Bæjarins besta - 17.11.1999, Síða 8
Rúnar Óli Karlsson, atvinnu- og staðardagskrárfulltrúi ísafjarðarbæjar skrifar
1B 15 ára
Það hefur ekki farið
framhjá lesendum Bæj-
arins besta að nú eru 15
ár að baki. Vísirinn að
því sem nú er, var aug-
lýsingablað og dagskrá.
Héraðsfréttablöð hafa átt
undir högg að sækja á
Islandi síðustu árin.
Skýringarinnar er að
leita í stöðugt auknu
framboði afþreyingar-
efnis þar sem útvörp og
sjónvörp landsins ganga
fremst í flokki. Stundum
hvarflar að hugsandi
mönnum, að lestrar-
kunnáttu fari hrakandi,
að minnsta kosti minnk-
ar lestraráhuginn. Lestur
er þeirrar náttúru að vera
skapandi iðja. Hann
örvar hugann og krefur
um viðbrögð og krefst
áreynslu, sem ekki fylg-
ir sjónvarpsglápi eða því
að hlusta á sargið í
glamúr útvörpunum.
Hitt héraðsfréttablaðið
leið undir lok því miður.
Það er hollt að fá fleiri
sjónarhom en eitt. Póli-
tísku blöðin eru líkt og
draugar vakin upp um
kosningar og jól.
Krafturinn í blaðaflór-
unni á Isafirði er ekki
samur og fyrr. Væri ekki
fyrir BB myndi hið dag-
lega líf hér um slóðir
vera mun snauðara en
ella. Kostir héraðsfrétta-
blaða eru þeir að þau
geta leyft sér annað og
nánara sjónarhorn á
umhverfið en landsblöð-
in og útvörpin og sjón-
vörpin ráða við. Hér er
þó Svæðisútvarp Vest-
fjarða undanskilið, en
það er hliðstæða BB á
öldum ljósvakans að
mörgu leyti. En héraðs-
fréttablöð eiga ekki kost
á því að kafa djúpt í mál
líðandi stundar. Til þess
eru þau of smá. Þar á
svæðisútvarpið oft betri
leik. En á móti kemur að
BB hefur birt mörg góð
og gagnleg viðtöl þar
sem sjónarmið íbúanna
á Vestfjörðum koma
fram og oft skemmtileg-
ar frásagnir. Ymsir fastir
liðir hafa verið lengi í
blaðinu. Meðal þeirra er
þessi, sem sumir við-
mælenda í afmælisblað-
inu gagnrýndu og töldu
eina löst blaðsins. Ekki
er ætlunin að líkja þess-
um vettvangi við
Reykjavíkurbréf Morg-
unblaðsins, sem einnig
er nafnlaust, þótt sumir
telji sig kenna höfund
eða höfunda þess oftar
en ella. Það er auðvitað
ágiskunin ein. Oft hefur
sú gagnrýni heyrst að
tónninn í þessum penna
sé daufur. Aðfinnslurnar
V
eru frekar á þann veg.
En meðalhófið er vand-
ratað. Helst eru það
yfirvöld ríkis og bæjar
sem hafa orðið skot-
spónn bleksins sem
hrýtur úr pennanum.
Sjaldan er það mjög
svart og lang oftast
þvæst það af. En menn
skyldu ekki gleyma því,
að bæjarstjórn og þjón-
ustofnanir hennar eru
ekki yfir gagnrýni hafn-
ar fremur en hinar sem
tilheyra ríkinu og skulu
þjóna fólkinu. Það er
einfaldlega partur af
lýðræðinu að ræða á
opinberum vettvangi
það sem betur má fara.
Ekki nota pólitíkusarnir
Skoðanir
Stakkur skrifar
vettvanginn sem BB
býður í hverri viku til
að segja frá skyldum
sínum og verkum.
Aðrir þættir sem ber
að lofa eru leiðarar
blaðsins, en þeir eru oft
prýðilegir og stundum
hreint ágætir. Svo hefur
blaðið birt jólasögu um
hver jól um langt bil.
Framhaldið og
umhverfið
Lesendur eru hvattir
til að nota BB sem
vettvang til skoðana-
skipta og til þess að
leita upplýsinga, sem
borgararnir eiga rétt á
samkvæmt lögum, en
veigra sér stundum við
að ganga eftir. Fréttir
blaðsins bera þess
stundum merki að hér-
aðsfréttablað hefur ekki
tök á umfangsmikilli
fréttaöflun, en oft hefur
tekist vel til og stund-
um hefur BB tekist að
ryðja brautina. Þar hef-
ur samkeppni mikið að
segja til að halda uppi
heilbrigðum metnaði.
Helsti keppinauturinn
er Svæðisútvarpið, þótt
þar sé ólíku saman að
jafna. Umhverfi okkar á
Vestfjörðum er undir-
orpið miklum breyting-
um og ekkert stendur
kyrrt. Þess vegna á BB
mikið erindi við lesend-
ur sína og þeir við blað-
ið. Vonandi heldur þetta
samband lesenda og
blaðs áfram báðum til
góðs og megi það þríf-
ast vaxa og dafna á
komandi árum og halda
áfram að skipa sé sess í
samfélaginu. Þannig er
tilganginum best þjón-
að og sérstaklega fyrir
lesendur.
J
Sía ardagskrá 21
fyrír ísafjaröarbæ
í lok síðasta árs hófu 31
íslenskt sveitarfélag þátttöku
í samstarfsverkefni umhverf-
isráðuneytisins og Sambands
íslenskra sveitarfélaga um
Staðardagskrá 21 (Local
Agenda 21), sem er heildar-
áætlun um þróun einstakra
samfélaga fram á 21. öldina.
Þessi áætlun á að vera nokk-
urs konar forskrift að sjálf-
bærri þróun, þ.e. lýsing á því
hvernig samfélagið ætlar að
fara að því að try ggj a komandi
kynslóðum viðunandi lífsskil-
yrði á Jörðinni. Eitt aðalatriðið
er að umhverfismál verði al-
drei slitin úr samhengi við
önnur mál, heldur beri að líta
á áhrif mannsins á umhverfi
sitt í víðu samhengi.
Ráðstefnan í Ríó
Á heimsráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna urn umhverfi
og þróun í Ríó 1992 sam-
þykktu fulltrúar 179 þjóða
ályktun sem nefnd hefur verið
Dagskrá 21 (Agenda 21). Þar
er kveðið á um að sérhvert
ríki skuli gera áætlun um þró-
un fram á næstu öld. Áætlunin
taki til vistfræðilegra, efna-
hagslegra og félagslegra þátta
og hafi markmiðið um sjálf-
bæra þróun að leiðarljósi.
„Sjálfbœrþróun erþróun
sem gerirokkur kleift að mœta
þörfum okkar án þess að
stofna í voða möguleikum
komandi kynslóða á að mœta
sínum þörfum. “ (Gro Harlem
Brundtland, 1987).
„ Við fengum jörðina ekki í
arf frá forfeðrum okkar. Við
höfum hana að lánifrá börn-
unum okkar.“ (Aldagamalt
máltœki frá Kenía).
Staðardagskrá
ísaljarðarbæjar
í byrjun ársins 1999 var
skipaður stýrihópur á vegum
sveitarfélagsins með það hlut-
verk að móta stefnu ísafjarð-
arbæjar í umhverfismálum.
Hópurinn er þverfaglegur og
var hann valinn með það fyrir
augum að skapa sem breið-
astan þekkingargrunn.
Fulltrúar í hópnum eru: Ant-
on Helgason, heilbrigðisfull-
trúi Vestfjarða; Dorothee Lu-
becki, ferðamálafulltrúi Vest-
fjarða; Elísabet Gunnarsdóttir,
arkitekt; Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri; Hildur Halldórs-
dóttir, líffræðingur; Ingimar
Halidórsson, útgerðarstjóri;
Jón Reynir Sigurvinsson,
jarðfræðingur; Judith Amalía
Jóhannsdóttir, nemi; Karitas
Pálsdóttir, Vlf. Baldri; Sæ-
mundur Kr. Þorvaldsson,
bóndi; og Þorleifur Eiríksson,
dýrafræðingur.
Starfsmaður hópsins er
Rúnar Oli Karlsson landfræð-
ingur og hóf hann störf í byrj-
un september 1999. Samband
íslenskra sveitarfélaga og um-
hverfisráðuneytið hafa lagt
línurnar í vinnu verkefnisins
og skipt því í fimm verkþætti:
1. Núverandi staða skil-
greind.
Orkubú Vestfjarða
Stakkanesi 1 • ísafirði • Sími 456 3211
Velstjorar,;
rafiðnaðarmenn!
Orkubú Vestfjarða óskareftirað ráða starfs-
mann í vinnuflokk Orkubúsins í Vestur-Barða-
strandarsýslu. Aðsetur vinnufiokksins er á
Patreksfirði.
Óskað er eftir vélstjóra eða rafveituvirkja.
Umsóknir um starfið sendist Orkubúi Vest-
fjarða, Stakkanesi 1, 400 ísafirði, fyrir 24.
nóvember nk.
Upplýsingarum starfið gefa Jakob Ólafsson
og Kristján Haraldsson í síma 450 3211 og
Runólfur Ingólfsson í síma 456 1411.
Upplýsingarum Orkubú Vestfjarða má finna
á vefsíðum fyrirtækisins http://www.ov.is/
2. Sett fram markmið og
áhrif af þeim á umhverfi og
fjárhag skilgreind.
3. Gerðar starfs- og tíma-
áætlanir.
4. Áform í umhverfismál-
um framkvæmd.
5. Starfið endurmetið.
Helstu málaflokkar
I Isafjarðarbæ er nú verið
að vinna að núverandi stöðu.
Málaflokkarnir sem unnið er
að eru m.a.:
Holrcesi og fráveitumál.
Úrgangur frá heimilum og
fyrirtœkjum. Náttúrumeng-
un. Gæði neysluvatns. Há-
vaði og loftmengun. Menn-
ingarminjar og náttúru-
vernd. Umhverfisfrœðsla í
skólum. Orkusparnaður.
Skipulagsmál og umferð.
Varnir gegn meindýrum.
Samfélagsgerð og lýðrœði.
Ætlunin er að reyna að
ljúka vinnu við stöðumatið í
byrjun nóvember 1999.
Mjög erfitt er að setja saman
vinnuáætlun með tímamörk-
um, því að svona verkefni
hefur aldrei verið unnið á
landinu og því er hugmyndin
sú, að vanda frekar til verks-
ins, en að reyna að ljúka því
fyrir ákveðinn tíma. Þó er
ætlunin að reyna að koma
verkinu til samþykktar hjá
Rúnar Óli Karlsson.
bæjaryfirvöldum seint næsta
vor.
„í samráði við
íbúana“
í samþykkt frá Ríó er sér-
staklega tekið fram, að sveit-
arstjórnir skuli búa til Staðar-
dagskrá 21 „í samráði við íbú-
ana á hverjum stað“. Til að
koma á móts við þetta er ætl-
unin að vera með nokkurs
konar umhverfismáladálk í
BB öðru hverju í vetur. Þar
munu meðlimir starfshópsins
tjá sig um ýmis málefni er
tengjast verkefninu og einnig
gefst öllum sem vilja kostur á
að tjá sig um allt sem við-
kemur umhverfismálum sveit-
arfélagsins.
Það er von allra þeirra sem
starfa að þessum málum fyrir
sveitarfélagið, að bæjarbúar
allir verði virkir og jákvæðir í
garð þess starfs sem nú er að
fara í hönd, því margar hendur
vinna létt verk.
- Rúnar Óli Karlsson,
atvinnu- og staðardagskrár-
fulltrúi Isafjarðarbœjar.
1
L
SVÆÐISSKRIFSTOFA MALEFNA
FATLAÐRA VESTFJÖRÐUM
Dósamóttakan
í Bræðratungu
Móttakan er opin mánudaga og föstu-
daga kl. 17:00-20:00.
Aðeins er tekið við þeim umbúðum sem
skilagjald hefur verið greitt fyrir.
Ekki djúsbrúsum eða krukkum.
Vinsamlegast hafið dósir, plast oggler í sér
pokum og merkið magn (fjölda) hverrar
tegundar.
í dósapoka eiga að vera 150 stk.
Plastfiöskur eiga að vera 50 stk.
Glerflöskur eiga að vera 50. stk.
J
Verslunarhúsnæði
Til sölu eða leigu er 488m2 verslunarhús-
næði, hæð og kjallari, að Aðalstræti 21-23
í Bolungarvík.
Allar nánari upplýsingar fást hjá fasteigna-
sölu Tryggva Guðmundssonar hdl., Hafnar-
stræti 1, ísafirði, sími 456 3244.
8
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999