Bæjarins besta - 01.04.2015, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015
Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620
Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson, 892 5362, bb@bb.is
Ábyrgðarmaður: Sigurjón J. Sigurðsson.
Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is
Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili
á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
Ritstjórnargrein
Stöndum vörð
Spurning vikunnar
Hyggst þú ferðast um Vestfirði í sumar?
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
Alls svöruðu 344.
Já sögðu 222 eða 65%
Nei sögðu 66 eða 19%
Óvíst sögðu 56 eða 16%
Rík ástæða er til að fagna tíu ára afmælis Háskólaseturs Vestfjarða
og gleðjast yfir þeim árangri sem þar hefur náðst og þeirri sérstöðu
sem stofnunin hefur skapað sér. Eflaust hafa margir lagt hönd á
plóginn við þróun Háskólaseturisins en vonandi er á engan hallað
þótt aðeins sé íað að starfi forstöðumanns.
Engin fjöður skal yfir það dregin að uppskeran sem Háskólinn á
Akureyri skóp samfélaginu norður frá gaf Vestfirðingum byr í
seglin með kröfu um hliðstæðu á Vestfjörðum; að ekki sé minnst
þess uppgangstíma íslenskra stjórnmála þegar svo virtist sem loforð
ráðherra, í einskonar hátíðaræðu, nægði til stofnunar háskóla stuttu
síðar. Vestfirðingar létu til sín heyra, minnugir harðvítugrar baráttu
fyrir menntaskóla. BB var þar engin undantekning. Niðurstaðan hér
vestra var Háskólasetur. Og nú, að áratug liðnum, þegar menn al-
mennt eru þeirrar skoðunar að takmörk eru fyrir fjölda fullgildra há-
skóla í örsamfélagi, líkt og því íslenska, eru líkur á því á tölvuöld að
skólasetur séu það sem horft verður til í ríkari mæli.
Minnugir að oft á tíðum er erfiðara að gæta fengins fjár en afla
þess, verða Vestfirðingar að standa vörð um það sem þegar hefur
áunnist í skólamálum, með frekari áfanga að markmiði í pokahorninu.
Páskar
,,Aldrei hefur birta morgunsins
og litur landsins
ljómað eins skært og í dag.“
Ljóst er að með upphafi ljóðsins ,,Á páskum“ er Þorgeir Sveinbjarn-
arson að tjá hugarástand manns að morgni páskadags, fagnandi
upprisu Krists, eftir að: ,,Með sínum dauða hann deyddi / dauðann
og sigur vann,“ eins og meistari Hallgrímur orðar það.
Dymbilvika rúmar vikurnar tvær: Páskaviku og Skíðaviku, vikur
trúar og útiveru. Sú síðar nefnda með ríka hefð að baki á Ísafirði
enda áttatíu ára. Miklar þakkir á það fólk skilið sem þar hefur staðið
að baki. Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður er tekin að tölta inn á
annan áratuginn. Það er mikið, þakkarvert afrek.
Bæjarins besta býður alla páskagesti velkomna til Ísafjarðar.
Megi heimsóknin auka innstæðu hvers og eins í eigin minnninga-
banka.
Lesendum Bæjarins besta nær og fjær og landsmönnum öllum
eru sendar óskir um gleðilega páskahátíð.
s.h.
Fyrsta farþegaskip ársins
Hollenska seglskipið Rembrandt van Rijn kom til hafnar á Ísafirði í síðustu viku. Skipið er
þriggja mastra skonnorta sem fyrir tuttugu árum var breytt í farþegaskip. Skipið kom til Ísaf-
jarðar frá Færeyjum með viðkomu á Seyðisfirði þar sem 33 farþegar voru settir í land. Sam-
kvæmt upplýsingum frá hafnsögumanni tekur skipið farþega á Ísafirði og fer í tvo vikutúra um
strendur Vestfjarða. Síðan heldur skipið til Reykjavíkur, tekur um borð farþega þar og siglir til
Grænlands. – smari@bb.is
Það er ekki laust við að Hrafn-
kell Hugi Vernharðsson hafi
verið pínu vankaður á mánudags-
morgun þegar blaðamaður hafði
samband við hann og óskaði hon-
um til hamingju með sigur
Rythmatik í Músíktílraunum á
laugardag. „Það er búið að taka
tíma til að átta sig á að við unnum
þetta. Markmið okkar var bara
að hafa gaman af þessu og
skemmta okkur,“ segir Hrafnkell
sem er gítarleikari og söngvari í
Rythmatik frá Suðureyri. Mús-
íktilraunir hafa oft reynst stökk-
pallur fyrir hljómsveitir til frekari
verka og í einhverjum tilfellum
frægðar. Í verðlaun eru meðal
annars 20 hljóðverstímar í Sund-
lauginni, þátttaka í Airvawes og
tónleikahald erlendis.
Hljómsveitin var ekki fullskip-
uð á Músíktilraunum þar sem
Eggert Nielson var fjarri góðu
gamni í ferð með Menntaskólan-
um á Ísafirði í Frakklandi. Í hans
skarð hljóp Bjarni Kristinn Guð-
jónsson. „Hann gjörsamlega
reddaði okkur og stóð sig eins og
hetja.“ En hvað er næst á dagskrá
hjá Rythmatik? „Núna erum við
bara að fara að hreinsa út úr æf-
ingarhúsnæðinu okkar, það var
verið að kasta okkur út. 3X var
að kaupa húsið þar sem við vorum
að æfa. Svo er bara að gíra sig
upp fyrir Aldrei fór ég suður og
eftir það þurfum við bara að taka
okkur smá tíma og anda og pæla
í næstu skrefum,“ segir Hrafn-
kell.
– smari@bb.is
Tók tíma að átta sig á sigrinum
Sigurvegarar Músíktilrauna 2015. F.v. Bjarni Kristinn Guðjónsson, Valgeir Skorri Vern-
harðsson, Hrafnkell Hugi Vernharðsson og Pétur Óli Þorvaldsson. Ljósm: Morgunblaðið.