Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.11.1999, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 10.11.1999, Blaðsíða 12
SCARPA GÖNGUSKÓR! VERÐ FRÁ KR. 5.990.- Nú er lokið nær hálfs árs atvinnuleysi og óvissu hjá pólska verkafólkinu, sem fékk atvinnuleyfi hjá Fjölni rétt í tæka tíð áður en pökkunin hófst hjá fyrirtækinu, en tölu- vert vantaði upp áað nægilega margir Islendingar fengjust í þau störf sem í boði voru. Magnús sagði nóg berast að koma bátur inn með 85 tonn, Sighvatur, sem er í eigu Vísis í Grindavík. Þeir sem leggja upp hjá okkur er yftr- leitt einn bátur frá Vísi og síðan er Mýrafellið að landa hjá okkur þegar það fer í þorsk. Þetta eru útilegubátar og við fáum um einn bát á viku.“ Þú getur notaö flugkortið hjá okkur! af góðu hráefni. „Það er núna Samhangandi tölvupappír af öllum stærðum og gerðum Vandaður pappír eykur endingu vélbúnaðar! Samvinnuferðir Landsýn Söluskrífstola • Hafnarstræti i ísafirði • Simi 456 5390 ■í H-PRENT ER SÖLUAi '•'•'.'.S.v Sunnudaga kl. 12 - 18 (/ésv'J AUSTURVEGI 2 • SÍMI 456 5460 Fagranesið enn bundið við bryggju Siglingar heffjast ekki á ný að óbreyttu - þýðir ekkert að reka þetta eins og hefur verið gert, segir Kristinn Jón Jónsson stjórnarformaður „Það er ekkert að frétta af stað aftur. Báturinn fer eins og er og að minnsta kosti er ljóst að skipið fer ekki af stað alveg á næst- unni“, sagði Kristinn Jón Jónsson, stjómarformaður Hf. Djúpbátsins í samtali við blaðið á mánudag. I svari sínu við fyrirspurn Sighvats Björgvinssonar á Alþingi fyrir skömmu gaf Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherrajákvæð svör um að leyst yrði úr málefn- um Fagranessins þannig að það gæti á ný hafið ferju- siglingar um Isafjarðar- djúp. „Málið er tvíþætt“, sagði Kristinn Jón. „Annars veg- ar er skuldastaðan og hins vegar framtíð skipsins. Það verður að koma skuldastöð- unni í lag áður en farið yrði ekkert af stað fyrr en búið er að finna lausn á peninga- málunum og eins að gerð verði raunhæf áætlun um reksturinn. Það þýðir ekkert að reka þetta eins og hefur verið gert, að vera með allt eftir á. Mér vitanlega er ekk- ert sérstakt að gerast í þessu máli. Eg get lítið annað sagt en það að ráðherra mun vera jákvæður og málið í athugun en ég veit ekkert hvernig þeim hugmyndum sem uppi kunna að vera reiðir af.“ Kristinn Jón segir fleiri vandamál vera í vegi þess að Fagranesið hefji siglingar á ný. „Ef ríkið á að styrkja ferjusiglingar eftir næstu áramót þarf fyrst að breyta lögum, því að lagaheimildin til þess fellur þá úr gildi.“ „Það er allt fínt að frétta og allt á fullu hjá okkur“, sagði Magnús Björnsson hjá Fisk- vinnslunni Fjölni hf. á Þing- eyri í samtali við blaðið á mánudag. Þá voru 26 manns að störfum hjáfyrirtækinu, þar af tíu Pólverjar. „Þetta small allt saman og við byrjuðum að pakka á föstudaginn“, sagði Magnús. Bolfiskur ehf. tekinn til gjaldþrotaskipta Riftun á sölu fast- eignar til athugunar - kröfur í Rauðsíðu og Rauðfeld hátt í 700 milljónir en fyrirtækin nánast eignalaus „Ég get nú minnst sagt þér um stöðu mála hjá því fyrir- tæki enn sem komið er“, sagði Kristján Olafsson hæstaréttar- lögmaður í Reykjavík í sam- tali við blaðið. Kristján hefur verið skipaður skiptastjóri í þrotabúi Bolfisks ehf. í Bol- ungarvík en fyrirtækið var tek- ið til gjaldþrotaskipta sam- kvæmt úrskurði Héraðsdóms Vestfjarða 18. október sl. Kristján er einnig skipta- stjóri í öðrum fyrirtækjum Rauða hersins svokallaða, Rauðsíðu ehf. á Þingeyri og Rauðfeldi ehf. á Bíldudal. „Þetta er svo nýtilkomið hjá Bolfiski og könnun á því er allsekki lokið. Hins vegargeri ég fastlega ráð fyrir að í þessu búi eins og hinum, Rauðsíðu og Rauðfeldi, séu nánast eng- ar eignir. Bolfiskur var um síðustu áramót skráður eig- andi að Holtastíg 11 í Bol- ungarvík. Eftir það mun eign- in hafa verið seld, á pappírn- um að minnsta kosti, til ein- hvers annars fyrirtækis. Síðan er eitthvað af lausamunum sem fyrirtækið mun eiga en annað er ekki, svo ég viti til. Mér er tjáð að eignin við Holtastíg sé mjög mikið veð- sett. Ég mun láta fara fram Ketill Helgason, fyrrverandi framkvœmdastjóri Kauða hersins. verðmat á eigninni og skoða hvað hvílir á og hvort það eru einhver skilyrði til að rifta söl- unni.“ Kristján var væntanlegur vestur um miðja þessa viku að skoða málin hjá Bolfiski. „Ég er í sjálfu sér búinn að gera það í tengslum við hin búin og sjá hvernig landið liggur. Enn sem komið er lítið að segja um kröfur í bú Bol- fisks. Ég veit bara að það eru kröfur á milli fyrirtækja Rauða hersins svokallaða. Rauðsíða á kröfu á Bolfisk og svo fram- vegis.“ I byrjun mánaðarins var auglýstíLögbirtingi eftirkröf- um í þrotabú Bolfisks og barst fyrsta krafan samkvæmt aug- lýsingunni á borð skiptastjóra sl. föstudag. Kröfulýsingar- fresturinn er tveir mánuðir og lýkur honum því í byrjun jan- úar. Hins vegar er fresturinn til að lýsa kröfum í þrotabú Rauðsíðu og Rauðfeldar lið- inn. Kröfumar era þó ekki al- veg endanlegar eins og þær liggja fyrir núna. „Það er ekki alveg búið að „hreinsa út úr þeim“ en það sem ég er búinn að taka saman í Rauðsíðu eru tæplega 428 milljónir og í Rauðfeldi tæplega 258 millj- ónir“, sagði Kristján. Eitt fyrirtækja Rauða hers- ins enn er Rauðhamar á Tálknafirði, en það fyrirtæki er hins vegar algerlega í eigu Rauðsíðu. Hvað eignir Rauð- hamars varðar mun aðeins hafa verið um að ræða fast- eignir að Strandgötu 25 á Tálknafirði sem voru slegnar Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins. Bankinn auglýsti þær til sölu hér í blaðinu í síðustu viku. „Það sem ég geri varð- andi Rauðhamar er bara að reyna að slíta því félagi með einhverju móti. Ég verð auð- vitað að auglýsa eftir kröfum í það, en af því að það er al veg í eigu Rauðsíðu, þá hef ég full umráð yfir fyrirtækinu þó að það sé ekki búið að biðja um gjaldþrot á því“, sagði Krist- ján Olafsson. Fiskvinnslan Fjölnir á Þingeyri Allt komið í fullan gang - tíu Pólverjar við störf hjá fyrirtækinu Vió erum tilðgftd fteykjctt'ík Landflutnjmer www.scttmkip.te i i i tim 4§é fet 4§§ Virka daga kl. 09 - 21 Laugardaga kl. 10 - 18

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.