Bæjarins besta - 24.05.2000, Blaðsíða 1
GLER OG SPEGLAR
Ertu að tapa stórfé út um gluggana?
Fáðu góð ráð hjá okkur og lækkaðu hitareikninginn varanlega!
Smiðjuvegi 7, Kópavogi, sími 54 54 300, fax 54 54 301, www.gler.is
GLEROG SPEGLAR
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 459 4589 • Fax 459 4594 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 299 m/vsk
Staðsetning háskóla hefur áhrif á búsetu fólks
Verður kennslustö f vum komið
upp á f safírði og Egilsstöðum?
Staðsetning háskólanáms
hefur mikil áhrif á búsetu há-
skólamenntaðs fólks hér á
landi, en samkvæmt nýrri
könnun á háskólamenntun og
búsetu, búa 89% brautskráðra
viðskiptafræðinga frá Há-
skóla íslands á höfuðborgar-
svæðinu en einungis 11% á
landsbyggðinni. Af braut-
skráðum rekstrarfræðingum
frá Háskólanum á Akureyri,
búa 87% á landsbyggðinni en
13% á höfuðborgarsvæðinu.
Þettakom fram í erindi Þor-
steins Gunnarssonar, rektors
Háskólans á Akureyri, á fundi
sem Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar, Rannsóknar-
stofnun Háskólans áAkureyri
og sjónvarpsstöðin Aksjón
efndu til á Fiðlaranum á Ak-
ureyri fyrir stuttu. Yfirskrift
fundarins var hvort aukin há-
skólamenntun væri svar við
atgervisflótta af landsbyggð-
inni.
Þorsteinn sagði Háskólann
á Akureyri hafa leitast við að
hagnýta nýjustu upplýsinga-
tækni til kennslu á háskóla-
stigi utan síns heimasvæðis,
m.a. með fjarkennslu í hjúkr-
unarfræði til Isafjarðar og
rekstrarfræði til Austurlands
og hefði hann fengið staðfest
frá Isafirði að hefði þessi
kennsla ekki komið til, hefðu
margir af þeirn sem nú stunda
nám í hjúkrunarfræði, flust
með fjölskyldum sínum til
höfuðborgarinnar.
Rektor sagði fjarkennsluna
þegar hafa skilað miklum ár-
angri en ljóst væri að renna
þyrfti styrkari stoðunt undir
háskólakennslu í þeim lands-
hlutum sem lengst væru frá
núverandi háskólum hér á
landi, þ.e. á Vestfjörðum og
Austurlandi. Því hefði há-
skólaráð lagt til við mennta-
málaráðherra að Háskólanum
á Akureyri yrði heimilað að
korna á fót kennslustöðvum á
Egilsstöðum og Isafirði og þar
myndu starfa fastráðnir há-
skólakennarar sem hefðu fasta
búsetu á þessum stöðum.
Avinningurinn af slíkum
kennslustöðvum væri hópur
háskólamenntaðs fólks sem
kæmi inn í atvinnulífið á við-
komandi svæði á hverju ári
og vísaði rektor í því sam-
bandi til reynslunnar af starf-
semi Háskólans á Akureyri.
Fjárhagsleg áhrif inn á við-
komandi landsvæði gætu
numið um tveimur milljónum
króna á hvern nemanda að
mati Þorsteins.
Kostnaður við starfsemina
er áætlaður um 16 milljónir
króna árið 2001 á hvorum
stað, en þegar allt námið er
komið til framkvæmda er
áætlaður kostnaður um 31
milljón króna á hvorurn stað
eða 62 milljónir króna.
Erna Sigurðardóttir fœrir
Guðjóni Brjánssyni, fram-
kvœmdastjóri FSI gjöfina.
ísafjörður
Pjötlurnar
gefa FSÍ
4% m2 teppi
Bútasaumsklúbburinn
Pjötlurnar færði á föstudag,
Fjórðungssjúkrahúsinu á Isa-
firði teppi að gjöf sent er tæp-
lega4!/2 fermetri að flatarmáli.
Teppið var framlag klúbbsins
í bútasaumskeppni sem haldin
var á vegum bútasaumsbúð-
arinnar Bóthildar.
„Það kornu 28 konur að
saumaskapnum. í teppinu eru
nákvæmlega 2000 bútar og
við byrjuðum að skipuleggja
smíðina í september á síðasta
ári,“ sagði Erna Sigurðardótt-
ir, ein saumakvennanna.
Alls eru 55 konur í Pjötlun-
urn og korna þær frá Isafirði,
Bolungarvík, Holti og Suður-
eyri. „Við hittumst einu sinni
í mánuði yftr vetrartímann.
Klúbburinn hefur starfað í
meira en 3 ár og hefur reglu-
lega haldið námskeið í búta-
saurn. Þeim sem ljúka þessu
námskeiði er síðan boðin aðild
að klúbbnum“, sagði Erna.
V úrucifsiniðslik
i Roykjavík