Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.02.2000, Síða 9

Bæjarins besta - 09.02.2000, Síða 9
Bessinn seldur til Færeyja fyrir 600 milljónir króna Heitír nú South Island Frystitogarinn Bessi ÍS hef- ur verið seldur til Suðureyjar í Færeyjum og heilir nú South Island. Skipið var athent nýj- um eigendum í Hafnarfjarðar- höfn í síðustu viku. Bessi var fyrst í eigu Alftfirðings hf. í Súðavík og kom nýr til Súða- víkur haustið 1989. Nú síðast eftir sameiningu sjávarútvegsfyrirtækja hér vestra var skipið í eigu Hrað- frystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal. Söluverðið var 600 milljónir króna og kaupandinn Pf. KletturáSuðurey. Færeysk Bessi IS-410 hefur nú veríð seldur til Fœreyja. áhöfn var á skipinu á leiðinni íslenskur vélstjóri var um út að öðru leyti en því, að einn borð. Mikið annríki hjá lögreglunni á ísafirði Kæmr og klögu- mál vegna ónæðís - annríki út af margvislegu þrasi borgaranna Óvenjulega mikið annríki varhjálögreglunni áísaftrði um síðustu helgi, aðallega í margvíslegu þrasi og smá- málum sem tóku þó mikinn tíma. Um hádegi á laugardag kom ungur maður á lög- reglustöðina á ísaftrði, blár og bólginn í framan. og sagðist hafa orðið fyrir árás úti á götu nóttina áður. Ekki hafði fengist botn í það mál þegar síðast f'réttist. Að undanförnu hefur verið mikið um kærur og klögumál til lögreglunnar vegna alls- konar ónæðis. Fólk hefur kvartað yftr hávaða frá ná- grönnum sem hafa verið að skemmta sér ótæpilega á nótt- unni. A Flateyri var manni vísað út af skemmtun aðfara- nótt laugardags en þá fór hann að djöflast í nágrenninu þann- ig að fólk hafði ekki svefn- frið. Margoft var hringt í gamlan mann að næturþeli en í ljós kom að þar var einhver misskilningur á ferðinni. Þannig mætti lengi telja og segir yftrlögregluþjónn að mikill tími fari í að sinna málum af þessu tagi. AVIS Bílaleiga Áríðandi skilaboð Daggjald kr 999,- Kaskótrygging innifalin Opel Corsa Opel Astra Km 28,- Km 36,- Suzuki Jimny Km 46,- Hringdu í Al/ÍSog bíllinn mun bíða þín á flugvellinum Útvegum einnig bíla erlendis. S:533 1090 Dugguvogur 10, 104 Reykjavík r Yfirmaður Islenskrar miðlunar á Vestfjörðuiii segir upp „Hlutverk forstöðu- manns hefur breyst“ - segir Halldór Kristmannsson, sem heldur áfram að leika með KFÍ Halldór Kristmannsson, forstöðumaður Islenskrar miðlunaráVestfjörðum, hefur sagt starfi sínu lausu. Hann var ráðinn til fyrirtækisins á síðasta sumri og hefur verið búsettur hér vestra frá því urn miðjan ágúst. Þrátt fyrir upp- sögnina er ekkert fararsnið á Halldóri frá Isafirði að sinni. Hann hefur veriðeinn afburð- arásunum í liði KFI í veturog mun leika með liðinu að minnsta kosti út þetta keppn- istímabil. „Já það er rétt að ég hef sagt starfi mínu lausu miðað við næstu mánaðamófý sagði Halldór í samtali við Bæjarins besta. „Uppsagnarfrestur minn er síðan þrír mánuðir og ég mun vinna hann að fullu og aðstoða fyrirtækið eins og kostur er við að koma nýjum starfsmanni inn í mitt hlut- verk. Starf mitt hjá Islenskri miðlun hefur verið mjög lær- dómsríkt og það hefur verið verulega gaman að vinna með Halldór Kristmannsson. öllu því góða fólki sem starfar hjá fyrirtækinu." Varðandi ástæður uppsagn- arinnar segir Halldór að hlut- verk hans sem forstöðumanns hafi breyst og forsendur séu nú aðrar en þegar hann réð sig til starfa á síðasta ári. „Það stafaraf skipulagsbreytingum í fyrirtækinu, sem ég vil ekki tjá mig frekar um. Mér finnst áhugasvið mitt einfaldlega liggja annars staðar og þess vegna hef ég tekið þessa ákvörðun. Þrátt fyrir að ég hafi ákveðið að skilja við Islenska miðlun er ég eftir sem áður sannfærður um að fyrir- tækið eigi sér bjarta framtíð og greinilegt er að þessi starf- semi er komin til að vera. Ég óska samstarfsfólki mínu alls hins besta og er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna fyrir Islenska miðlun. Þó svo að ég hafí sagt starfi mínu lausu hef ég ekki ákveðið að flytjast héðan, enda hef ég verið mjög ánægður með að vera búsettur hér. En vissulega veit ég ekki hvað framtíðin ber í skauti sér“, sagði Halldór. „Að sjálfsögðu mun ég klára keppnistímabilið hjá KFÍ. Við erum í hörkubaráttu um að komast í úrslitakeppn- ina en það lítur nú allt þokka- lega vel út. Á næstu vikum mun tími minnfaraaðumtals- verðu leyti í körfuboltann og baráttuna sem þar er fram- undan“, sagði Halldór Krist- mannsson. Opinn fundur um vöruþróun Föstudaginn ll.febrúarnk.kl. 13:00 verðurhaldinn opinn fræðslufundur um vöruþróun í Þróunarsetri Vesttjarða, Arnagötu 2, Isafirði. Það eru Nýsköpunarsjóður og Iðntæknistofnun sem standa að fræðslufundinum í samstarfi við Atvinnu- þróunarfélag Vesttjarða hf. Þar verður m.a. farið yfir umsóknarferil og framkvæmd vöruþróunarverkefna ásamt umræðu um áhættulán sem tjármögnunarkost á vöruþróunarverkefnum. / A fundinum verður sérstök áhersla lögð á fræðslu um árangursríka vöruþróun þar sem farið er yfir mik- ilvægi vöruþróunar hjá fyrirtækjum og hvernig fyrir- tæki geta staðið með árangursríkum hætti að vöru- þróun. Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á vöruþróun. © # impra NÝSKÖPUN ARSJÓÐUR MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000 9

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.