissulega
mjög að styrkveitingu til húss-
ins, hversu merkilegt það er
og byggingarsögulega eitt af
merkari húsum landsins.
Vel búinn
fjölnotasalur
Stóri salurinn sem um ræðir
verður svokallaður fjölnota-
salur og verður leigður út
hverju sinni fyrir fundi og ráð-
stefnur, leiksýningar og tón-
leika, svo eitthvað sé nefnt.
Hann er á fyrstu hæð og nær
al veg upp úr og tekur y fir allan
norðurenda hússins. „Salur-
inn ætti að verða okkar stærsti
tekjupóstur. Þess vegna er
brýnt að koma honum í notkun
sem fyrst“, segir Jón.
Salurinn tekur um 250
manns í sæti ef hann er not-
aður án leiksviðs. Þegar þar
verða leiksýningar fer það eft-
iratvikum hverju sinni hversu
mikið pláss sviðið tekur en
það verður sett upp eins og
hentar hverju verki. Þeir sem
hafa kynnt sér þetta hús og
teikningar og eru dómbærir á
slíka hluti segja fullum fetum
að þetta muni verða með
skemmtilegri leiksölum sem
þeir hafa séð, og er þar
skemmst að minnast ummæla
Þórhalls Gunnarssonar leikara
hér í blaðinu um daginn.
ítarleg kostn-
aðaráætlun
Jón Sigurpálsson tekur
skýrt fram, að umræddur
styrkur sé eingöngu til upp-
byggingar á húsinu sjálfu en
ekki til neinna annarra hluta.
„Við verðum að gæta þess
mjög vel að gera grein fyrir
því á hverjum tíma hvað er
framkvæmt og til hvers féð er
notað.
Reyndar er það vandalaust,
enda höfum við á undan-
förnum mánuðum gert mjög
góða og ítarlega kostnað-
aráætlun um alla framkvæmd-
ina. Þar hefur hönnuðurinn,
Elísabet Gunnarsdóttir arki-
tekt, lagt hönd að verki, og
eins fengum við með okkur
Gunnar Ólafsson verkfræð-
Jón Sigurpálsson forinað-
ur stjórnar Edinborgar-
hússins.
Komið í fulla
6
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999