Bæjarins besta - 24.05.2000, Qupperneq 8
Súðvíkingar áhugasamir um pílukast
Paramót í pílukasti
- „skorum á aðra að koma og keppa við okkur“,
segir Jónas Skúlason faðir pílunnar í Súðavík.
Pflukast er íþrótt sem ekki
hefur borið mikið á hér um
slóðir a.m.k. er ekki á hverj-
um degi sem haldið er form-
legt mót í þessari grein. Það
gerðist þó í Súðavík 12. maí
s.l., þar sem hópur manna
hefur iðkað þessa íþrótt í
um 15 ára skeið. Undanfarið
hafa konurnar ekki látið sitt
eftir liggja og veita körlun-
um harða samkeppni. Það
lá því beint við að halda
paramót. Atta pör tóku þátt
og var mikil spenna í loftinu
og samkeppnin hörð, enda
keppendur orðnir ansi sleipir
í íþróttinni. Svo fór að lokum
að fyrsta sætið hrepptu þau
Halldór Jónbjörnsson og
Linda Lee Bluett. Þeim er ósk-
að til hamingju með sigurinn.
Sá sem hefur stundað íþrótt-
ina lengst allra í Súðavík og
stundum nefndurfaðirpflunn-
ar þar um slóðir, er Jónas
Skúlason. Hann og Þorsteinn
Andrésson höfðu veg og
vanda af skipulagningu móts-
ins. Þeir hafa, ásamt fleira
áhugafólki, myndað félags-
skap um pílukast. Hópurinn
kemur saman á Fjórum Félög-
um, pöbb bæjarins, snemma
á hverju föstudagskvöldi til
að spila.
Ahuginn er það mikill að
óhætt er að tala um vakningu.
Þegar er farið að leggja drög
að fleiri mótum og vill Jónas
skora á pflukastara í nágranna-
byggðunum að koma og
Jónas Skúlason, ,Jaðir pílunnar“ í Súðavík.
keppa. A Flateyri er einnig að byrja með og hvetja þá til staka mannlíf hér fyrir
hópur dugandi pílukastara. að etja kappi við Súðvíkinga. vestan.
Það liggur því beint við að Slíkarkeppnireruskemmtileg
beina áskoruninni þangað til viðbót við okkar góða og ein-
Lionsklúbbur Bolungarvíkur styrkir unga fólkið
100 þúsund króna
gjöf tíl kaupa á hljó
- mikil óánægja með úthlutun úr Forvarnarsjóði
Á föstudag færði Lions-
klúbbur Bolungarvíkur, kaffi-
og menningarhúsi unga fólks-
ins á ísafirði, 100 þúsund
krónur að gjöf til kaupa á nýju
og fullkomnu hljóðkerfi fyrir
starfsemina. Gjöfin kemursér
afar vel þar sem mjög kostn-
aðarsamt er að koma rekstri
sem þessum af stað. Það var
Hlynur Snorrason, verkefnis-
stjóri Vá Vest-hópsins og
fulltrúi þess hóps í stjórn kaffi-
og menningarhússins sem tók
við gjöfinni.
Að sögn Hlyns gætirmikill-
ar óánægju innan Vá Vest-
hópsins með nýlega úthlutun
úr svokölluðum Forvarnar-
sjóði, en kaffi- og menningar-
húsið fékk einungis 300 þús-
und króna styrk úr sjóðnum,
en sótt var um þriggja milljóna
króna styrk. „Þetta eru mikil
vonbrigði, sérstaklega í ljósi
þess áhuga og þeirrar athygli
sem kaffi- og menningarhúsið
hefur fengið, ekki bara hér á
svæðinu, heldur á öllu land-
inu. Ýmsirforvarnarhópareru
farnir að hafa samband við
okkur og spyrjast fyrir um
starfsemina og þá hugmynda-
fræði sem liggur að baki
henni,“ sagði Hlynur.
Styrkurinn átti að renna
beint til uppbyggingu starf-
seminnar ásamt jafn miklu
framlagi frá Rauða krossi Is-
lands og RKI deildunum á
norðanverðum Vestfjörðum.
Að auki var gert ráð fyrir
styrkjum frá félagasamtökum,
fyrirtækjum og einstaklingum
til starfseminnar. Rekstur
kaffi- og menningarhússins er
því í hálfgerðu uppnámi vegna
þessa. Uthlutun Forvarnar-
sjóðs nam í heild 42 milljón-
um króna.
ísafjörður
Ævintýri
neinenda
Ferðalag 10. bekkjarGÍ
hófst á sunnudag en að
þessu sinni var farið í
„River rafting“ í Hvítá,
trukkaferð o.fl.
Auk þess verður farið á
Grensás og heilsað upp á
Ásgeir, strætóbílstjóra,
sem er hann þar að ná sér
eftir alvarlegt slys.
Hlynur Snorrason tekur við gjöfinni úr hendi Asgeirs Þórs Jónssonar, formanns Lionsklúbbs
Bolungarvíkur. A myndinni eru einnig Lionsmennirnir Einar Guðmundsson og Jónas
Guðmundsson.
Snyrtivöruverslunin Krisma
í Ljóninu, Skeiði, ísafirði
er til sölu.
Upplýsingar gefur
S
Ragnheiður Asa í síma 456 4414.
Netspurningin
Spurt var:
Samgöngur eru á hvörfum. Innanlandsflug tekur miklum breytingum um
þessar mundir. Áfangastöðum Flugfélags Islands fækkar nú óðum og stefnir
í það, að aðeins verði flogið til fjögurra utan Reykjavíkur, Isafjarðar, Akureyrar,
Egilsstaða og Vestmannaeyja. Flug á vegum Flugfélags Islands og áður
Flugleiða innanlands hefur lagst af til Patreksfjarðar, Þingeyrar, Sauðárkróks,
Húsavíkur og Neskaupstaðar. Búast má við því að áætlunarflug félagsins til
Hornafjarðar heyri brátt sögunni til nema svo fari að erlendir ferðamenn haldi
þeirri flugleið uppi.
Sú tíð er liðin þegar áfangastaðir Flugleiða voru þrír á
Vestfjörðum og íslandsflug flaug til Bfldudals, Flateyrar,
Hólmavíkur og Gjögurs. Flugfélagið Ernir hélt uppi
áætlunarflugi frá ísafirði um tveggja áratuga skeið. Flogið var með farþega og
póst frá Isafirði til Suðureyrar, Flateyrar, Ingjaldsands, Þingeyrar, Bíldudals
og Patreksfjarðar. Auk þess var flogið leigufiug til annarra staða áVestfjörðum
svo sem Reykhóla, Hólmavíkur og Gjögurs. Um skeið hélt Ernir einnig uppi
áætlunarflugi milli Suðureyrar og Reykjavíkur. Enn er áætlunarfiug á vegum
Flugfélags íslands milli ísafjarðar og Akureyrar. Flugfélag Norðurlands stóð
fyrir þessu flugi um langt skeið áður en Flugfélag íslands varð til á nýjan leik.
Svo virðist sem þessi fyrrum „gullrúta” FN gefi ekki jafn mikinn arð og
fyrrum. Það hefur margt breyst í samgöngumálum á íslandi, sem hefur haft
mikil áhrif á flug innanlands.
Á Vestfjörðum höfðu jarðgöngin góðu undir Breiðadals- og Botnsheiðar
þau áhrif að grundvöllur flugs í Holt og á Suðureyri hvarf með öllu. Sama má
reyndar segja með Þingeyri. Að flugvellinum þar eru rétt rúmir fimmtíu
kílómetrar frá ísafirði. Betri vegur um jarðgöngin og Gemlufallsheiði kippir
grundvelli undan fiugi um Þingeyri. íslandsflug flýgur enn til og frá Bfldudal,
en illa gengur að halda uppi flugi til Patreksfjarðar. Þess má geta að flutningur
pósts milli landshluta fer nú fram með bílum en ekki flugi,
k svo sem áður var til Vestfjarða. Strandsiglingar eru ekki
W svipur hjá sjón.Vegirnir og bílarnireru að taka við af flugi og
siglingum. Vöruflutningabílar aka um allt land með vörur og
flutning.
Það er Ijóst að bestu samgöngubætur fyrir norðanverða Vestfirði felast í
stórbættum Djúpvegi númer 61, en ekki fleiri jarðgöngum. Stytta þarf
vetrarleiðir og auka mokstur. Þessi sjálfsagða krafa mun enn grafa undan
flugi. Fari svo að lendingarskilyrði á Reykjavíkurflugvelli verði skert enn
frekar, eins og hugmynd borgarstjóra og borgarstjórnar um aðeins eina
flugbraut gefa til kynna, munu stoðirnar undir innalandsflugi veikjast mjög
mikið. Hafa ber sterkt í huga að vegir og brýr eru ódýrari enjarðgöng. Því þarf
afar sterk rök fyrir gerð jarðganga.
ðtakkur skrifar
Ertu ánægð-
(urj með hlut
Vestfjarða í
nýrri vega-
áætlun ?
Alls svöruðu 263.
Já sögðu 85 eða 32,44%
Nei sögðu 157 eða 59,92%
Hlutlausir voru
20 eða 7,63%
Netspurningin er birt viku-
lega ó bb.is og þar geta
lesendur látið skoðun sína
í Ijós. Aðeins er tekið viö
einu svari frá hverri tölvu.
Niðurstöðurnar eru síðan
birtar hér.
wsmmmMmmmmmmmmmmmmmmmmmMmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmMmmmmMmmmmmmmmmmMmmmmmmmmMmmmmmmmmmmmmmmmMmmmKmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Stakkur hefur ritað vikulega pistla íBœjarins besta í mörg ór. Skoðanir hans ó mönnum og mólefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umrœður. Þœr þurfa alls
ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrótf fyrir það bera óbyrgðarmenn blaðsins dbyrgð ó skrifum Stakks d meðan hann notar dulnefni sitt.
8
MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 2000