Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.04.2015, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 01.04.2015, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015 Minnihlutinn hefur þungar áhyggjur af rekstri Eyrar Minnihlutinn bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur þungar áhyggjur af stöðu samninga um rekstur hjúkrunarheimilisins Eyrar á Ísafirði. Í bókun minni- hlutans eru bæjaryfirvöld sökuð um aðgerðarleysi. Á fundi bæjar- stjórnar á fimmtudag var lagt fram skriflegt svar Gísla Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra til minnihlutans um stöðu mála. Bæjarstjóri og formaður bygg- ingarnefndar hjúkrunarheimilis- ins funduðu í velferðarráðuneyt- inu 18. mars og segir Gísli Hall- dór að þar hafi komið fram að ásetningur ráðuneytisins sé að rekstur á hjúkrunarheimilinu Eyri hefjist svo skjótt sem verða má eftir að það hefur verið afhent. Bæjarstjóri minnist á að fyrir lægi viljayfirlýsing Heilbrigðis- stofnunar Vestfjarða, frá því 12. apríl 2013, um að stofnunin muni sjá um rekstur hjúkrunarheimilis- ins í eigin nafni. Gísli Halldórseg- ir að aðilar séu ásáttir um að greiðslur fyrir reksturinn miðist við gildandi daggjöld eða nánara samkomulag við velferðarráðu- neytið. „Það virðist því ekki ástæða til að ætla annað en að HsVest standi við yfirlýst áform sín um að hefja rekstur svo fljótt sem auðið er þegar hjúkrunarheimilið verður fullbúið, sem áætlað er að verði í júní,“ segir í svarinu. Gísli Halldór segir að samningsmark- mið hans séu að Ísafjarðarbæjar niðurgreiði ekki að nokkru leyti rekstur hjúkrunarrýma á Eyri. Daníel jakobsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, lagði fram bókun fyrir hönd Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks þar sem lýst er yfir þungum áhyggj- um af „aðgerðaleysi bæjaryfir- valda í Ísafjarðarbæ um málefni hjúkrunarheimilis.“ „Ekkert hefur gerst í þessu máli á þessu kjörtímabili þrátt fyrir að gríðarlegir hagsmunir bæjarins séu í húfi þegar að kemur að þessum samningum. Það að bæj- arstjóri sé á sínum fyrsta fundi um málið í velferðarráðuneytinu í dag 273 dögum eftir að Í-listinn tók við stjórn bæjarins er algjör- lega óásættanlegt,“ segir í bókun minnihlutans. Í bókun Í-listans segir að frá- leitt sé að halda því fram að að- gerðarleysi bæjaryfirvalda síð- astliðna mánuði sé um að kenna að ekki hafi komist á samningur milli bæjaryfirvalda og Heil- brigðisstofnunar Vestfjarða um rekstur hjúkrunarheimilsins Eyr- ar. „Fyrri meirihluti hafði ekki árangur sem erfiði að ná samn- ingum um reksturinn og voru þó búin að reyna í tvö ár. Fulltrúar Í- listans eru fullvissir um að bæj- arstjóri hafi sinnt málinu af kost- gæfni og telja þennan málflutning sjálfstæðismanna og framsóknar- manna leið til gera málið tor- tryggilegt,“ segir í bókuninni. Metafli hjá Hálf- dáni Einarssyni Mjög góður steinbítsafli hefur verið undanfarið hjá þeim bátum sem gera út frá Bolungarvík og eiga steinbítskvóta. Áhöfnin á Hálfdáni Einarssyni ÍS komu að landi á fimmtudagskvöld í síð- ustu viku með 27 tonn úr einni sjóferð sem væntanlega telst Ís- landsmet hjá báti af þessari stærð. Heildarafli bátsins í mars mánuði var þá kominn í 182 tonn í 14 sjóferðum, sem væntanlega er einnig Íslandsmet. Skipstjóri á Hálfdáni Einarssyni ÍS er Björn Elías Halldórsson. Af öðrum bolvískum bátum má nefna að Jónína Brynja ÍS er komin með 124.895 tonn í 17 sjóferðum, Fríða Dagmar er komin með 107.384 tonn í 17 sjóferðum, Einar Hálfdáns er kominn með 113.063 tonn í 15 róðrum og Guðmundur Einars- son er kominn með 60.821 tonn í 13 sjóferðum. Heildaraflinn í var kominn í ríflega 1000 tonn.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.