Bæjarins besta - 17.11.1999, Qupperneq 2
Útgefandi: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísafjörður Halldór Sveinbjörnsson
tr 456 4560 Ritstjóri:
0456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson
Netfang prentsmiðju: Blaðamaður:
hprent@snerpa.is Hiynur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar:
http ://www. snerpa. is/bh hb@snerpa.is
Bæjarlns testa er í samtökumfcæjar- og héraðs-
fréttahlaða. Eftirprentun, hljóðrltun, notkun ljósmynda
og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. L A
Hverju eruin við
reiðubúin að fórna?
Sjónvarpsþættir Stefáns Jóns Hafstein um byggðamál
hafa komist nær kjama viðfangsefnisins, en þingmönn-
um hefur til þessa tekist að skilgreina byggðastefnu
stjórnvalda.
Margsinnis hefur á þessum vettvangi verið bent á þá
þversögn í fiskveiðistjórnuninni, sem felst í því að
svipta íbúa sjávarþorpa veiðiréttinum og löggilda í þess
stað óheft brask með lífsbjörgina. En, er ekki allt í lagi
að leggja eitthvað af þessum sjávarþorpum niður? Em
þau ekki að tæmast hvort sem er?
„Mér fínnst það eins og að leggja niður þjóðararftnn,
bara hreint út sagt“, vom orð fyrrum forseta Islands,
Vigdísar Finnbogadóttur, í þætti SJH s.l. mánudag. „Og
ef að byggðirnar hverfa og útvegurinn leggst af í sjávar-
þorpunum þá verður auðvitað allt annað líf á þessari
eyju.“ Og frú Vigdís bætti við: „Ég held að þessi eyja sé
ekki til þess fallin að reka hér borgríki."
Geiri er ekki lengur á Guggunni. Hann þekkir tvenna
tíma í sjávarútvegi. Fyrrum aflakóngur á flaggskipi ís-
lenska flotans. Nú búinn að selja allt sitt hafurtask.
Geiri skilur tilfinningu þess, sem húkir undir gafli með-
an aðrir róa. Og hann veit manna best að nú getur eng-
inn ungur maður, hversu duglegur og áræðinn sem
hann er, byrjað útgerð nema með milljarða króna handa
á milli. Menn sækja ekki lengur í sjómannafræðin. I
spilavíti sjávarútvegsins snýst allt um að kaupa og selja
bréf.
Fjórir ungir menn í Bolungarvík, elstu verstöð lands-
ins, keyptu sér leyfi til að veiða fisk á trillunni sinni.
Þetta heitir að kaupa sér atvinnurétt. Fyrir þetta máttu
þessir ungu og framsæknu menn reiða fram litlar hundr-
að og þrjátíu milljónir króna. Þessu fé var ekki fundinn
samastaður í fjárhirslum bæjarsjóðs Bolungarvíkur. Það
rann heldur ekki í stóra gáminn við Arnarhvál, hvar
ráðamenn yppa öxlum yfir tvísköttun lífeyrisþega á ári
aldraðra. Nei, það rann beint í vasa einhvers eða ein-
hverra, sem ,,áttu“ veiðiréttinn, höfðu þegið hann að
gjöf frá þingmönnunum okkar.
Það er rétt sem Stefán Jón Hafstein sagði í þætti sín-
um á mánudaginn. Ef við viljum fórna mannlífinu og
auðnum, sem felst í staðbundinni þekkingu og ríkidæm-
inu sem felst í tengslum við landið og auðlindirnar, fyrir
aðra hagsmuni, þá eigum við að segja það hreint út.
Meðan við ekki svörum því, hverju við erum tilbúin
að fórna, og hverju ekki, skulum við spara okkur mark-
laust tuð um byggðastefnu.
s.h.
OÐÐ VIKUNNAÐ
Ríkur
Lýsingarorðið ríkur merkir nú efnaður eða vel
fjáður. Til foma var merkingin aftur á móti voldugur.
Reyndar fylgdu auðæfi oft völdum. f fornritum má
hins vegar finna ýmis dæmi um efnaða menn sem
töldust samt lítilmenni og valdalausir. Skyldleikann
við völd má finna í orðinu ríki. Sá sem var ríkur réð
yfir landsvæði og fólkinu sem þar bjó. Það var ríki
hans.
Solveig Thoroddsen kennari spjallar við nemanda sinn, Kjartan Trausta. Til hœgri á tölvu-
skjánuin má sjá myndina úr skólastofunni sem Kjartan sér sín megin.
Nemandi í Grunnskólanum á ísafírði á sjúkrahúsi syðra
Stundar nám og heldur
tengslum við félagana
- með tilstuðlan myndfundabúnaðar frá Landssímanum
Kjartan Trausti Þórisson,
nemandi í 4. bekk S í
Grunnskólanum á ísafirði,
dvelst um þessar mundir á
Landspítalanum í Reykjavík
en stundar námið í gegnum
myndfundabúnað. Hann
þurfti að fara suður í krabba-
meinsmeðferð í sex til sjö
vikur en tekur samt sem
áður virkan þátt í kennslu-
stundum með skólasystkin-
um sínum og jafnframt er
hann í sambandi við þau í
frímínútum. Einnig fær hann
sjúkrakennslu hjá kennara
sem kemur á spítalann
syðra.
„Hjá Styrktarfélagi
krabbameinssjúkra barna
var okkur bent á að til væri
myndfundabúnaður á
sjúkrahúsinu og við leituð-
um ráða til að útvega slíkan
búnað hingað í skólann“,
sagði Kristinn Breiðfjörð
Guðmundsson skólastjóri í
samtali við blaðið. „Lands-
síminn hér vestra brást mjög
vel við og bauðst til að lána
allan þann búnað sem til
þyrfti, okkur að kostnaðar-
lausu, og gekk þar fremstur
Sveinbjörn Björnsson hjá
Landssímanum á Isaftrði.
Sveinbjöm hefur aðstoðað
okkur á allan hátt og nú er
búnaðurinn kominn í gagnið
í kennslustofunni og nem-
endurnir og kennarinn eru í
sambandi við Kjartan
Trausta þar sem hann dvelst
syðra.
Þetta er ekki síst til þess
að rjúfa þá félagslegu ein-
angrun sem fylgir sjúkrahús-
dvöl í margar vikur fjarri
sinni heimabyggð á meðan
félagarnir eru heima og
stunda skólann. Með þessu
er verið að koma því til leið-
ar að nemandinn sé eftir
sem áður í tengslum við
bekkinn sinn og kennara.
Þetta hefur gengið mjög vel
eftir að við vorum búin að
læra á tækin. Núna erum við
komin upp á lag með að
nýta okkur búnaðinn og
þetta er farið að rúlla ágæt-
lega hjá okkur", sagði
Kristinn. Kjartan Trausti er
búinn að vera fyrir sunnan í
nokkrar vikur og senn líður
að því að hann komi vestur
aftur og taki þátt í skóla-
starfmu með þeim hætti sem
venjulegastur er. Að sögn
Kristins skólastjóra hefur
hann stundað námið af
áhuga og dugnaði, þrátt fyrir
óvenjulegar aðstæður og
óvenjulega námstilhögun.
Þegar Kjartan var spurður
hvort honum þætti ekkert
einkennilegt að sjá ljós-
myndara í skólastofunni að
vera að taka af honum
myndir í gegnum mynd-
sendibúnaðinn, þá sagði
hann einfaldlega: „Ég er
orðinn vanur því. Ég er bú-
inn að vera þrisvar í mynda-
tökum vegna fræðsluefnis
fyrir Landspítalann. Frændi
minn ætlar að gerast um-
boðsmaður fyrir mig!“
í léttu spjalli við félaga
sína, kennara, skólastjóra og
gesti í gær nefndi Kjartan
Trausti m.a„ að hann hefði
fundið tvo hundraðkalla á
gólftnu á sjúkrahúsinu
vegna þess að þar væri lekur
sjálfsali. Síðan tók hann
fram kennslubók þar sem
fjallað er um samheiti og
fleira af því tagi. „Ég er bú-
inn að ftnna tuttugu og sjö
dæmi um samheiti og and-
heiti“, sagði hann við kenn-
ara sinn, Solveigu Thorodd-
sen. „Vá, tuttugu og sjö!“
sagði einn af bekkjarfélög-
unum. Þegar Solveig bað
um nokkur dæmi um and-
heiti, þá komu þau hvert af
öðru frá Kjartani og bekkjar-
systkinum hans: Gráta og
hlæja, svart og hvítt, já og
nei, sorg og gleði, nótt og
dagur og svo framvegis.
Síðan spjallaði Kristinn
skólastjóri við Kjartan
Trausta góða stund áður en
hann þakkaði Landsímanum
fyrir hjálpina. „Það hefur
verið skemmtilegt og gef-
andi fyrir okkur að geta nýtt
okkur þennan búnað. Það
hefur verið mjög verðmætt
að fá að prófa þetta.“
ísaQörður
Hádegis-
leikhús
Á föstudaginn kemur
og næstu tvo föstudaga
þar á efstir bjóða SKG-
veitingar í samvinnu við
unga ísfirska listamenn
upp á hádegisleikhús á
Hótel ísafirði.
Flutt verður leikritið
„Frátekið borð“ sem er
létt verk undir leikstjórn
Greips Gíslasonar. Miða-
verði er stillt í hóf.
V J
ÍSAFJARÐARBÆR
SUNDLAUGIN Á SUÐUREYRI
' I■■ Starfsmann vantar strax til starfa.
Upplýsingar um starfið eru veittar hjá
IJóhannesi Aðalbjömssyni í símum 456
6121 og 456 6156.
íþróttafulltrúi ísafjarðarbœjar.
Bolungarvík
Dóp og
ofbeldí
Óvenju mikið annríki
var hjá lögreglunni í Bol-
ungarvík um síðustu helgi.
Á föstudag og aðfaranótt
laugardags voru fjórir öku-
menn teknirfyrirofhraðan
akstur, þar af þrír innan-
bæjar og sá sem hraðast
ók þar mældist á 80 km
hraða.
Þá var einn ökumaður
tekinn fyrir meinta ölvun
við akstur. Lögreglan hafði
margoft afskipti af ungl-
ingum bæjarins og lagði
hald á áfengi sem þeir
höfðu meðferðis. Aðfara-
nótt sunnudags gistu tveir
aðilar fangageymslur
vegna ölvunar og óspekta.
Tilkynnt var um líkams-
árás þessa nótt og miðar
rannsókn vel. Ljóst er
hverjir voru þar að verki
án þess þó að játningar
liggi fyrir. Þá kom upp eitt
fíkniefnamál í Bolungar-
vík um helgina og telst það
upplýst. Um var að ræða
vörslu á tæpu grammi af
amfetamíni sem lögreglan
lagði hald á auk ólöglegs
eggvopns.
Bolungarvík
Nasco
kaupir
Nasco, eigandi Bakka í
Bolungarvík hefur fjárfest
í 65 metra löngu rækju-
veiðiskipi frá Grænlandi.
Stefnt er að því að skipið
haldi til veiða fyrir Bakka
eftir áramót en skipið er
væntanlegt til landsins í
næsta mánuði.
Yfirmenn skipsins verða
íslenskir en önnur áhöfn
grænlensk.
ísaflörður
Útboð á
vörnum
Á fundi bæjarráðs ísa-
fjarðarbæjar sl. mánudag
varrætt um snjóflóðavarn-
ir í Seljalandsmúla og
hugsanlegar breytingar á
hönnun þeirra.
Samþykkt var að verkið
við gerð varnanna verði
boðið út fyrir næstu ára-
mót.
Aö®
2
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999