Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.04.2015, Page 23

Bæjarins besta - 01.04.2015, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015 23 Lausn á síðustu krossgátu Sudoku þrautir Þjónustuauglýsingar smáar Ertu að breyta að stækka baðið? Spegill með ljóskappa fæst gef- ins. Breidd 60 cm, hæð 105 cm. Uppl. í síma 864 3589. Ísafjarðarbær hefur verið beð- inn að afhenda lögreglustjóraem- bættinu á Vestfjörðum öll gögn er varða sæstreng sem Neyðar- línan lagði í innanverðum Arnar- firði í fyrrasumar. Neyðarlínan og Orkubú Vestfjarða kærðu spjöll sem fyrirtækin telja rækju- sjómenn hafa unnið á strengnum í nóvember. Strengurinn liggur um þekkt rækjumið. Lögreglustjórinn vill gögnin frá bænum fyrir lok mars. Deildar meiningar eru um hvort Ísafjarð- arbær hafi veitt Neyðarlínunni leyfi fyrir lagningu strengsins. Ísafjarðarbær afhendi öll gögn Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar skorar á Landsnet og Ríkisstjórn Íslands að bæta raforkuöryggi og jafna samkeppnisstöðu Vest- fjarða með hringtengingu há- spennulína um Djúp, milli Ísa- fjarðar og Hólmavíkur. Ályktun þess efnis var samþykkt á síðasta bæjarstjórnarfundi. „Með því og tengipunkti inn á línuna innarlega í Ísafjarðardjúpi má tryggja að það afl, sem Hval- árvirkjun kemur til með að fram- leiða, verði til hagsbóta fyrir sam- félag og atvinnulíf á Vestfjörð- um. Jafnframt myndi það tryggja að tengigjald virkjunarinnar yrði eðlilegt og hóflegt,“ segir í álykt- un bæjarstjórnar. Vilja hringtengda háspennulínu Páskar, jól og áramót sem og verslunarmannahelgin er anna- samasti tíminn hjá Vínbúðinni á Ísafirði. Snorri Grímsson versl- unarstjóri segir salan geti þó verið rokkandi milli ára, veðrið ráði miklu um söluna, rétt eins og það ræður hversu margir koma í bæinn þessa miklu og löngu gleðihelgi. Hann segir að salan í ríkinu hafi aukist geysilega eftir að Al- drei fór ég suður festi sig í sessi á Ísafirði. Opið verður í Vínbúðinni til kl. 19 í dag, en að sjálfsögðu er lokað á skírdag og föstudaginn langa. Á laugardag verður frá kl. 11 til 16. Annríki fram- undan í Vínbúðinni

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.