Tónamál - 01.12.1976, Side 8

Tónamál - 01.12.1976, Side 8
Einar B. Waage - Minning Langt samtal áttum við Einar á heimili hans deg- inum áður en hann „ætlaði að skreppa á sjúkrahús í nokkra daga", eins og hann komst að orði. Þá var hann glaður og reifur að vanda, áhugasamur um hin mörgu verkefni sem framundan voru til hagsbóta fyrir stétt okkar. Þegar við kvöddumst, bað hann mig um að heimsækja sig eftir 4—5 daga, svo við gætum rætt málin nánar, en það fór á annan veg. Hann lézt á Borgarsjúkrahúsinu aðfaranótt 12. október aðeins 52ja ára að aldri. Einar var fædur í Reykjavík 8. ágúst 1924, sonur sæmdarhjónanna Elísabetar Einarsdóttur og Benedikts G Waage, hins þjóðkunna íþróttafrömuðar, sem var m. a. forseti Iþróttasambands íslands í 37 ár. Síðustu æviárin dvaldi Benedikt á heimili sonar síns og tengdadóttur og lézt þar 8. nóvember 1966. Einar hlaut í arf eðliskosti foreldra sinna, góðar gáfur, áræði og fórnarlund, sem allir tóku eftir og mátu er kynntust honum. Fljótlega kom í ljós, að hann bjó yfir óvenju mikilli tónlistargáfu. Varð hann einn af meðlimum Drengjakórs Reykjavíkur, sem Jón ísleifsson stofnaði og stjórnaði á árunum 1937-38. Annars hóf Einar nám í Menntaskólanum í Reykjavík að loknu barnaskólanámi, en hvarf þaðan fljótlega til að helga sig tónlistinni. Allar götur frá þeim tíma var hann meðal fremstu tónlistarmanna þjóðarinnar. Námsferill Einars var stuttur á nútíma mælikvarða, en yfirburða hæfileikar hans komu þá gleggst í ljós og að góðum notum. Hann hóf nám í fiðluleik hjá Birni Ólafssyni, en jafnframt og síðar nám hjá Fritz Weis- shappel í kontrabasaleik. Fritz heitinn varð mágur hans, er hann kvæntist Helgu listmálara, systur hans. Á þeim árum máttu íslenzkir hljómlistarmenn þreyja þorran með því að leika fyrir dansi. Sinfóníuhljóm- sveit íslands var óstofnuð og aðeins strjálar uppfærsl- ur áhugamanna og Tónlistarfélagsins á klassískri tón- list tíðkuðust. I lok seinni heimsstyrjaldarinnar innritaðist Einar í Julliard School of Music í New York. Hann var svo 8 lánsamur að fá kontrabassaleikarann Fredrik Zimmer- mann fyrir kennara, þann hinn sama og ritað hefur kennslubækur, sem enn í dag eru notaðar. Með þeim tókst góð vinátta og varanleg. Er námi lauk bauð Fritz Reiner, stjórnandi Pittsburgh Sinfony Orchestra, Einari starf í þeirri hljómsveit, en hann kaus að hverfa heim, íslenzku tónlistarlífi til ómetanlegs gagns. Strax eftir heimkomuna réðst hann til Ríkisútvarps- ins og lék með Útvarpshljómsveitinni, undanfara Sin- fóníuhljómsveitar íslands, unz hin síðarnefnda var stofnuð 1950, en Einar gegndi stöðu 1. kontrabassaleik- ara þar allt til dauðadags, að frátöldum árunum 1958 og ’59, er hann varð að gangast undir mikinn uppskurð í Noregi. Þegar hinn frægi fiðluleikari Adolf Buch (tengda- faðir Rudolf Serkin) kom hingað með strokkvartett Framh. á hls. 14. TÓNAMÁL

x

Tónamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.