Tónamál - 01.12.1976, Síða 13
Ferö til Finnlands
Til er sú grein norrænnar samvinnu sem miðar að
auknum menningartengslum Finnlands við ísland,
Færeyjar og Grænland.
26. og 27. nóvember s.l. efndi „Pohjola-Nordens
Kulturrepresentantskap" til norrænnar ráðstefnu í
Helsinki um ofangreint efni. Ráðstefnuna sóttu auk
undirritaðs sem var sendur af hálfu F.Í.H. 10 íslend-
ingar, 7 færeyingar, 8 fyrir Grænland en þar af aðeins
3 grænlendingar og 44 finnar. Einnig komu fulltrúar
dönsku minnihlutahópanna í Suður-Slesvig sem til-
heyrir Vestur-Þýzkalandi svo og fulltrúar frá Álands-
eyjum.
Dagskrá ráðstefnunnar var allþétt ofin, enda hafði
í upphafi verið gert ráð fyrir þrem dögum til fundar-
haldanna. Meginhluti fyrra dagsins fór í ræðuhö'd,
skýrslur og almennar umræður um það sem þar kom
fram. Um kvöldið var hópnum svo skipt niður í þrjár
nefndir. Ein ræddi um hina ýmsu menningarmiðla og
stofnanir, önnur um þjóðlega menningu og sú hin
þriðja um fjölmiðlana og þeirra framlag til útbreiðs'u
menningar.
Eftir þessa tólf tíma setu var tekið upp léttara hjal
og farið í sauna og gleymdist alvara dagsins fljótlega í
svita og kaldri sturtu. Eftir þessa hressingu hófst svo
óskipulögð dagskrá þar sem hinar ýmsu þátttökuþjóð-
ir miðluðu hvorri annarri af menningu sinni ýmist í
tali eða tónum. Af íslands hálfu skemmtu Borgar
Framh. af bls. 12.
og undraði það engan, þar eð hljómlistarmenn gáfu
vinnu sína í löngum röðum. Þess utan voru Cleo Laine
og Benny Goodmann drjúgir tekjuliðir fyrir hátíð-
ina. Það er ánægjulegt, að svo breiður hópur skyldi
sækja Listahátíðina í ár, og vonandi er langt í diskó-
teklistahátíð hér á landi.
Nú er komið hrímkalt haust og horfin sumarblíða,
en lifandi hljómlist mun hjálpa okkur til að lifa á-
nægjulegu lífi í gegnum skammdegið.
Hrafn.
Garðarsson sem flutti kostulegan leikþátt sem vakti
mikla kátínu og Árni Johnsen sem stjórnaði fjölda-
söng af miklum skörungsskap.
Daginn eftir var að mestu unnið í nefndum. Ann-
ars vegar var haldið áfram þar sem daginn áður hafði
þurft frá að hverfa, en hins vegar voru á ný skipaðir
þrír umræðuhópar þar sem hvert eyríkið um sig ræddi
við gestgjafana, finna, um menningartengsl landanna.
Því miður náðu aðeins fyrri hóparnir að skila af sér
skýrslum og með herkjum var hægt að afgreiða þær
við lokaumræður ráðstefnunnar.
Um kvöldið var svo öllum fulltrúum boðið að sjá
leikritið „Lindbloms" eftir Claes Andersen í sænska
leikhúsinu í Helsinki.
Síðast en ekki sízt ber að minnast á hina frábæru
aðstöðu sem hin nýja og glæsilega menningarmiðstöð
Svíþjóðar og Finnlands „Hanaholmen" hefur uppá að
bjóða, en hún er u. þ. b. 7 km frá Helsinki.
Lýkur hér með þessum ferðapunktum, en undirrit-
aður vonar að þessi ráðstefna svo og aðrar um ókomna
framtíð eigi eftir að sýna gildi sitt og árangur í þágu
norrænnar samvinnu.
TÓNAMÁL
13