Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2005 5 Ólafur Örn Haraldsson, verðandi forstjóri Ratsjárstofnunar Miðstýring ratsjárstöðva frá Miðnes- heiði vegna fyrirmæla Bandaríkjamanna Miðstýring fjögurra ratsjár- stöðva Ratsjárstofnunar frá Miðnesheiði var ákveðin að fyrirmælum verkkaupa sem er Bandaríkjastjórn. Stofnunin fer að fyrirmælum verkkaupa samkvæmt samningum þar um og því virðist ekki vera mögu- leiki á að hrinda í framkvæmd þeirri hugmynd bæjarstjórans í Bolungarvík að fjarstýra rat- sjárstöðvunum frá Bolafjalli. Ólafur Örn Haraldsson verðandi forstjóri Ratsjár- stofnunar segir að ákvörðun um fjarstýringu stöðvanna frá Miðnesheiði sé tekin sam- kvæmt fyrirmælum frá verk- kaupa sem eru Bandaríkja- menn. Aðspurður hvort Rat- sjárstofnun hafi engan tillögu- rétt í því efni segir Ólafur að þessi ákvörðun sé tekin sam- kvæmt þeim samningi sem gildi um rekstur stöðvanna. Sem kunnugt er ákvað Rat- sjárstofnun fyrir skömmu að segja upp hluta þeirra tækni- manna sem hjá stofnuninni starfa. Er það gert þar sem fyrir dyrum stendur að fjar- stýra þremur ratsjárstöðvum á landsbyggðinni frá stöð á Mið- nesheiði. Sveitarstjórnarmenn á þeim stöðum þar sem ratsjár- stöðvarnar eru hafa lýst þung- um áhyggjum af þessum fyrir- ætlunum. Einar Pétursson bæj- arstjóri í Bolungarvík hefur sagt fyrirhugaðar uppsagnir verða mikið högg fyrir byggð- arlagið. Hann hefur í fjölmiðl- um varpað fram þeirri hug- mynd að hægt hljóti að vera að fjarstýra stöðvunum frá Bolafjalli eins og frá Miðnes- heiði. Með ákvörðun um slíkt geti stjórnvöld sýnt í verki raunverulegan áhuga sinn í uppbyggingu atvinnu á lands- byggðinni. – hj@bb.is Ratsjárstöðin á Bolafjalli. Einar Kristinn Guðfinnsson, alþingismaður Vill fá að sjá fyrirmælin Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður segir það koma sér mjög á óvart að Banda- ríkjamenn geri kröfu um það að ratsjárstöðvum Ratsjár- stofnunar verði fjarstýrt frá Miðnesheiði eingöngu. Bæjar- stjórinn í Bolungarvík hefur lagt til að ratsjárstöðvunum verði fjarstýrt frá Bolafjalli. Einar Kristinn segir að þessi tíðindi komi sér sérstaklega á óvart í því ljósi að búið sé að starfrækja ratsjárstöðvar á Bolafjalli og Gunnólfsvíkur- fjalli um tuttugu ára skeið og ennþá lengur á Stokksnesi við Hornafjörð. „Mér er ekki kunnugt um annað en að Bandaríkjamenn hafi verið ákaflega ánægðir fjarstýring stöðvanna megi eingöngu fara fram frá Mið- nesheiði. Ég mun því óska eftir því að fá að sjá þessi fyrir- mæli“, segir Einar Kristinn. Einar segir það skipta höf- uðmáli að hjá stofnuninni starfi um 80 manns á ýmsum stöðum á landinu og af löngum kynnum sínum af starfsemi stofnunarinnar geti hann full- yrt að starfsemi hennar í breyttri mynd megi til dæmis stýra frá Bolafjalli. Aðspurður segist Einar sannfærður um að tæknilega sé ekkert því til fyrirstöðu enda hafi hann vak- ið máls á því á Alþingi fyrir nokkrum árum að starfsemi stofnunarinnar yrði efld á landsbyggðinni. „Ég lagði það ekki til af tilefnislausu því það er augljóst að hægt er að sinna þessum rekstri frá fleiri stöð- um en Miðnesheiði og Síðu- múla í Reykjavík“, segir Einar. Aðspurður hvort hann sem þingmaður annars ríkisstjórn- arflokksins hafi beitt sér í þessu máli segir Einar svo vera. „Ég hef beitt mér gagn- vart Ratsjárstofnun og í því sambandi vil ég nefna að ég hef í gegnum tíðina átt mikil og góð samskipti við verðandi forstjóra stofnunarinnar Ólaf Örn Haraldsson. Ég þekki hann ekki af öðru en að vilja leysa öll vandamál sem upp koma og það mun hann eflaust gera í þessu tilfelli“, segir Ein- ar Kristinn. – hj@bb.is með þá þjónustu sem þeir hafa fengið frá þessum þremur stöðvum. Ég er því mjög hissa ef það er orðin stefna banda- rískra hermálayfirvalda að Einar K. Guðfinnsson. Kaffihúsið Langi Mangi Listasýningar bókað- ar fram til ársins 2006 Listasýningar hafa verið bókaðar á kaffihúsinu Langa Manga á Ísafirði til ársins 2006. „Allt árið er bókað og þrír mánuðir af 2006. Greini- legt er að listin er að blómstra hér vestra“, segir Elfar Logi Hannesson, vert á Langa Manga. Fyrsta sýning ársins 2005 er á bútasaumsverkum Öldu Sigurðardóttur, hand- verkskonu frá Þingeyri. Á árinu verða 12 sýningar og listamennirnir eru mest- megnis Vestfirðingar. „Lista- mennirnir eru ýmist lífs eða liðnir og sýningarnar eru mjög fjölbreyttar. Tvær lista- kanónur eru í hópnum en í febrúar verðum við með sýn- ingu á verkum Nínu Sæ- mundsson sem þekktust var fyrir höggmyndlist en ekki síður myndlist. Þetta er án efa fyrsta sýning á verkum hennar á Vestfjörðum en við fáum að láni verk úr eigu ættingja hennar. Í október verður sýning á verkum Kjarvals sem einnig eru úr einkasafni fólks“, segir Elfar Logi. – thelma@bb.is Tónlistarmaðurinn Mugi- son á langbestu plötu ársins. Í árlegri könnun DV meðal tónlistarsérfræðinga landsins fær plata hans, Mugimama (is this Monkeymusic?) næst- um því þrisvar sinnum fleiri stig en plata Bjarkar Guð- mundsdóttur. Sjálfur segir Mugison að þessi niðurstaða sé gott klapp á bakið. „Það er mjög jákvætt að fá svona við- urkenningar þegar maður hefur verið í tvö ár að vinna hörðum höndum að þessari músík. Þetta er mjög gott og fallegt klapp á bakið, ég er ótrúlega þakklátur, alveg satt,“ segir Örn Elías Guð- mundsson í viðtali við DV. DV birtir útkomu úr könn- un á meðal 18 sérfræðinga um tónlist sem völdu hver fimm bestu plötur ársins. Plata Mugisons var á öllum listunum nema einum, og jafnan í fyrsta eða öðru sæti. Meiri keppni var um valið á erlendu plötunum. Þar sigr- aði plata The Streets, A Grand Dont Come For Free. Ítarleg umfjöllun er um bestu plötur ársins í DV 30. desem- ber. Þar er einnig upprifjun á tónlistarárinu 2004. – halfdan@bb.is Mugison á lang- bestu plötu ársins Mugison. Boltafélag Ísafjarðar og Sparisjóður Vestfirðinga Á gamlársdag undirrituðu Eiríkur Finnur Greipsson að- stoðarsparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Vestfirðinga og Kristján Pálsson, formaður Boltafélags Ísafjarðar styrktarsamning til tveggja ára. Í október rann út styrktarsamningur sem gilt hafði í þrjú ár á milli þessara sömu aðila en samkvæmt hon- um var Sparisjóður Vestfirð- inga aðal styrktaraðili Boltafé- lags Ísafjarðar. Í þessum nýja samningi kemur fram að Sparisjóðurinn verður áfram aðalstyrktaraðili Boltafélagsins. Eiríkur Finnur segir forsvarsmenn Sparisjóðs Vestfirðinga mjög ánægða með þetta góða samstarf við Boltafélag Ísafjarðar og þeir vilji áfram taka þátt í því öfl- uga og þróttmikla íþrótta- og æskulýðsstarfi sem félagið stendur fyrir í bæjarfélaginu. Kristján Pálsson segir þenn- an mikla stuðning gefa Bolta- félaginu kost á að gera gott Undirrita nýjan samning starf ennþá betra og það verði vonandi að veruleika í fram- tíðinni. „Boltafélag Ísafjarðar þakkar sparisjóðnum þennan mikla stuðning á liðnum árum og óskar þeim og öllum vel- unnurum, iðkendum og for- eldrum þeirra gleðilegs nýs árs“, segir Kristján. – hj@bb.is Kristján Pálsson og Eiríkur Finnur Greipsson handsala nýjan samning. 01.PM5 6.4.2017, 09:195

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.