Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.05.2015, Page 12

Bæjarins besta - 13.05.2015, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 Verkföll upp á líf og dauða Stakkur hefur ritað viku- lega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoð- anir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vak- ið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrif- um Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Stakkur skrifar Námskeið Námskeið í stjórn og meðferð gaffallyftara, hleðslukrana, dráttarvéla með tækjabúnaði, körfubíla, steypudæla og valtara verður haldið í Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12 á Ísafirði ef næg þátttaka fæst. Þriðjudaginn 2. júní 2015 Miðvikudaginn 3. júní 2015 Fimmtudaginn 4. júní 2015 Verð kr. 41.000.- á þátttakanda. Skráning er á heimasíðu Vinnueftirlitsins á slóðinni www.ver.is, í síma 550 4655 og á net- fanginu margret@ver.is. Ath! Hægt er að sækja um styrk til verkalýðsfélaga. Síðasti skráningardagur er 28. maí 2015. Dæmdur fyrir árás á lögreglu Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt 23 ára gamlan mann í tveggja mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa aðfararnótt sunnudagsins 20. apríl 2014, veist að lögreglu- manni við skyldustörf á Ísafirði, ýtt við honum með báðum hönd- um, slegið hann hnefahögg á enn- ið og stangað hann með höfðinu harkalega aftur fyrir sig með þeim afleiðingum að lögreglumaður- inn hlaut eymsli á miðju enni og ofan hægri augabrúnar, hægri vanga og hægri olnboga, mar á miðju enni og yfir hægri auga- brún, roða og bólgu á hægri vanga, fleiður yfir hægri olnboga og hrufl yfir hægri úlnlið. Ákærði hefur skýlaust játað þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og tjáði ákærandi og verjandi ákærða sig sérstaklega um lagaatriði og ákvörðun viður- laga. Játning ákærða fær fulla stoð í gögnum málsins. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er brot hans þar rétt heimfært til refsiákvæða. Ákærði er fæddur árið 1992. Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur hann tvisvar geng- ist undir sektargerðir lögreglu- stjórans á Vestfjörðum vegna umferðarlagabrota. Við ákvörð- un refsingar ákærða nú lítur dóm- urinn til þess að ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi og þess að ákærði hefur ekki áður gerst sekur um brot gegn hegn- ingarlögum. Einnig er litið til þess að brot ákærða beindist að lögreglumanni sem var að sinna skyldustarfi sínu, sbr. 2. máls- liður 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, af- leiðinga brotsins fyrir viðkom- andi lögreglumann sem hlaut áverka af atlögu ákærða, sbr. 2. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegn- ingarlaga, svo og til 78. gr. sömu laga. Með vísan til framangreinds þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingar- innar skilorðsbundið. Ákærði skal greiða málvarnar- laun til skipaðs verjanda síns sem þykir hæfilega ákveðin 200 þúsund krónur. Fresta skal fulln- ustu refsingarinnar og falli hún niður að tveimur árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð. Hefur fulla trú á fullum rekstri Eyrar í sumar Bygging hjúkrunarheimilins Eyri er langt komin og nú er unnið að uppsetningu innréttinga og frágangi innanhúss. „Það er gert ráð fyrir að húsið verði til- búið í júní og síðast þegar við vissum þá standast allar áætlan- ir,“ segir Sigurður Pétursson, for- maður nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis. Vinna við frá- gang lóðar er að hefjast að sögn Sigurðar og síðar í sumar verður malbikað við Eyri. Ísafjarðarbær afhendir ríkinu húsið fullfrá- gengið með búnaði. Ekki er búið að ganga frá samningi um rekstur Eyrar. „Það er búið að funda með heil- brigðisráðuneytinu og Sjúkra- tryggingum Íslands um rekstur gefið okkur neitt annað til kynna en að hjúkrunarheimilið fari í fullan rekstur í sumar. Það verður mikil bylting í umönnun aldraðra þegar 30 ný hjúkrunarrými verða tekin í notkun.“ Aðspurður hvers vegna Ísa- fjarðarbær sé milliliður í samn- ingum um reksturinn segir Sig- urður að á þeim tíma þegar ákvörðun var tekin um byggingu hjúkrunarheimilins var stefnt á að sveitarfélögin tækju yfir mál- efni aldraðra. „Það hefur hins- vegar breyst og sveitarfélögin eru ekki að fara að gera það í fyrir- sjáanlegri framtíð. En svona eru nú völundarhús ríkisins stundum og lítið sem við getum gert í því.“ – smari@bb.is hjúkrunarheimilisins og ekkert komið fram annað en að Heil- brigðisstofnun Vestfjarða taki að sér rekstur hjúkrunarheimilisins á Ísafirði, alveg eins og í Bol- ungarvík,“ segir hann. ,,Það hefur verið gert ráð fyrir því frá upp- hafi.“ Sigurður hefur fulla trú á að Eyri verði tekin í fulla notkun í sumar. „Ríkisvaldið hefur ekki Hjúkrunarheimilið Eyri. Verkföll hafa staðið nú með ýmsu móti með miklum áhrifum. Ekki er með góðu móti hægt að kaupa og selja fasteignir á höfuðborgarsvæðinu. Þannig hefur verkfall háskólamenntaðra starfsmanna, nánar til tekið lög- fræðinga starfandi hjá þessu ágæta embætti ríkisins á höfuðborgarsvæðinu haft lamandi áhrif á viðskiptalífið. Engu er þinglýst og hefur ekki verið síðan 1. apríl síðastliðinn. Það er vont og hefur slæm hrif á marga, enda við því að búast. Stærsta fjárfesting venjuleg fólks er fasteign og oft er erfitt að standa í slíku, þungt að fjárfesta og fá til þess peninga. Nú lokast allt því hvorki er unnt að þinglýsa kaupsamningum né veðskuldabréfum. Ekki fást skráðar erfðaskrár og fleira. Leyfi verða trauðla gefin út. Verra er hins vegar að ástandið skuli vera þannig í heilbrigðiskerfinu að það sé meira og minna lamað vegna verkfalls geislafræðinga og það bitnar á krabbameinssjúkum, sem alls ekki mega við þeirri óvissu sem fylgir um meðferð ofan á þungbærar áhyggjur af meðferðinni sjálfri. Þetta er vont ástand. Deila má um gildi verkfalla og margir eru þeim andsnúnir, en greinilega þó minnihluti þeirra sem hafa tekið þátt í atkvæðagreiðslum um verkföll eins og sást á nýlega samþykktu verkfallli hjúkrunarfræðinga. Ekki er ætlunin að fjalla um gildi verkfalla og gagnsemi hér. Það er of viðkvæmt pólitískt til þess að ná fram vitrænni niðurstöðu. Hitt vekur ávallt athygli, meira hjá sumum en öðrum, að verkföllum er ekki beitt þegar vinstristjórnir sitja að völdum og kjósa fremur að ráðskast með verk en að stjórna. Það ætti að vera sérstakt rannsóknarefni fyrir hákskóla- menntaða sérfræðinga á öllum sviðum. Margt var ómögulegt í tíð ríkis- stjórnar Jóhanns og Jóhönnu. Steingrímur Jóhann var meira en reiðubúinn að fórna hagsmunum íslensks almennings á altari stjórnarsetu og dældi peningum í vonlausa sparisjóði en hafði hátt um starfsemi banka. Spari- sjóðirnir nutu greinilega ekki góðs og tugir milljarða töpuðust án þess að Jóhann þessi hafi nokkurn tíma skýrt þennan peningaaustur í galna þarfleysu. Engum datt þó í hug að fara í verkfall þótt laun lækkuðu og atvinnuleysi færi í hæstu hæðir á lýðveldistímanum. Nú situr stjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokka og skuldir heimla hafa lækkað, kaupmáttur hefur aukist, Íslendingum tókst með harðfylgi að losna undan klafa Jóhanns og Jóhönnu, sem vildu ólm láta almenning Íslandi borga Icesave brúsann. Að sjálfsögðu er æskilegast að fólk hafi góð laun og líkt og segir góðri bók: ,,Verður er verkamaðurinn launa sinna“, þá er skynsemi einnig eftirsóknarverð. En nú er henni kastað á glæ. Verkalýðsfélag á Suðurlandi vill að bensínsjálfsalar fari í verkfall. Þegar svo er komið er kannski ekki að furða þótt sjúklingar skuli sitja á hakanum og bæði landlæknir og forstjóri Landsspítalans hafi miklar áhyggjur og ræði opinskátt um annars flokks heilbrigðiskerfi. Ríkið ber ábyrgð á heilbrigðisþjónustu og vinstri menn vilja að svo verði áfram, en kjósa að grafa undan því ástandi með verk- föllum. Aðeins tvennt er til lausnar, lagasetning strax og einkavæðing heil- brigðisstofnana, sem ekki er æskileg. En slíkt verður að gerast til að kerfið bregðist ekki líkt og nú. Verkföllin eru upp á líf og dauða, þeirra sem ekk- ert hafa gert af sér.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.