Tónamál - 01.12.1976, Page 11

Tónamál - 01.12.1976, Page 11
ýmist uppi á húsum eða í skipamöstrum að setja upp slíkt víravirki. Niður á Laufásvegi 17 er Birgir Hrafnsson kominn af stað með verzlun, sem hann nefnir TónkvísL Hann hafði fyrir nokkrum mánuðum byrjað umboðssölu á sama stað, en það fullnægði ekki atorku hans, svo hann er orðinn kaupmaður eins og fyrr sagði. Birgir leggur aðallega áherzlu á það bezta, sem við kemur hljóðfærunum sjálfum, hvort sem um er að ræða raf- magnshljóðfæri eða náttúruleg. Birgi er annt um hitastigið, enda er hann forsprakki í hljómsveitinni Ce'cíus, sem lætur sér svo annt um tón'.ist sína, að þeir spila ekki veikist maður úr hljómsveitinni. Miði maður við slíka hefð, þá er ekki að vænta lélegra hluta hjá verz'.un Birgir Hrafnssonar. Til að fylla kvartett hinna atorkusömu má ekki gleyma að telja einn forfiðlaranna úr Sinfóníuhljóm- sveit ís'ands, en sá frómi maður heitir því stutta og laggóða nafni Jón Sen. Jón byrjaði ungur að fást við radiótæknina og tók hana grafalvarlega eins og fiðlu- leikinn. Hann gekk meira að segja svo langt að kvæn- ast dóttur útvarpsstjórans, Jónasar Þorbergssonar, enda láir honum enginn. Jón var þegar orðinn eins konar Edison í ljósvaka- vísindunum fyrir seinni heimsstyrjöldina, en þá voru slíkir hugsuðir aðeins í þjónustu ríkisins, ef þeir á annað borð áttu að teljast löglegir. Hann varð að bíða til ársins 1950 til að öðlast löggildingarskírteini til út- varpsviðgerða, en slíkt plagg fengu útvaldir h;á Pósti og síma í þá daga. Meistararéttindi hlaut hann 1963, en hefur um áraraðir rekið fyrirtæki sitt, Rafeinda- tæki, sem er sérhæfð viðgerðaþjónusta með meiru. Það verkstæði er í Suðurveri 45-47, en verzlun rekur Jón í Glæsibæ, þar sem hljómplötur og tónabönd eru í fyrirrúmi. Þar er hægt að panta sér plötur og bönd frá Sam Goody með stuttum fyrirvara. í Stigahlíðinni er frekar að finna mælitæki og kallkerfi, fyrir þá sem farnir eru að missa heyrnina. Væri nú þessum fjórum stillt saman, þá fengist Hans á trommur, Arthur á bassa, Birgir á gítar og Jón á fiðlu. Það yrði fróðlegur kvartett á að hlýða. Ef til vill fengjum við eitthvað í líkingu við Sven Asmund- sen, eða hét hann ekki líku nafni þessi með sveifluna í Danmörku hér áður fyrr? TÓNAMÁL 11

x

Tónamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.