Bæjarins besta - 01.04.2015, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015
Sund og sauna
í Bolungarvík
Gestir skíðavikunnar á Ísafirði
sem og gestir tónlistarhátíðar-
innar Aldrei fór ég suður hafa
löngum sótt í sundlaugina í
Bolungarvík um páskana enda
aðstaðan þar eins og best verð-
ur a kosið. Á skírdag, föstu-
daginn langa, laugardag fyrir
páska, páskadag og annan í
páskum verður opið daglega frá
kl. 10-18. Sauna laugarinnar er
einnig opið á sama tíma nema á
laugardeginum. Þá verður sér-
stakur kvennatími frá kl. 13:00-
15:30 og fyrir karla frá kl.
15:30 til kl. 18:00. Í Bolungar-
vík er frábær sundlaugargarður
með heitum pottum og vaðlaug.
Stefanía Helga
ráðin skólastjóri
Að fengnum niðurstöðum frá
Capacent á umsækjendum um
stöðu skólastjóra Grunnskóla
Bolungarvíkur, leggur fræðslu-
ráð Bolungarvíkur til að Stef-
anía Helga Ásmundsdóttir
verði ráðin skólastjóri. Stefanía
er skólastjóri Grunnskólans á
Þingeyri. Hún er félagsliði og
kennari að mennt ásamt því að
hafa lokið 90 ECTS-einingum í
uppeldis- og menntunarfræði.
Umhverfisstofnun hefur veitt
fyrirtækinu Ís 47 ehf. á Ísafirði
starfsleyfi til að framleiða allt að
1.200 tonn af regnbogasilungi og
þorski á ári í Önundarfirði. Starfs-
leyfið öðlast þegar gildi og gildir
til ársins 2030. Fyrirtækið er nú
þegar með eldi í Önundarfirði og
ætlar að auka það verulega.
Skipulagsstofnun komst að þeirri
niðurstöðu í fyrra að aukið eldi
Ís 47 ehf. í Önundarfirði sé ekki
líklegt til að hafa umtalsverð um-
hverfisáhrif og er því ekki háð
umhverfismati.
Gísli Jón Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Ís 47, segir að nú
sé bara eftir að fá rekstrarleyfi
sem Matvælastofnun gefur út.
„Það er nánast formsatriði. Mestu
hindranirnar eru úr vegi. Á næsta
ári fara hlutirnir að snúast hraðar
og svo fer þetta á fulla ferð upp
úr því,“ segir Gísli Jón. Hann er
með 20 þúsund regnbogasilunga
í kvíum í Önundarfirði sem hann
slátrar í haust. „Svo eru 50 þús-
und seiði sem fóru í sjó í fyrra og
ég ráðgeri að setja 100 þúsund
seiði í sjó í vor.“
Starfseyfið er bundið við 900
tonna framleiðslu á regnbogasil-
ungi og 300 tonna áframeldi á
þorski. „Þetta er verkefni sem er
spennandi að takast á við. Nú er
verið að fínpússa markaðsmál og
fleira og skoða ýmsa fleiri mögu-
leika. Ég er bara bjartsýnn og
spenntur,“ segir Gísli Jón.
– smari@bb.is
Starfsleyfi fyrir 1.200 tonna eldi
Önundarfjörður.